Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Page 30
Ísland leikur í B-riðli ásamt
Frökkum, Úkraínumönnum og and-
fætlingum okkar Áströlum. Frakk-
land er stórþjóð í handbolta og
hefur verið í fremstu röð um langa
hríð. Frakkar eru ríkjandi Evrópu-
meistarar eftir sigur á Spánverjum
í úrslitaleik Evrópumótsins í Sviss
í fyrra. Úkraínumenn eru nokkuð
óskrifað blað og ekki er búist við
miklu af Áströlum.
„Þetta verður rosaleg barátta.
Það er nú skylda okkar að fara upp
úr þessum riðli, annars verður þessi
keppni algjört klúður. Við verðum
að vinna Ástrali og Úkraínumenn
og síðan er það þessi leikur á móti
Frökkum sem skiptir miklu máli um
framhaldið. Frakkarnir eru mjög
sterkir og ég held það gæti orðið svo-
lítið erfitt fyrir okkur en við ættum
að vera í nokkuð góðum málum og
komast í annað sætið.
Að öllu eðlilegu eigum við að vera
sterkari en Úkraínumenn og ég held
að við komum til með að vinna þá.
Síðan held ég að við náum ekki að
vinna Frakka í riðlinum,“ sagði Árni
og gaf þá ástæðu að Frakkar væru
með meiri breidd en við Íslending-
ar.
„Þeir eru með hörkuskyttur og
eru virkilega öflugir í þeim stöðum
og ég held að það komi einfaldlega
til með að reynast of erfitt fyrir okk-
ur,“ sagði Árni en hann taldi að það
væri gott að byrja gegn Áströlum.
„Það verður gott fyrir okkur að
byrja á móti Áströlum og sjá þá
hvernig leikur Frakka og Úkraínu-
manna þróast. Þar fáum við mikil-
vægar upplýsingar um hvernig lið-
in spila. Við getum þar með haldið
trompunum okkar uppi í erminni á
móti Áströlum og mætt þannig gegn
Úkraínu að þeir viti ekki mikið um
okkur og við tökum þá þann leik,“
sagði Árni en bætti við að varast bæri
Úkraínu.
„Þeir eru með ungt lið og eru
með öfluga örvhenta skyttu, Sergiy
Shelmenko. Hann spilar í Þýska-
landi og er öflugur. Það er ákveðin
hefð í þessum austantjaldslöndum
fyrir handbolta en ég bara held að
við eigum að vera sterkari en þeir að
öllu eðlilegu.“
Árni hefur mikla trú á því að ís-
lenska liðið eigi eftir að standa sig
vel á HM. „Ég tel Króata, Þjóðverja,
Frakka og Íslendinga vera líkleg-
ustu liðin til að vinna þetta mót. Ég
hef bullandi trú á íslenska liðinu. Þó
að ég telji að þeir vinni ekki Frakka
í riðlinum þá held ég að í milliriðl-
inum eigum við að geta strítt öllum
þessum liðum.
Ef þetta fer svona ættum við að
leika við Slóveníu og Túnis í milli-
riðlinum og við ættum að vinna
báðar þær þjóðir að mínu mati. Svo
eru það Þýskaland og Pólland og þar
getur allt gerst. Ef hlutirnir ganga
upp hjá okkur, ef við lendum ekki í
meiri meiðslum og öðru, þá erum
við einfaldlega með lið og þjálfara til
þess að fara geysilega langt í þessari
keppni,“ sagði Árni.
föstudagur 19. janúar 200730 Sport DV
A-riðiLL
H m í þ ý s k a l a n d i 2007
Túnis
slóvakía
kúveiT
grænland
Hér er leikið:
arena Wetzlar (Wetzlar)
Höllin var opnuð árið 2005 og er
heimavöllur Wetzlar-liðsins sem
róbert sighvatsson þjálfar.
fylgisT með:
Wissem Hmam (Túnis)
Leikur með Montpellier í
frakklandi. Á 166 lands-
leiki að baki og hefur skorað
505 mörk fyrir túnis. Var markahæsti
leikmaðurinn á HM í túnis 2005,
skoraði 81 mark.
siarhei rutenka
(Slóvenía)
samherji Ólafs stefáns-
sonar hjá Ciudad real. Hefur
skorað 269 mörk í 47 landleikjum.
rutenka er fæddur í Hvíta-rússlandi
en fékk slóvenskt ríkisfang fyrir
nokkrum árum. Hann er vinstri skytta
en getur einnig leikið í stöðu
leikstjórnanda.
leikirnir:
laugardagur 20. janúar
KL. 17.00 slóvenía - grænl. ___ - ___
KL. 19.00 túnis - Kúveit ___ - ___
sunnudagur 21. janúar
KL. 15.00 grænland - túnis ___ - ___
KL. 17.00 Kúveit - slóvenía ___ - ___
mánudagur 22. janúar
KL. 17.00 Kúveit - grænland ___ - ___
KL. 19.00 túnis - slóvenía ___ - ___
lokasTaða:
1. sæti: ________________ stig: ___
2. sæti: ________________ stig: ___
3. sæti: ________________ stig: ___
4. sæti: ________________ stig: ___
B-riðiLL
H m í þ ý s k a l a n d i 2007
frakkland
ísland
úkraína
ásTralía
Hér er leikið:
Bördelandhalle (Mardeburg)
Heimavöllur Magdeburgarliðsins og
höllin þar sem íslenska liðið leikur í
riðlinum.
fylgisT með:
nikola karabatic
(Frakkland)
gríðarlega öflug skytta
sem leikur með Kiel í
Þýskalandi. Eingöngu 22 ára gamall
og hefur skorað 324 mörk í 81
landsleik fyrir frakka á ferlinum.
Joel abati (Frakkland)
Er á heimavelli í
riðlakeppninni en hann
leikur með Magdeburg í
Þýskalandi. öflugur örvhentur
leikmaður sem er ekki síður grimmur
í varnarleik en sóknarleik.
leikirnir:
laugardagur 20. janúar
KL. 15.00 Ísland - Ástralía ___ - ___
KL. 17.00 frakkland - úkraína ___ - ___
sunnudagur 21. janúar
KL. 15.00 Ástralía - frakkland ___ - ___
KL. 17.00 úkraína - Ísland ___ - ___
mánudagur 22. janúar
KL. 17.00 úkraína - Ástralía ___ - ___
KL. 19.00 frakkland - Ísland ___ - ___
lokasTaða:
1. sæti: ________________ stig: ___
2. sæti: ________________ stig: ___
3. sæti: ________________ stig: ___
4. sæti: ________________ stig: ___
A-riðillinn er sá slakasti
Í A-riðli mætast Túnisar, Slóv-
enar, Kúveitar og nágrannar okkar
frá Grænlandi.
Slóvenar hafa best
náð ellefta sæti
á HM í handbolta, en þeim árangri
náðu þeir á HM í Túnis árið 2005. Á
því sama móti enduðu Túnisar í fjórða
sæti eftir að hafa tapað fyrir Frökkum í
leik um bronsið.
„Ég hef trú á að Slóvenía vinni
þennan riðil. Túnis lendi í öðru, Kú-
veit í þriðja og Grænland í fjórða. Þetta
er nú einn slakasti riðillinn svona á
heildina litið og ég held að Slóvenar
og Túnisar eigi að fara auðveldlega
áfram. Þær þjóðir eru með ágætis lið.
Slóvenar eru með mjög skemmtilegt
landslið og ég held að þeir verði nokk-
uð sterkir á þessu móti. Þeir vinna lík-
lega þennan riðil og Túnis verður þar
rétt á eftir. Það er töluverður munur á
þeim þjóðum og svo Kúveit og Græn-
landi og ég held að þeir komi til með
að sitja eftir,“ sagði Árni og bætti við
Túnisar væru með fínasta lið.
„Túnisar hafa verið að koma sterk-
ir upp, unnu til dæmis síðustu Afr-
íkukeppni. Þeir eru til alls líklegir,“
sagði Árni en hann taldi þó
ólíklegt að Slóvenía
eða Túnis næðu langt í
þessari keppni.
„Ég held að þess-
ar þjóðir fari nú
ekki langt, endi
kannski í átt-
unda til tólfta
sæti.“
a-riðill er af mörgum
talinn slakasti riðillinn.
Túnis og slóvenía eru tal-
in eiga tvö efstu sætin
næsta vís en kúveit og
grænland þykja ekki lík-
leg til afreka.
Eigum að komast í milliriðla
að öllu eðlilegu eigum
við íslendingar að
komast upp úr B-riðli
en eins og svo oft
hefur sýnt sig getur
brugðið til beggja
vona í íþróttum.
Bertrand gille
franski línumaðurinn
Bertrand gille er einn
besti línumaður í heimi
í dag. Hann sést hér í
góðu færi gegn
spánverjum í úrslitum
Evrópumótsins í fyrra.
a-riðill
B-riðill
árni sTefánsson
spáir í liðin og riðlana