Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Page 38
B
ikarmeistarar Liverpool fá
Englandsmeistara Chel-
sea í heimsókn á Anfield.
Liðin eru í öðru og þriðja
sæti í deildinni, Chelsea í
öðru með 51 stig en Liverpool 8 stig-
um á eftir. José Morinho, hinn um-
deildi stjóri Chelsea, hefur mikið ver-
ið í fjölmiðlum að undanförnu. Fullyrt
hefur verið að hann ætli sér að yfirgefa
Chelsea þegar tímabilið er búið. Mor-
inho getur þó væntanlega stillt þeim
John Terry og Peter Chec upp í leikn-
um en liðið hefur saknað þeirra
félaga gríðarlega. Karl
H. Hillers sem er
formaður Chelsea-
klúbbsins hér á Ís-
landi er bjartsýnn
á gott gengi sinna
manna en viður-
kennir að Chelsea
muni eiga erfiðan
leik fyrir höndum.
„Ef Morinho getur valið
þá (John) Terry og (Peter)
Chec í liðið þá er ég mjög
bjartsýnn á gott gengi þó að
Liverpool sé alltaf erfitt heim
að sækja.“ Nýliðar Chelsea, hafa að
flestra mati ekki staðið undir vænt-
ingum. Karl er sammála því.
„Ég held að enginn þeirra hafi ver-
ið að gera eithvað af viti, það verð ég
bara að segja alveg eins og er. Það er
kannski markvörðurinn Hilario sem
hefur staðið sig en maður bjóst nú
ekki við miklu af honum. Hann er eng-
inn stjörnuleikmaður, en hann hefur
ekki gert einhver glappaskot
heldur. Schevchenko virk-
ar alveg óskaplega þungur,
þetta er stórgóður leikmað-
ur en einhvern veginn virð-
ist hann ekki ná sér á strik.
Ballack hefur heilt yfir valdið
vonbrigðum, einn leikinn bölvar
maður honum en þann næsta held-
ur maður að hann sé að fara að ná sér
á strik en síðan gerist lítið. Mér finnst
síðan Wayne Bridge betri leikmaður
en Ashley Cole. Ég er hins vegar alltaf
bjartsýnn og segi 0-2 fyrir Chelsea.“
Jón Óli Ólafsson, formaður stuðn-
ingsmannaklúbbs Liverpool hér á Ís-
landi, segist verða sáttur ef Liverpool
haldi markinu hreinu og spáir 2-0 fyr-
ir sína menn. „Liðin hafa
náttúrulega mæst alveg
ótrúlega oft á undan-
förnum árum, hins vegar
hefur Rafa Benitez aldrei
unnið Chelsea í deild-
inni, það gengur betur hjá
þeim í bikarleikjum, deild-
arbikar, FA-bikarnum og meist-
aradeildinni.“ Nýju mennirnir í Liver-
pool hafa flestir náð að setja mark sitt
á liðið en Jón segist sjá mikla framtíð
í Daniel Agger, danska varnarmann-
innum. „Það er svona eins og hann
hafi verið í Liverpool-liðinu í mörg ár,
maður sér að honum líður vel í rauðu
treyjunni. (Jermaine) Pennant hefur
ekki alveg náð að heilla mig, ég hélt að
það myndi koma meira út úr honum,
en ég er hrifinn af (Craig) Bellamy og
(Dirk) Kuyt. Þeir eru magnaðir fram-
herjar. Ég er alltaf bjartsýnn fyrir leiki
Liverpool og spái 2-0,“ segir Jón Óli að
lokum, en reikna má með hörkuleik á
Anfield Road á laugardag.
Hvað gerist á Emirates?
Mikil eftirvænting hefur ríkt eftir
leik Arsenal og Manchester United á
sunnudag. Manchester United hefur
6 stiga forskot á Chelsea sem er í öðru
sæti. Arsenal hefur hlotið 42 stig og
er í fjórða sæti og mætir með
mikið sjálfstraust eftir
gott gengi að undan-
förnu.
Óstöðug-
leiki hefur ein-
kennt lið Arsen-
al á þessari leiktíð,
sem er kannski ekki
skrýtið því liðið hef-
ur á undanförnum tveim-
ur árum misst marga reynslu-
mikla menn. Patrick Viera fór
til Juventus, Sol Campell til Port-
smouth, Robert Pires til Villarreal
sem og Pasqual Cygan og svo mætti
áfram telja. Reynsluna sem hvarf úr
liði Arsenal með þessum mönnum
hefur Arsene Wenger bætt upp með
ungum og gríðarlega efnilegum
leikmönnum sem hann er naskur
að finna. Þannig hefur hann iðulega
keypt leikmenn sem eru rétt um tví-
tugt, jafnvel yngri og flestir eru þeir
óþekktir.
Sigurður Hilmar Guðjónsson
fréttastjóri á arsenal.is er bjartsýnn
eftir góða leiki hjá Arsenal að und-
anförnu. „Manchester United hefur
reyndar haft lag á því að koma Arsenal
niður á jörðina eftir að vel hefur geng-
ið, eins og til dæmis þegar það lauk 49
leikja hrinunni hjá okkur, en ég hef trú
á mínum mönnum. Liðið hefur spil-
að vel að undanförnu og stendur sig
alltaf vel í stórleikjunum, þannig höf-
um við ekki tapað á móti efstu þremur
liðunum Liverpool, Manchester Unit-
ed og Chelsea og svo er Arsenal nátt-
úrulega taplaust á Emirates. Einhvern
tímann verður allt fyrst en það verður
ekki núna. Ég spái 2-0 fyrir Arsenal og
að Robin Van Persie skori bæði.“
Manchester United hefur leik-
ið mjög vel að undanförnu og með
Cristiano Ronaldo, Paul Scholes,
Nemanja Vidic og fleiri í góðu formi
hefur liðið verið á toppnum nánast
frá upphafi deildarinnar. Steinn Óla-
son er formaður Manchester United-
klúbbsins á Íslandi og honum líst vel
á leikinn á sunnudag. „Ég er náttúru-
lega hliðhollur mínum mönnum og
vonast eftir sigri. Við eigum harma að
hefna eftir leikinn í haust og ég vona
að menn verði klárir í slaginn. Hins
vegar er Arsenal verðugur keppinaut-
ur og unglingaliðið gerði aldeilis fína
hluti í deildarbikarnum. Ég spái Un-
ited sigri og meðan við skorum fleiri
mörk en andstæðingarnir þá er ég
sáttur. Það þarf ekkert meira til að
gleðja mig í þessum leik.“
benni@dv.is
Hvar spilar Gerrard? Verður örugglega
í liði Liverpool á laugardaginn en hvar á
miðjunni veit enginn.
Terry aftur í liðið? Verður John Terry í
liði Chelsea á laugardaginn?
fösTudagur 19. Janúar 200738 Sport DV
Fjögur eFstu
liðin mætast
Tveir stórleikir verða í ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu um helgina. Bikar- og Englandsmeistararnir mæt-
ast á Anfield og erkióvinirnir í Arsenal og Manchester
United mætast í fyrsta sinn á Emirates-vellinum.
Thierry Henry Hefur
verið frábær eftir að hann
snéri aftur í lið arsenal.
José Morinho getur að öllum
líkindum kallað á þá Peter Chec
og John Terry aftur í liðið.
Rafa Benitez
Hefur aldrei unnið
Chelsea í deildinni.
Wayne Rooney Lífið er ekki alltaf dans á rósum hjá rooney. Hér er hann í leik á móti Everton.