Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Síða 56
Menning Leikfélag Selfoss frumsýnir í kvöld og frumflytur á Íslandi safn einþáttunga og smásagna eftir Anton Tsjekhov undir heitinu Hnerrinn. Hnerrinn er 66. verk Leikfélags Selfoss, en félagið hefur starfað óslitið frá árinu 1958 og hefur alla tíð verið einn af máttar-stólpum menningarstarfsemi í sveitarfélaginu. Leikstjóri er Hörður Sigurðarson en hann þýddi einnig enska leikgerð Michaels Frayn.
Tsjekhov á Selfossi
U m s j ó n : K o r m á k u r B r a g a s o n N e t f a n g : k o r m a k u r @ d v . i s
Spurningin um eilíft líf
leiklist
föstudagur 19. janúar 200756 Helgarblað DV
Það voru stúkurnar Trúföst og
Ísafold sem létu byggja Samkomu-
húsið árið 1906. Húsið er eitt helsta
kennileiti Akureyrar, glæsilegt og
háreist og þar hefur Leikfélag Akur-
eyrar skrifað merkan kafla í leiklist-
arsögu Íslendinga samfleytt í nær
heila öld, en Leikfélag Akureyrar
verður sjálft hundrað ára á næsta
ári.
Akureyrarbær keypti húsið af
templurunum árið 1917 en Leik-
félag Akureyrar hefur alla tíð rek-
ið starfsemi sína þar og eru afnot af
húsinu hluti af styrk Akureyrarbæj-
ar til leikfélagsins. Fyrsta leiksýn-
ingin á fjölum hússins var frumsýnd
20. janúar 1907, Ævintýri á göngu-
för, og leikstýrði Guðlaugur bæj-
arfógeti sýningunni. Þá var ekkert
eiginlegt leikfélag starfandi á Akur-
eyri, en einstaklingar og hópar léku
og skemmtu áhorfendum. Leikfélag
Akureyrar (hið eldra) var stofnað ári
síðar, og síðan þá hefur verið leikið
nær óslitið í húsinu.
Hátíðarsýning
„Þetta er merkisafmæli enda
hefur þetta hús verið allt í öllu hér í
bænum í hundrað ár. Það voru gerð-
ar miklar endurbætur á því 2004 og
byggð viðbygging á tveimur hæð-
um eftir endilangri vesturhlið húss-
ins. Aðstaða fyrir leikara varð þá
mun betri en áður var og við feng-
um Rýmið, annað leiksvið, þar sem
Karíus og Baktus er sýnt núna. Svo
er gert ráð fyrir að við setjum upp
eina sýningu í nýja menningarhús-
inu á ári þannig að við erum smám
saman að færa út kvíarnar. Hjarta
leikfélagsins og aðalstarfsemi verð-
ur samt áfram í Samkomuhúsinu. Í
tilefni af afmælinu verður þessi sýn-
ing á Svörtum ketti eins konar há-
tíðarfrumsýning og aðalatriðið í af-
mælishaldinu, en við ráðgerum líka
að vera með leiklestur á Ævintýri á
gönguför bráðlega. Aðsókn á sýn-
ingar hefur verið gríðarlega góð og
í raun aldrei betri,“ segir Magnús
Geir leikhússtjóri.
Vinsæll höfundur
Nokkur verka Martins MacDon-
agh hafa verið sýnd hér á landi en
hann þykir meðal merkari höfunda
Breta nú um stundir. Verk hans ein-
kennast af svörtum ádeiluhúmor
og þykir hann skína í gegn í meira
mæli í þessu verki en fyrri verk-
um hans. Leikritið var valið gam-
anleikrit ársins þegar þegar það
var frumsýnt fyrir fjórum árum og
gagnrýnendur á Broadway eru yfir
sig hrifnir en leikritið var frumsýnt
þar í vor.
„Þetta er mjög fyndið leikrit en um
leið gróft og subbulegt. Persónurnar
eru vitgrannar en um leið brjóstum-
kennanlegar. Sagan er reyfarakennd,
jafnvel eins og vestri í uppbyggingu,
en umfjöllunarefnið er um leið áleit-
ið og húmorinn flugbeittur. Það eru
byssur og gildrur og ástarsaga og allt
heila klabbið en útkoman verður hin
besta skemmtun.“
kormakur@dv.is
Þjóðleikhúsið frumsýnir Sælueyjuna eftir Jacob Hirdwall í Kassanum í kvöld:
Flautað
í salnum
Stefán Höskuldsson flautu-
leikari og rússneski píanó-
leikarinn Elizaveta Kopelman
efna til tónleika í Salnum í
Kópavogi í kvöld. Á efnisskrá
eru verk eftir Carl Philipp Em-
anuel Bach, Fauré, Debussy og
Prokofiev.
Stefán vakti ungur at-
hygli fyrir flautuleik sinn en
hann starfar nú sem fastráð-
inn flautuleikari í hljómsveit
Metropolitan-óperunnar í
New York, valinn úr hópi 350
umsækjenda. Stefán er nú
mættur til leiks í Salinn ásamt
eiginkonu sinni Elizavetu
Kopelman en hún frumflutti
allar prelúdíur og fúgur meist-
ara Sjostakovítsj fyrir píanó á
tvennum Tíbrár-tónleikum í
nóvember síðastliðnum.
Nýárstón-
leikar tríós
Reykjavíkur
Árlegir
nýárstón-
leikar Tríós
Reykjavík-
ur verða
í Hafnar-
borg, menn-
ingar- og
listastofn-
un Hafnar-
fjarðar á sunnudag. Elín Ósk
Óskarsdóttir sópransöngkona
og bæjarlistamaður Hafnar-
fjarðar árið 2006 verður gestur
tríósins á tónleikunum.
Fyrri hluti tónleikanna
verður að mestu helgaður Ed-
vard Grieg, en í ár verður öld
liðin frá andláti hans. Tríó-
ið mun leika fjöruga dansa
og Elín Ósk syngja nokkur af
frægustu sönglögum hans,
meðal annars Söng Sólveigar.
Heimsfrumsýning á glænýju verki sem gerist á
Íslandi og fjallar um siðferðileg álitamál í sam-
tímanum verður í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í
kvöld. Kaldan haustmorgun finnst maður uppi á
hálendinu nær dauða
en lífi. Hann krefst
þess að ná tali af um-
deildum forstjóra íslensks erfðagreiningarfyrir-
tækis og trúir honum fyrir mikilvægu leyndar-
máli. Ung og metnaðarfull vísindakona blandast
í málið og flókinn vefur spinnst um þau þrjú og
brátt er framtíð mannkyns í húfi. „Þessar þrjár
persónur mynda þríhyrning í verkinu, eilífi mað-
urinn, vísindamaðurinn og dauðvona stúlkan. Í
kringum samskipti þeirra vakna síðan spurning-
ar eins og hvar liggur víglínan í vísindum í dag,
hver gætir þekkingarinnar, hver ræður yfir henni
eða hver á hana? Þetta er svona skemmtileg
blanda af heimildarverki og vísindaskáldsögu
eða spennutrylli,“ segir María Ellingsen leik-
stjóri. Höfundur verksins er Svíinn góðkunni
Jacob Hirdwall.
Draugar
í tjarnarbíói
Leikfélag MH frumsýnir
Draugadans í Tjarnarbíói ann-
að kvöld. Verkið er sviðsetn-
ing af Djáknanum á Myrká og
Miklabæjar-Sólveigu og fjölda
annarra þjóðsagna. Sögurnar
fléttast saman og Bakkabræð-
urnir Gísli, Eiríkur og Helgi
létta á atburðarásinni með
sínum hætti. Draugarnir öðl-
ast líf með nútímasviðstækni
og leika ljósum logum um
húsið, studdir af kór og hljóm-
sveit. Um fimmtíu nemendur
skólans taka þátt í sýningunni.
Helgi Rafn semur tónlistina.
Leikgerð er eftir Jón Gunnar
Þórðarson, sem einnig er leik-
stjóri.
Leikfélag Akureyrar
frumsýnir leikritið
Svartur köttur eftir
Martin MacDonagh á
hundrað ára afmælis-
degi leiksýninga í Sam-
komuhúsinu á morgun.
Magnús Geir Þórðarson
segir að aðsókn á sýn-
ingar LA hafi farið
fram úr öllum vonum á
síðasta leikári og leikfé-
lagið sé í mikilli sókn.
Kolsvört kómedía á afmælisdaginn
leiklist
María Ellingsen
Leikstjórinn segir
Sælueyjuna vera
blöndu af
vísindatrylli og
heimildarverki.
MAGNÚS GEIR
ÞÓRÐARSON
Leikhússtjórinn segir
La vera í mikilli sókn
og lofar skemmtilegri
afmælissýningu.
Svartur köttur Leikritið, sem þykir
bæði djarft, gróft og blóðugt með
flugbeittum húmor, hefur fengið
frábæra dóma erlendis en þykir ekki
við hæfi barna.