Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Blaðsíða 62
Sakamál U m s j ó n : K o r m á k u r B r a g a s o n . N e t f a n g k o r m a k u r @ d v . i s föstudagur 19. janúar 200762 Helgarblað DV Laugardaginn 6. janúar myrti Martin Pedersen fyrrverandi sam- býliskonu sína og tvö börn þeirra, fjögurra og sex ára, í æðiskasti yfir að hún vildi ekki að þau flyttu sam- an á ný. Martin Pedersen var hand- tekinn á morðstaðnum eftir að hafa hringt í föður sinn. Faðirinn fór á staðinn og hringdi strax í lögregl- una þegar hann sá hvað hafði gerst. Martin lýsti atburðinum í réttinum í Sønderborg þar sem hann játaði verknaðinn og var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 24. janúar. Vildi fá konuna aftur Hann hafði farið á heimili fyrr- verandi sambýliskonu sinnar til að reyna að fá hana til að taka við hon- um aftur. Þegar hún neitaði rann á hann æðiskast og hann kyrkti hana. „Skyndilega klikkaði eitthvað í hausnum á mér. Ég kyrkti hana með báðum höndum og hélt föstu taki þegar hún féll í gólfið. Þegar hún var alveg kyrr, reis ég upp og spennti belti um hálsinn á henni. Það liðu sennilega um 10 mínút- ur meðan ég var að þessu,“ sagði Martin í réttinum. Engin ummerki fundust um að konan hefði veitt mótspyrnu en parið hafði farið inn í svefnher- bergi til að tala saman á meðan börnin sátu í stofunni og horfðu á teiknimynd. Myrti börnin í kjölfarið Eftir morðið fékk Martin sér síg- arettu áður en hann skar Søs dóttur sína á háls og kyrkti Julian bróður hennar. Bæði börðust fyrir lífi sínu og dóttirin var með skurði í lófum og á kinn. Martin reyndi eftir það að svipta sig lífi nokkrum sinnum áður en lögreglan kom en án ár- angurs. Hann hringdi til föður síns og sagði: „Ég er orðinn veikur, þau eru öll dáin.“ Faðirinn trúði honum ekki en fór á staðinn og gerði lög- reglunni viðvart þegar honum varð ljóst hvað gerst hafði. Það er hálft ár síðan Martin og sambýliskonan slitu samvistum en þau höfðu búið saman í mörg ár. Yvonne og börnin höfðu þá flutt í íbúðina þar sem morðin áttu sér stað. Danir eru yfir sig reiðir vegna úrsmiðs, sem ákærður er fyrir morðtilraun eftir að hafa varist ránstilraun. Skaut og særði þrjá ræningja Úrsmiðurinn Michael Woollhead í Kaupmannahöfn var orðinn þreyttur á sífelldum ránum og brást við með skothríð á þriðjudag- inn þegar þrír vopnaðir menn reyndu að ræna verslun hans. Ræningjarnir lögðu á flótta en tveir þeirra höfðu sjálfir samband við lögreglu og tilkynntu um atburð- inn. Lögreglan fann þá á bensín- stöð í nágrenninu, særða í bíl sínum, og voru þeir fluttir á sjúkrahús og eru nú ákærðir fyrir ránstilraun. Mennirnir eru frá Austur-Evrópu og voru á bíl með sænskum númeraplötum. Annar var með tvö skotsár á öxl og á hendi en hinn á upphandlegg. Lögreglan telur að þriðji ræninginn sé mikið særður en greinileg blóðslóð lá frá búðinni á flóttaleið hans. Að öllum líkindum hefur hann komist undan í bíl eða með fjórða vitorðsmanni, en leit að honum hefur enn ekki borið árangur. Búðareigandinn sjálfur særðist á öxl og telur lögreglan að skot hafi kastast af vegg og í öxl hans því vopn ræningjanna voru skaðlausar eftirlíkingar af byssum. Úrsmiðurinn kom fyrir dómara í morgun ákærður fyrir morðtilraun en neitar sök og segist hafa skotið í sjálfsvörn. Árið 2004 yfirbugaði hann ræningja sem hélt byssu að höfði frænku hans sem vinnur í búðinni. Hann skvetti á ræningjana heitu kaffi og barði þá síðan í höfuðið með stóru skrúfjárni þar til þeir flúðu. Michael Woolhead á yfir höfði sér margra ára fangelsisdóm verði hann fundinn sekur um morðtil- raun en lesendur dagblaða í Danmörku eru yfir sig reiðir vegna ákærunnar og heimta orðuveitingu í staðinn. Súpermódel í samfélags- þjónustu Dómstóll á Manhattan í New York dæmdi ofurfyrirsætuna Naomi Campbell til að sinna samfélagsþjónustu í fimm daga og til að greiða 363 dollara sekt, eða 25 þúsund krónur, fyrir að hafa hent síma í höfuð þjón- ustustúlku sinnar. Sauma þurfti fjögur spor í höfuð stúlkunnar en ástæða atburðarins mun hafa verið rifrildi vegna buxna sem Naomi vildi klæðast í viðtali hjá Opruh. Þegar Naomi var hand- tekin fyrir verknaðinn í mars 2006 mátti hún búast við allt að sjö ára fangelsi. Tvær aðrar þjónustustúlkur fyrirsætunnar hafa kært hana vegna svipaðra mála og reikna má með nýj- um réttarhöldum á næstunni ef sættir ekki nást áður en til þess kemur. KALDRifjAðuR MoRðingi reykti milli þess sem hann drap barnsmóður sína og börn. Myndin er sviðsett. Nokkur óhugnanleg afbrýðisemismorð hafa verið framin í Danmörku undanfarið en lögreglan telur að afbrýðisemi sé ástæðan fyrir sjötta hverju morði í Danmörku. Reykti á milli morðanna Grófum glæpum fjölgar Í skýrslu banda- rísku alrík- islögreglunnar, FBI, frá því í desember síðastliðnum eru birtar bráðabirgðaniðurstöð- ur yfir glæpatíðni í Bandaríkj- unum 2006. Þar kemur fram að á fyrstu sex mánuðum ársins hafi grófum glæpum, morð- um, nauðgunum og grófum lík- amsárásum, fjölgað um 3,7% á meðan þjófnuðum og brotum gegn eignarrétti hafi fækkað um 2,6%. Í skýrslunni kemur einnig fram að íkveikjum hafi fjölgað um 6,8% miðað við á sama tíma árið 2005. Bílþjófnuðum fækk- aði en ránum fjölgaði um 9,7% á landsvísu og mest í vestur- fylkjunum, eða 14,6%. Endalínumorðinginn ákærður Saksóknari í Maricopa-sýslu í Arisóna hefur gefið út ákæru í 74 liðum gegn Baseline-fjöldamorðingjanum svokallaða. Mark goudeau, fyrrverandi byggingaverkamaður, er grunaður um að hafa framið níu morð að yfirlögðu ráði, fimmtán nauðganir og ellefu mannrán frá ágúst 2005 til júní 2006 í Phoenix og nágrenni. Útför lög- reglumanns Starf lögreglumanna í Bandaríkjunum er óneitan- lega hættulegt. Útför lögreglu- mannsins Troys Chesley fór fram í Baltimore 16. janúar. Hann var skotinn til bana þegar hann hugðist koma í veg fyrir ránstilraun. Brand- on Grimes, tuttugu og eins árs, hefur verið ákærður fyr- ir morðið. Það er kaldhæðn- islegt að lögreglumaðurinn hafði nýlokið vakt sinni þegar hann var myrtur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.