Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Qupperneq 70
Sáttur með
verðlaunin
Leikarinn Sacha Baron Cohen
er afar sáttur við að hafa unnið
Golden Globe-verðlaun, en verð-
launin hlaut hann fyrir besta leik
í aðalhlutverki, í gamanmynd eða
söngleik, fyrir kvikmyndina Borat.
Í þakkarræðu sinni gerði Cohen
mikið að gamni sínu og sagðist
meðal annars hafa átt skilið að
vinna þessi verðlaun fyrir mynd-
ina, því til dæmis hefði hann glímt
nakinn við akfeitan mann, með
þekktum afleiðingum. „Ég held þó
að ég leiki Borat ekki aftur, ég er
með aðra hluti í vinnslu og held
að næsta mynd verði gamanmynd
eftir handriti,“ sagði Cohen í lok
ræðu sinnar.
Pitt og Jolie
glæsilegust
Stjörnuhjónin Brad Pitt og
Angelina Jolie þóttu bera af hvað
glæsileika varðar á Golden Globe-
hátíðinni. Tímarit og tískuspekúl-
antar hafa keppst við að hrósa
þeim fyrir útlitið og hafa þau verið
valin glæsilegasta parið af flestum
sem láta sig það varða. Það nýjasta
í fréttum af parinu er að þau eru
að flytja með fjölskylduna til New
Orleans. Jolie lét hafa eftir sér í
fjölmiðlum að börn þeirra myndu
fara í skóla þar auk þess sem þeim
líkaði vel við borgina.
Sigurvegarar
Golden Globe
Kvikmyndin Babel, sem skartar
þeim Brad Pitt og Cate Blanchett
í aðalhlutverkum, fékk verðlaun
sem besta myndin. Breska leikkon-
an Helen Mirren þótti sigurveg-
ari kvöldsins en hún fékk tvenn
verðlaun og þar á meðal sem besta
leikkona í aðalhlutverki í mynd-
inni The Queen, sem fékk verðlaun
fyrir besta handrit. Þá var Íslands-
vinurinn Forest Whitaker valinn
bestur karlleikara í aðalhlutverki
fyrir myndina Last King of Scot-
land. Martin Scorsese var valinn
besti leikstjórinn fyrir myndina The
Departed og teiknimyndin Cars
þótt best í þeim flokki. Þá var Lett-
ers From Iwo Jima valin besta er-
lenda myndin.
föstudagur 19. janúar 200770 Helgarblað DV
Hvítt var málið
á Golden Globe
Golden Globe-verðlaunin voru afhent í
64. skipti aðfaranótt þriðjudags. Mikið
var um dýrðir og sáu 50 Hollywood-stjörn-
ur um að kynna verðlaunin. Eins og venju-
lega beindist athyglin mikið að kjólavali
kvenkyns gesta hátíðarinnar. Svartir kjól-
ar voru áberandi í fyrra en það var hins
vegar hvíti liturinn sem var ráðandi í ár.
Salma Hayek
Leikkonan smávaxna er
alltaf stórglæsileg og
hvítur kjóllinn undirstrikar
fallegt hár hennar.
Hayden Panettiere
nýstirnið úr Heroes-
þáttunum kom sterkt inn
á sinni fyrstu golden
globe-hátíð og gaf þeim
reyndari ekkert eftir, eins
og sést.
Cameron Diaz
Var sú sem tók helst
áhættu í kjólavali af þeim
hvítklæddu og heppnað-
ist það ekkert sérlega vel.
Kate Winslet
Eins og grísk gyðja í klassískum,
hlýralausum kjól frá azzarro og
rauði varaliturinn fer vel við logandi
lokka bresku leikkonunnar.
Sienna Miller
Var ein þeirra sem sameinaði hvítt
og silfurlitað með glæsibrag.
Yunjin Kim
Lost-stjarnan lét sig ekki vanta
í hvíta þemað og skartaði þess-
um síðkjól með fallegu svörtu
mynstri um mittið.
Ali Larter
Hefur slegið í gegn í þáttunum
Heroes og var gullfalleg í þessum
reem acra-kjól sem hún fékk aðeins
nokkrum tímum fyrir hátíðina.
Jennifer Garner
Er komin í sitt besta form eftir
barnsburðinn og ber þennan hvíta
og silfraða kjól frá gaultier
einstaklega vel.
Teri Hatcher
aðþrengda eiginkonan
yngist með hverju
árinu og gefur yngri
dömunum ekkert eftir.