Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Side 67

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Side 67
DV Helgarblað föstudagur 19. janúar 2007 67 Lífið eftir vinnu Föstudagur Laugardagur ÚthverFin RúnaR Júl á KRingluKRánni Rokksveit Rúnars Júl mun trylla lýðinn á Kringlukránni bæði föstudags- og laugardagskvöld. Ef einhver kann að rokka þá er það Keflavíkurkóng- urinn sjálfur enda hefur hann marg- oft verið útnefndur rokkari Íslands. SixtiES og VÍtamÍn á PlayERS Stuðboltarnir í Hljómsveitinni Sixties troða upp á Players í Kópavogi föstudagskvöld. Það verður enginn svikinn á því balli enda hafa þeir félagar verið að rokka saman í rúm tólf ár. Stemningssveitin Vítamín sér svo um laugardagskvöldið. glEði Í gRafaRVogi grafarvogsbúar þurfa ekki að leita langt yfir skammt. á gullöldinni mun húsbandið halda uppi stemningunni um helgina og á laugardagskvöld verður glitrandi stemning, að sögn eigenda á Klúbbnum við gullinbrú. Biluð StEmning á PRaVda Eitt sagði vitur maður: Ef það er ekki bilað, skaltu ekki gera við það. og það er einmitt hugsunarháttur Pravdamanna sem tefla sínum aðal- mönnum fram annað kvöldið í röð, en það eru þeir dj maggi flass og áki Pain. Booka Shade á Gauknum Þýska elektródúettinn Booka Shade verður aðalnúmerið á árs- listakvöldi útvarpsþáttarins Party Zone í kvöld. Þeir Walter Merziger og Arno Kammermeier hafa verið að gera það gott undanfarin ár og eru með þeim heitustu á elektró- senunni í dag. Þeir gáfu út plötuna Memento árið 2004 en slógu svo endanlega í gegn með plötunni Movements. Til dæmis er lagið Mandarine Girl af þeirri plötu í öðru sæti á árslista Party Zone. Fögnuðurinn verður haldinn á Gauki á Stöng og munu einnig koma fram íslensku danssveitirnar FM Belfast og Hairdoctor. Þá mun Jack Schidt, betur þekktur sem DJ Margeir, verða á efri hæðinni. En þar koma einnig fram dönsku plötusnúðapíurnar Miss Lori og Djuna Barnes sem og breski snúð- urinn Darren C. Miðaverð í forsölu er 1990 krónur og er hægt að nálg- ast miða á midi.is og í verslunum Skífunnar. Booka Shade Heitasta elektrógrúbba heims um þessar mundir. tEmPó á HVERfiS Plötusnúðurinn dj tempo sér um að halda hitanum í hámarki á Hverfisbarnum um helgina. tempo er ungur og óreyndur en segja margir að þarna fari einn efnilegasti plötusnúður bæjarins. BRynJaR máR mEð Villta SVEiflu Brynjar már er auðvitað á Sólon í kvöld, en kappinn lætur ekki flæma sig úr konungsríki sínu. Þessi maður veit hvað hann syngur í tónlist, þar sem hann er útvarpsmaður á fm 957. Vinsæl- asta tónlistin og villtasta sveiflan. tRommuR og tónliSt á oliVER Plötusnúðurinn JBK sér um laugardags- kvöldið á oliver og lætur ljós sitt skína sem aldrei fyrr. með honum verður trommar- inn addi sem passar upp á að tempóið haldi dansinum á gang- andi á methraða. tVÍEyKi á Sólon Þeir Rikki g og Brynjar már standa sína plikt við spilarana á Sólon á laugardaginn. Prúðir ungir herramenn sem kunna þá list að láta fólk dansa eins og morgundagurinn sé enginn. HiP-HoP á BaRnum triangle Productions kynnir rosalegt rapp á Barnum á laugardagskvöldið. fram koma the Beatmaking trooper, Steve Sampling, Vibe o’Razor, Rain og síðast en ekki síst Earmax. frítt inn, byrjar kl. 22 og lýkur um eittleytið. PlayBoy-PaRtÍ á naSa Haldið verður heljarinnar „playboy“- partí á skemmtistaðn- um nasa við austurvöll á laugardagskvöldið. algjörlega svæsið dæmi með nóg af skemmtiatriðum á gráu svæði. Plötu- snúðarnir Exos og dj darkness spila danstónlistina í botni. miðasala er í mótor og kostar 1000 krónur inn en 1500 við innganginn. flaSS fJöR á PRaVda Það verður nógu um að vera á Pravda í kvöld. Þá koma fram plötusnúðarnir dj maggi flass, sem þekktastur er fyrir störf sín á útvarpsstöðinni flass, og áki Pain sjálfur. En áki er einn duglegasti plötusnúður á Íslandi. alliR HRESSiR á HRESSó Stuðið er alltaf í hámarki á Hressingarskálanum. trúbadorarnir gotti og Eisi byrja kvöldið af krafti og henda í nokkra svakalega slagara. Svo tekur við enginn annar en dj Johnny, sprækur að vanda. mJöll á Kofanum Kofi tómasar frænda heitir núna Kofinn, en gleðin helst óbreytt. um helgina er það tinna mjöll sem sér um fjörið, bæði laugardag og föstudag. Hún spilar nokkurn veginn alla tónlist, svo lengi sem það er eitthvert fjör í gangi. oliVER Í Putalandi Það eru víst fá dansgólf sem verða jafntroðin og dansgólfið á oliver. Sérstaklega þegar plötsnúðurinn JBK er að spila, eins og raunin er í kvöld. JBK er ekki Jói B úr gullfoss og geysi, eins og margir halda. Hann er nú samt þrususnúður. áRni SVEinS á KB Partíljónið árni Sveins situr við stálborðin á Kaffibarnum í kvöld, en árni er í upphaldi hjá mörgum danselskandi Reykvíkingum. dustið rykið af dansskónum og dettið í gang. Playmo á PRiKinu Þeir franz og Kristó verða á sínum stað á Prikinu í kvöld eins og aðra föstudaga og byrja glamrið á gítarinn upp úr níu. Beint á eftir þeim kemur hinn þrautþjálfaði snúður dj Play- mobile. Rosalegt teiti í gangi. StEf Kominn á PRiKið Plötusnúður- inn dj Stef tekur sér frí frá Hverfisbarnum á laugardags- kvöldið og dettur inn á Prikið í staðinn. Stefið stendur ávallt fyrir sínu og hvetur alla til þess að mæta. dj andri spilar lög með the Eagles í upphafi kvölds.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.