Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Síða 68

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Síða 68
dóri dna segir: & U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s föstudagur 19. janúar 200768 Helgarblað DV tony Hawk’s Project 8 (PS2) Kameo: Elements of Power (XBOX360) justice League Heroes (PS2) Hitman Blood Money (XBOX360) Medal of Honor Heroes (PS2) Kíktu á þessaleikirtölvu The Shield kom út á Playstation og PC í vikunni. Vic Mackey Mættur Í vikunni gaf fyrirtækið Aspyr Media út leikinn The Shield á PC og PlayStation 2. leikurinn er byggður á samnefndum sjónvarpsþátt- um sem notið hafa mikilla vinsælda undanfarin ár og bregða leikmenn sér í hlutverk harðjaxlsins Vics Mackey. Fjölmargir leikarar úr þáttunum ljá persónunum rödd sína, þar á meðal Michael Chiklis sem talar fyrir Mackey sjálfan. The Shield þykir vandaður og flottur þriðju persónu skotleikur þar sem markmiðið er að halda götum borgarinnar örugg- um, hvort sem aðferðirnar eru fallegar eða ekki. 8 Milljónir spila WoW Tölvuleikjarisinn Blizzard entertainment sendi nýlega frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að hann hafi nú yfir 8 milljónir áskrifenda að netleik sínum World of Warcraft. Af þessum átta milljónum eru 3,5 milljónir í Kína, tvær í Norður-Ameríku og 1,5 í evrópu. World of Warcraft er því vinsælasti tölvuleikur í heimi í dag. Þeir sem spila leikinn ættu að geta fagnað, því 16. janúar kom út fyrsti viðbótarpakk- inn fyrir leikinn sem ber nafnið World of Warcraft: The Burning Crusade. legeNd OF ZeldA: TWilighT PriNCeSS frábær leikur sem svíkur engan. Ef lesendur hafa eitthvað velt því fyrir sér hvort það borgi sig að eign- ast Nintendo Wii þá er ástæðan kom- in hér. The Legend of Zelda: Twilight Princess er einfaldlega besti leikur ársins. Fyrir þá sem hafa spilað Zelda í gegnum tíðina mun þessi leikur ekki valda vonbrigðum. Hann fer svolít- ið hægt af stað og hafði ég áhyggjur af því fyrst að saga leiksins væri ekki nægilega sterk, en því lengra sem líð- ur á leikinn því sannfærðari verður maður um ágæti hans. Leikurinn minnir til að byrja með mikið á The Legend of Zelda: Ocarina of Time sem kom út á Nintendo 64, enda gerist leikurinn í sama umhverfi í fyrstu þótt því sé aðeins breytt. Eft- ir því sem líður á leikinn opnast nýir, áður óséðir heimar sem eru ótrúlega vel teiknaðir og er allt umfang frábært og grafík stórkostleg. Í leiknum sjálfum er heimurinn undirlagður svokölluðum ljósskiptum sem eru mörk heims ljóss og skugga. Spilandinn berst við að frelsa heim- inn undan þessum ljósskiptum en því dýpra sem hann grefur þeim mun dýpri og dekkri leyndarmál koma í ljós. Nýja Wii-stýrikerfið kemst frábær- lega til skila í leiknum og er ótrúlega gaman að beita sverðkunnáttu Links, því meira sem hún þróast. Mörgum skemmtilegum vopnum og auka- hlutum hefur verið bætt við. Helsti og í raun eini gallinn á leiknum er hvað höfuðkarlarnir í honum eru léttir, sérstaklega framan af, en það skemmir samt ekki ánægjuna af því að spila leikinn, sem einnig endist mjög vel. asgeir@dv.is 12,5 Milljarða Velta 2006 Tölvuleikjaiðnaðurinn er stærsta greinin innan skemmtanabransans og heldur áfram að vaxa. Á árinu 2006 var velta tölvuleikjageirans 12,5 millj- arðar Bandaríkjadala sem er 19% aukning frá árinu áður, sem verða að teljast alveg ótrúlegar tölur. Salan í desembermánuði einum saman nam 3,7 milljörðum dala. Aðalástæðan fyrir þessari gríðarlegu aukningu er tilkoma þriðju kynslóðar leikjatölvanna Xbox 360, Nintendo Wii og PS3. Bæði Xbox og Wii hafa selst gríðarlega vel á meðan PS3- vél Sony hefur ekki gert jafngóða hluti. Einstakur leikur sem er frábær viðbót í safn hinna klassísku Zelda-leikja. Leikurinn er mjög góð lyftistöng fyrir hina nýju Nintendo Wii Besti leikur ársins Wii Ævintýraleikur tölvuleikir HHHHH Legend of Zelda: Twilight Princess Tölvuleikjaiðnaðurinn hefur aldrei verið stærri en árið 2006. Nýlega tók tímaritið Forbes saman söluhæstu leiki ársins. Það var leikurinn Madden sem skaut öðrum ref fyrir rass, en hann kemur fyrir tvisvar á listanum, á bæði PS2 og Xbox 360. Af leikjasölu á Ís- landi er það World Of Warcraft sem trónir á toppnum. söluhæstu leikir ársins 20061 Madden nFl 07 Tölva: PlayStation 2 Íþróttaleikur Útgefandi: electronic Arts gefinn út í ágúst 2006 1,6 milljón eintök seld 2 kingdom of Hearts 2 Tölva: PlayStation 2 hlutverkaleikur Útgefandi: Square enix gefinn út í mars 2006 1,5 milljón eintök seld new super Mario Bros. Tölva: Nintendo dS „Platform“-leikur Útgefandi: Nintendo developer: Nintendo gefinn út í maí 2006 1,4 milljón eintök seld tom clancy’s Ghost recon: advanced Warfighter Tölva: Xbox 360 Skotleikur Útgefandi: Ubisoft gefinn út í mars 2006 890.000 eintök seld Grand theft auto: liberty city stories Tölva: PlayStation 2 Ævintýra-/hasarleikur Útgefandi: rockstar games gefinn út í júní 2006 810.000 eintök seld ncaa Football 07 Tölva: PlayStation 2 Íþróttaleikur Útgefandi: electronic Arts gefinn út í júlí 2006 770.000 eintök seld Madden nFl 07 Tölva: Xbox 360 Íþróttaleikur Útgefandi: electronic Arts gefinn út í ágúst 2006 760.000 eintök seld Brain age: train your Brain in Minutes Tölva: Nintendo dS Þrautir/spurningar Útgefandi: Nintendo gefinn út í apríl árið 2006 700.000 eintök seld elder scrolls iV: oblivion Tölva: Xbox 360 hlutverkaleikur Útgefandi: Take 2 interactive gefinn út í mars 2006 670.000 eintök seld Fight night round 3 Tölva: Xbox 360 Íþróttaleikur Útgefandi: electronic Arts gefinn út í febrúar 2006 620.000 eintök seld 3 4 5 6 7 8 9 10

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.