Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Page 59

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Page 59
DV Helgarblað föstudagur 19. janúar 2007 59 auganu fær bílpróf,“ bendir hann á. „Ég sé eingöngu mun á birtu og myrkri. Þess vegna sé ég sko aldrei sætustu stelpurnar,“ segir hann og hlær glaðlega. Þau mæðgin eru miklir vinir og Auður segir það vera sér mikils virði. „Þegar Bergvin flutti hingað í íbúð Blindrafélagsins, sextán ára gamall, fannst mér ég alveg eins geta sent hann einan til Kína. Þetta reyndist mér erfiðara en honum...“ „Já, blessuð vertu, mér fannst þetta frábært“ skýtur Bergvin inn í. „Ég var allt í einu aleinn í íbúð, laus við tuðið í mömmu og pabba, gat djammað þegar ég vildi, sofið þegar ég vildi og tekið til þegar mér hent- aði. En svo þroskaðist ég og nota nú hvert tækifæri til að heimsækja þau!“ Skoðaði hús fyrir foreldra sína Þegar hann heimsótti foreldra sína um helgar las Auður fyrir hann úr blöðunum. Einhverju sinni sagði hún honum frá fasteignaverði í Reykjavík og til samanburðar að það væri til sölu glæsilegt hús í Grindavík, mun ódýrara en á Stór-Reykjavíkur- svæðinu. „Það næsta sem ég vissi var að Bergvin hringdi og sagðist vera á leið til Grindavíkur að skoða húsið,“ seg- ir hún. „Hann fór með vini sínum og föður hans en þegar seljandinn sagðist ekki ætla að sýna þeim upp á loft, því þar væri svo mikið myrk- ur, sá Bergvin húmorinn í málinu. Við keyptum húsið – óséð getum við sagt!“ segir hún. Bergvin reytir af sér brandar- ana og það er eins og það passi ein- hvern veginn ekki að ræða við hann um blinduna. En þeirri umræðu er smyglað inn. „Eftir að ég missti sjónina á vinstra auga hélt ég áfram að keppa í íþróttum, en þegar ég var alveg orð- inn blindur vissi ég auðvitað að nýju takkaskórnir mínir færu bara upp í hillu,“ segir hann. „En ég ákvað að láta þessa breytingu ekki hafa nei- kvæð áhrif; lífið myndi halda áfram og ég fór að keppa í frjálsum íþrótt- um. Þar setti ég Norðurlandamet í langstökki og var ekki langt frá að ná lágmarki á heimsmeistaramót- ið í kúluvarpi. Nú hef ég nánast ekki hreyft mig í þrjú ár...“ Þegar ég spyr hann hvort hann hafi ekki fengið að heyra „æ, æ, aum- ingja þú“ tóninn, skellihlær hann. „Jú, Anna mín, ég fékk sko að heyra hann!“ segir hann og það er svo sjarmerandi við þennan strák að þegar hann ávarpar mig með nafni segir hann alltaf „Anna mín“. „Í litlu samfélagi eins og Vest- mannaeyjum fann ég fyrir mikilli samkennd og þar sem aldrei hafði verið blindur nemandi við grunn- skólann þar fyrr, vissu forráðamenn skólans í rauninni ekkert hvað ætti að gera. En sérkennslufulltrúinn í bæn- um Erna Jóhannesdóttir, sem hafði kennt mér á mínum yngri árum, tók ákvörðun um að við myndum bara henda okkur ósynd út í djúpu laugina og ég lauk 10. bekk frá Vest- mannaeyjum. En þessi frásögn mín má ekki hræða fólk. Líkurnar á að fá þennan vírus í augun eru jafnmiklar og að vinna tvisvar í Víkingalottóinu í sama mánuði.“ Og Bergvin leggur sitt af mörk- um til að fræða ungt fólk um heim blindra. „Ég fer í grunnskólana og til KFUM og K og segi frá reynslu minni, hvernig það er að vera blindur, hvað maður getur gert og hvað ekki og hvernig á að umgangast blinda.“ Batman-bolurinn varð að pallíettubol Þegar hér er komið sögu er „sorg- arkaflanum“ lokið af hálfu Bergvins. Honum finnst miklu skemmtilegra að segja fyndnar sögur. „Ég hafði kynnst stelpu frá Ísa- firði á spjallrás og við ákveðið að hún kæmi á Þjóðhátíð í Eyjum. Frá því sú ákvörðun var tekin og fram að Þjóð- hátíð varð ég blindur, en við ákváð- um að halda okkur við planið. Við höfðum aldrei sést og það var fynd- ið á flugvellinum þegar mamma hnippti í mig hvað eftir annað og spurði: „Heldurðu að þetta sé hún?“ Ekki tók svo betra við hjá henni móð- ur minni þegar ég bauð stelpunni í bæjarferð. Ég staurblindur og hún rataði ekki rassgat! Þetta var frábær bæjarferð.“ Öðru sinni þegar Bergvin hafði bókað sig með uppistand á Þjóðhá- tíð bað hann mömmu sína að kaupa fyrir sig bleikan bol með pallíettum. Hann neitaði að segja henni til hvers hann ætlaði að nota hann. „Ég vissi ekkert hvað honum gekk til með þessu, þangað til ég horfði á hann á sviðinu,“ segir Auður. „Þar sagði hann frá því hversu áríðandi það væri að geta treyst fólkinu sem stend- ur þeim blinda næst. Þannig hafi hann beðið mömmu sína að kaupa fyrir sig Batman-bol og það hafi hún gert. Svo renndi hann peysunni frá og við blasti þessi bleiki bolur með pallí- ettunum. Það er gott að geta verið efni í brandara!“ segir Auður og bætir við annarri sögu: „Við Bergvin fórum á krá á menningarhátíð í Eyjum og við borðið hjá okkur settist kona, nýflutt í bæinn. Hún spurði hvort þetta væri sonur minn og hvort hann væri svona drukkinn, hann væri svo skrýtinn til augnanna. „Nei, hann er ekki drukk- inn, hann er blindur,“ svaraði ég. „Guð – og þurftirðu þá að læra táknmál?!“ spurði konan.“ Þau mæðgin veltast um af hlátri og þau geta greinilega sagt endalausar sögur af viðbrögðum fólks við blindu Bergvins. En þær ætlar hann að geyma fyrir uppistand, svo við snúum okkur örstutt að helsta hugðarefninu, stjórn- málunum. „Ég má varla vera að því að bíða í mörg ár eftir að komast á þing,“ seg- ir hann. „Það þarf að taka Trygginga- stofnun ríkisins og stokka það kerfi al- veg upp. Öryrkjar og ellilífeyrisþegar eiga ekki að borga skatt af sínum tekj- um, sérstaklega ekki ellilífeyrisþegar sem hafa borgað skatt af sínum tekj- um í fimmtíu ár. Svo liggur á að taka samgöngumálin í kjördæminu al- gjörlega í gegn, það þarf að koma upp þessum 700 metra göngum í Reynis- fjallinu, drífa í að byggja bryggju upp í Bakkafjöru fyrir Vestmannaeyinga og það þarf að taka þennan ljóta skatt, stimpilgjöldin, út af dagskrá. Ég er með langan lista af óskaverkefnum.“ Vínheildsali Hann er sáttur við söfnunina sem hann stóð fyrir í síðustu viku. „Ég seldi 65 pakka af hundrað og stóð svo fyrir uppistandi á Hverfis- barnum um kvöldið,“ segir hann. „Ég þekki svo marga í þessum bransa sem voru tilbúnir að leggja mér lið og langar að fá að koma á framfæri hér þökkum til þeirra allra, sérstak- lega Atlantsolíu. Hljómsveitin The Lost Tote, Týnda halakartan, spilaði, en í henni er sjónskertur albínói frá Kirkjubæjarklaustri. Ég gerðist auð- vitað umboðsmaður hljómsveitar- innar á staðnum!“ Á gólfinu í ganginum hjá Bergvin standa nokkrir kassar fullir af áfeng- isflöskum. Miðað við hreinskilni hans ákveð ég að spyrja hann hreint út: „Drekkurðu svona mikið að þú þurfir að vera með vínflöskur í kassavís?“ „Nei, ég er vínheildsali! Og veistu það, að það er með vín eins og sæl- gæti. Ef maður á nóg af því langar mann ekki í það!“ segir hann og bros- ir. „Málið er að ég er alltaf að finna mér eitthvað að gera. Foreldrar mínir eru með sláttufyrirtæki í Grindavík og í haust þurftum við að finna eitthvað nýtt að sýsla við. Við keyptum því hlut í vínheildsölu sem við nefndum „Víney“ og ég er alltaf með augun opin fyrir nýjum tækifærum. Svo ákvað ég að fara að flytja inn klósettpapp- ír, hringdi í 1811 og fékk samband við fyrirtæki um alla Evrópu. Hélt reynd- ar að ódýrast væri að skipta við Rúss- land, en bestu viðskiptin reyndust vera í Álaborg og þaðan flyt ég nú inn hreinlætispappír. Ekkert selst bet- ur en klósettpappír í fjáröflunarskyni fyrir íþrótta- og æskulýðsfélög,“ seg- ir hann og bætir við að þeir sem vilji kaupa af honum megi bara hringja í hann, númerið sé skráð hjá 118. „Vínsalan fer hins vegar að mestu fram gegnum síma hjá mér, því eftir að ég hef farið rúntinn á pöbba bæj- arins og kynnt vínið, þá er það seg- in saga að ég þarf bara að athuga lagerstöðuna það sem eftir er,“ seg- ir hann fullur bjartsýni. „Nú stefni ég á að komast á enskuskóla í Cam- bridge svo ég geti orðið stúdent með sóma og framtíðardraumurinn er að læra viðskipta- og markaðssálfræði. Heyrðu, ég á líka eftir að segja þér af því þegar ég sótti um starf á leikskóla. Atvinnumálafulltrúi fatlaðra í Vest- mannaeyjum taldi litlar líkur á að ég gæti fengið slíkt starf. Ég gæti nefni- lega stigið á börnin...“ annakristine@dv.is Ætlar að verðafyrsti blindi forsÆtisráðherrann „Flugfreyjunni var kunnugt um að ég væri blindur, þannig að um leið og ég var sestur í 2B kom hún og bauðst til að spenna á mig sætisbeltið og sagði mér hátt og skýrt frá öllum öryggisreglunum. Hún hefur auðvitað vitað sem var, að blindur maður heyrir ekki, og þess vegna hefði ég ekki getað heyrt hvað hún sagði í hljóð- nemann tveimur mínútum síðar!“ „Eftir að ég missti sjón- ina á vinstra auga hélt ég áfram að keppa í íþróttum, en þegar ég var alveg orðinn blind- ur vissi ég auðvitað að nýju takkaskórnir mínir færu bara upp í hillu. En ég ákvað að láta þessa breytingu ekki hafa nei- kvæð áhrif; lífið myndi halda áfram og ég fór að keppa í frjálsum íþrótt- um. Þar setti ég Norður- landamet í langstökki og var ekki langt frá að ná lágmarki á heimsmeist- aramótið í kúluvarpi.“ DV mynD Stefán

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.