Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Síða 34
Ólympíumeistarar Króata mæta
með firnasterkt lið á HM í Þýska-
landi. Króatar unnu Þjóðverja í úr-
slitaleik Ólympíuleikanna í Aþenu
árið 2004. Með þeim í F-riðli eru
Rússar, Marokkómenn og Kóreu-
menn. „Ég held að Króatar vinni
þennan riðil, Rússar verða í öðru,
Kórea í þriðja og Marokkó í fjórða.
Króatía er með geysilega skemmti-
legt lið og er klárlega eitt af stóru
liðunum í þessari keppni. Þeir urðu
að vísu fyrir áfalli þegar markvörð-
ur þeirra Vlado Sola meiddist en
þeir eru með aðra leikmenn sem
fylla það skarð og ég held að þeir
verði með eitt af sterkustu liðunum
í keppninni,“ sagði Árni.
Árni spáði því jafnframt að
Rússar fylgdu Króötum upp úr riðl-
inum. „Rússar fara áfram úr þess-
um riðli en ég held að þeir séu
ekki nægilega sterkir til að vera í
einhverri topp-
baráttu í þessu
móti. Kórea er
með stórskyttuna Yoon, sem er
geysilega öflugur, en ég held að
það dugi þeim ekki til að komast
áfram.“
Rússar voru stórþjóð í hand-
bolta fyrir fáum árum en hafa dal-
að mikið undanfarin ár. „Rússar
eru búnir að vera að byggja upp
nýtt lið og eru með mikið úrval af
handboltamönnum í Rússlandi.
Þeir eru með mjög stóra og öfluga
leikmenn en ég tel að þeir séu ekki
nægilega öflugir til að vera í topp-
sætunum,“ sagði Árni.
föstudagur 19. janúar 200734 Sport DV
E-riðiLL
H m í þ ý s k a l a n d i 2007
Danmörk
noregur
ungverjalanD
angóla
Hér er leikið:
ostseehalle (Kiel)
Heimavöllur Kiel-liðsins og tekur um
11 þúsund manns í sæti. Opnuð árið
1952 eftir að hafa verið breytt úr
flugskýli í íþrótta- og tónlistarhöll. Ein
af stærstu íþróttahöllum Þýskalands.
fylgist með:
michael knudsen
(Danmörk)
Lék undir stjórn Viggós
sigurðssonar hjá flensburg
fyrr í vetur. Mjög leikreyndur en hann
á 148 leiki að baki og hefur skorað í
þeim 479 mörk.
jan thomas lauritzen
(Noregur)
samherji Knudsens hjá
flensburg í Þýskalandi.
Verður 33 ára 6. febrúar og er
gríðarlega leikreyndur. Leikreyndasti
maðurinn í landsliðshópi norðmanna
með 208 leiki að baki.
leikirnir:
laugardagur 20. janúar
KL. 17.15 noregur - angóla ___ - ___
KL. 19.15 danmörk - ungv. ___ - ___
sunnudagur 21. janúar
KL. 17.15 angóla - danm. ___ - ___
KL. 19.15 ungv. - noregur ___ - ___
mánudagur 22. janúar
KL. 17.15 ungv. - angóla ___ - ___
KL. 19.15 danm.- noregur ___ - ___
lokastaða:
1. sæti: ________________ stig: ___
2. sæti: ________________ stig: ___
3. sæti: ________________ stig: ___
4. sæti: ________________ stig: ___
F-riðiLL
H m í þ ý s k a l a n d i 2007
króatía
rússlanD
marokkó
kórea
Hér er leikið:
Porsche arena (Stuttgart)
glæný höll í stuttgart sem tekur sex
þúsund manns í sæti.
fylgist með:
ivano Balic (Króatía)
Árið 2003 var Balic valinn
handboltamaður ársins
og hann var einnig valinn
besti leikmaðurinn á Evrópumótinu í
sviss á síðasta ári. Hann er án efa einn
besti handknattleiksmaður í heimi.
Balic er 27 ára og spilar með Portland
san antonio á spáni.
kyung-shin yoon (Kórea)
Hefur lengi vel verið besti
leikmaður Kóreu í
handbolta. Leikur með
Hamburg í Þýskalandi og setti
nýverið met þegar hann skoraði 18
mörk í eina og sama leiknum í þýsku
úrvalsdeildinni.
leikirnir:
laugardagur 20. janúar
KL. 15.00 Króatía - Marokkó ___ - ___
KL. 17.00 rússland - Kórea ___ - ___
sunnudagur 21. janúar
KL. 15.00 Marokkó - rússl. ___ - ___
KL. 17.00 Kórea - Króatía ___ - ___
mánudagur 22. janúar
KL. 17.00 Marokkó - Kórea ___ - ___
KL. 19.00 Króatía - rússland ___ - ___
lokastaða:
1. sæti: ________________ stig: ___
2. sæti: ________________ stig: ___
3. sæti: ________________ stig: ___
4. sæti: ________________ stig: ___
Noregur og Danmörk hafa oft
eldað grátt silfur á íþróttavellinum
og það verður forvitnilegur slagur
á milli þessara þjóða í lokaumferð
E-riðils. Hvor-
ug þessara þjóða
hefur riðið feit-
um hesti frá stórmótum í handbolta
undanfarin ár en auk þeirra munu
Ungverjar berjast um sæti í milliriðl-
inum að mati Árna.
„E-riðill er hörkuriðill. Norð-
menn, Danir og Ungverjar koma til
með berjast um tvö efstu sætin. Ang-
óla er litla liðið í þessum riðli. Í fyrstu
umferð er held ég bara úrslitaleikur
um hvort liðið fer áfram, Danmörk
eða Ungverjaland.
Norðmenn eru að koma upp með
mjög skemmtilegt lið og ég spái því að
þeir vinni þennan riðil. Síðan er það
bara úrslitaleikur strax í upphafi um
hvort liðið kemst áfram, Danir eða
Ungverjar. Það er mikil handbolta-
hefð hjá Ungverjum og þeir búa að
því að flestir leikmennirnir leika með
sama félagsliðinu, Veszprem. Lands-
liðið er byggt upp á þeim leikmönn-
um og þeir hafa verið með hörkulið
á Evrópumælikvarða þannig að leik-
mennirnir þekkjast mjög vel.
Danir eru líka með mjög skemmti-
legt lið og ég vona að Danir og Norð-
menn fari áfram úr þessum riðli, þó
Ungverjarnir gætu strítt þeim báðum
töluvert,“ sagði Árni sem taldi Norð-
menn standa Dönum framar í hand-
bolta í dag.
„Norðmenn eru búnir að vera að
gera mjög góða hluti að undanförnu í
að byggja upp landslið sitt
og ég held að þeir verði
með mjög skemmti-
legt lið á þessu móti.
Ég held þeir séu nú
ekki með lið til að
fara alla leið í
undanúrslit
en þeir gætu
endað í sæt-
unum þar á
eftir,“ sagði
Árni.
norðurlandaþjóðirnar
noregur og Danmörk
leika í e-riðli og má fast-
lega búast við hörkuvið-
ureign þegar þær þjóðir
mætast.
Króatar eru sigurstranglegir
stórþjóðirnar
króatía og rússland
mætast í f-riðli á
Hm og munu að öll-
um líkindum báðar
komast í milliriðil.
e-riðill
Skandinavíuslagur
af bestu gerð
mirza Dzomba Leikmaður Króata
er einn öflugasti hornamaður
heims og samherji Ólafs stefáns-
sonar hjá Ciudad real. Hann hefur
skorað 648 mörk í 161 landsleik.
d-riðill
svifið hátt Laszlo nagy,
leikmaður Barcelona, er
gríðarlega öflugur
handboltamaður og hann
mun reynast frændum
vorum erfiður ljár í þúfu.
árni stefánsson
sPáir í liðin og riðlana
joachim Boldsen Verður í
eldlínunni hjá dönum á HM
en þeir eru í sterkum riðli.