Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2007, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2007, Blaðsíða 14
föstudagur 2. febrúar 200714 Fréttir DV Breiðuvíkur- börnin Gísli Guðjónsson réttarsálfræðingur: niðurstöðurnar komu á óvart „Litið var á heimilið í Breiðuvík sem stað þar sem góður árangur náðist með vandræðabörn,“ segir Gísli Guðjónsson, prófessor í rétt- arsálfræði, sem skrif- aði BA-ritgerð um heimil- ið 1974 til 1975. Hann hafði unn- ið um tíma hjá Fé- lagsmála- stofnun Reykjavík- urborgar og þá kviknaði hugmyndin að ritgerðarverkefn- inu. Árangurinn af vistun drengja þar var talinn svo góður að Gísli vildi rannska málið en niðurstöð- ur rannsóknarinnar voru langt frá því sem talið var. Gísli segir niðurstöðurnar hafa komið sér og mörgum á óvart enda hafi þeim svipað til rannsókna á erlendum stofnunum þar sem börn voru vistuð. Börn- in í Breiðuvík höfðu neikvæð áhrif hvert á annað og fleiri komust í kast við lögin eft- ir dvöl í Breiðuvík en áður en þeir komu þangað. Gísli Guðjónsson starfar við King‘s College í London. Hann hefur náð miklum árangri og er þekktur víða um heim fyrir rannsóknir sínar. Niðurstöður úr rannsókn Gísla H. Guðjónssonar: Börn vistuð í Breiðuvík sem komust í kast við lögin eftir að vistun lauk: TímaBil fjöldi Barna heildarhluTfall 1953–1960: 33 börn 87% 1960–1965: 19 börn 79% 1965–1967: 7 börn 78% lengd vistunar í Breiðuvík frá 1953–1970: lenGd dvalar fjöldi Barna heildarhluTfall 100–500 dagar 23 börn 32,4% 501–900 dagar 29 börn 40,8% 901–1300 dagar 15 börn 21,2% 1301–1700 dagar 3 börn 4,2% 1701–2100 dagar 1 barn 1,4% Samantekt Gísla var gerð fyrir rúmum 30 árum og segir því ekkert um hvort fleiri þeirra sem voru vistaðir í Breiðuvík hafi komist í kast við lögin. „Ég var tíu ára þegar félagsráð- gjafinn í Hafnarfirði var sendur á minn fund. Hann spurði mig hvort mig langaði ekki að hitta Garð- ar frænda minn. Ég þurfti ekki að hugsa mig um. Ég hafði verið í sveit á sumrin og var heillaður af sveitinni. Það að vera á sama bæ og Garðar frændi minn jók á tilhlökkunina. Þegar flugvélin lenti á Patreksfirði tók á móti mér maður nokkur og fór með mig í rússajeppa. Hann mælti ekki eitt orð á leiðinni. Leiðin var löng, við fórum yfir fjall og heiði, þar til við okkur blasti vík þar sem stóð ein kirkja, hús og rétt. Við vor- um komnir í Breiðuvík, heimili fyrir vandræðabörn...“ „...en það skorti allt sem flokk- ast getur undir mannleg samskipti. Þetta voru fangabúðir. Breiðavík var geymsla... Hæstráðandi á bænum var Þórhallur Hálfdánarson, vinur séra Braga eftir því sem mér er sagt. Hjónin þar kunnu ekkert á börn. Það voru fastir sturtutímar og kon- an hékk yfir okkur og horfði á okkur strákana bera í sturtunni. Maður- inn var óskaplega vondur við okk- ur. Hann sparkaði í okkur ef hon- um líkaði ekki eitthvað í fari okkar og einu sinni stakk hann Garð- ar frænda minn og annan tíu ára dreng úr Keflavík með skrúfjárni í magann. Bréfin sem við skrifuðum heim voru öll lesin yfir af hjónun- um og öll bréf sem til okkar komu voru yfirfarin. Við máttum aldrei tala í símann öðruvísi en Þórhall- ur stæði yfir okkur til að gæta þess hvað við segðum...“ „Margt frá þessum tíma man ég ekki. Það hefur orðið minnis- tap á köflum. Ég bjó mér til eigin veröld sem var langt frá þessum stað óhamingjunnar... Í kjallaran- um í Breiðuvík hafði verið fangelsi. Sem betur fer var okkur ókunnugt um það lengst framan af, en þeg- ar Bjarni (sonur Þórhalls, innskot blm.) tók við staðnum lét hann okkur brjóta niður veggina í fang- elsinu. Meðan ég dvaldi í Breiðu- vík var enginn látinn dúsa í þessu fangelsi en hvort svo hafi verið fyrir minn tíma veit ég ekki.“ Þegar tveir piltar struku frá Breiðuvík, óttaðist Sigurdór um af- drif þeirra og spurðist fyrir um þá hjá Þórhalli Hálfdánarsyni: „Þórhallur var brúnaþungur og svarið sem ég fékk var högg á mag- ann. Þarna var því bæði líkamlegt og andlegt ofbeldi. Vistin í Breiðu- vík herti okkur strákana... Það er á svona stöðum sem strákar kynn- ast best. Þeir sem nú mynda hörð- ustu glæpakjarna samfélagins hafa kynnst á stöðum sem ríkið rekur.“ „Eitt af því sem íþyngdi mér í næstum þrjátíu ár var dvöl mín í Breiðuvík. Það varð því úr sumar- ið 1999 að við Garðar frændi minn ákváðum að fara vestur til að kveða niður vondu minningarnar. Þeg- ar við vorum að koma að staðnum stoppuðum við á afleggjaranum á fjallinu, þar sem sér að bænum. Þá kom þessi ónotatilfinning strax upp, sannkölluð hörmungartilfinning. Við létum okkur hafa það að fara að bænum... Við Garðar fórum á gömlu staðina okkar og um kvöld- ið fórum við að biðja fyrir staðnum. Það stórkostlega gerðist að þegar við vorum að fara suður aftur og stopp- uðum á sama stað á afleggjaranum sáum við í fyrsta skipti hvað feg- urðin þarna er stórfengleg og hvað sveitin er falleg. Myndin af slæma staðnum var horfin...“ (Frásögn Sigurdórs Halldórs- sonar, sjómanns, skráð af Önnu Kristine Magnúsdóttur. „Litróf lífs- ins“, útg. Vaka -Helgafell 2002.) Frásögn Sigurdórs halldórssonar, sem var vistaður í Breiðuvík í eitt og hálft ár, aðeins 10 ára gamall: Helvíti á jörðu Engin kennsla á upptökuheimilinu: Með lömunarveiki til breiðuvíkur „Ég fékk lömunarveiki og fóst- urfaðir minn sendi mig í kjölfar- ið til Breiðuvíkur,“ segir Georg Viðar Björnsson sem var vistmað- ur til fimm ára í Breiðuvík. Hann kom þangað fyrst tíu ára gamall og dvaldi þar frá 1956 til 1960. Þá var Björn Loftsson forstöðumaður að sögn Georgs. „Við vorum sextán strákar þarna, allir í kringum ellefu ára, við átt- um að heita glæpamenn þegar við komum í Víkina,“ segir Georg þeg- ar hann rifjar upp vistina. Hann var eitt barnanna sem engin sjáanleg ástæða var fyrir að væri vistað þar. Hann segir vistina ekki hafa ver- ið dans á rósum. „Þegar við brutum af okkur vor- um við stundum settir í striga- poka og hengdir upp á snaga,“ segir Georg Viðar um harðar uppeldis- aðferðir sem þá voru við lýði. Að- spurður hversu lengi börnin voru látin hanga segir hann: „Það var allt upp í heilan dag.“ Georg segir vistina hafa ver- ið furðuágæta en það versta fannst honum kennsluleysið. Svo virðist sem þeir hafi ekki stunduð mark- viss kennsla. „Mér finnst ríkið helst skulda mér það,“ segir Georg sem þó hefur sótt sér nám í biblíuskóla og bændaskóla síðan. Hann dvaldi í Breiðuvík í fimm ár og eftir vistina fór hann á sjó en leiddist svo út í sukk og brenni- vín eins og hann orðar það sjálf- ur. Hann tók síðar trú og hætti allri drykkju. Hann hefur unnið lengi fyr- ir Samhjálp og starfar fyrir Félags- þjónustuna í dag. Georg viðar Björnsson Var vistaður í breiðuvík í fimm ár. Hann fékk lömunar- veiki og var sendur vestur. Sigurdór halldórsson „Það var bæði líkamlegt og andlegt ofbeldi. Vistin í Breiðuvík herti okkur strákana.“ Lalli Johns: ekki komið á verri stað „Þetta er versti staður sem ég hef verið á,“ segir Lalli Johns, einn þeirra sem vistaðir voru í Breiðu- vík. Hann segir meðferðina á drengjunum hafa verið slæma af hálfu starfsfólksins, auk þess sem yngri drengirnir voru pyntaðir af þeim sem eldri voru. Hann seg- ir starfsfólkið hafa látið drengina hátta sig og standa bera svo það gæti horft á þá. Tíu ára gamall var Lalli settur í síldartunnu fulla af ís- köldu fjallavatni þar sem hann var látinn vera í góða stund og seg- ist hafa verið hættur að finna fyr- ir kulda þegar honum var hleypt upp úr. Eitt sinn þegar Lalli slas- aðist á steypujárni sem stakkst í fót hans var ekkert hugsað um að koma honum undir læknishend- ur á Patreksfirði. Sá eini sem sinnti honum var Jón vinnumað- ur. Hann lagði kop- arpen- ing að sárinu, batt um það og hlúði að Lalla þar sem hann segist hafa legið sárþjáður. Lalli þakkar Jóni að fótur hans hafi ekki orðið fyrir varanlegu tjóni. Lalli segist bara nýlega vera farinn að tala um það sem gerð- ist í Breiðuvík, það sé lífsreynsla sem hann hafi viljað gleyma. Á meðan á dvölinni stóð segir hann litlu hafa munað að hann hefði látið sig falla fram af bjargi til að komast burt. Sjálfur segist hann ekki hafa komist heill úr vistinni, en eins og flestir vita er Lalli með marga fangelsisdóma á afreka- skránni. Í dag er hann á Litla- Hrauni, en þaðan vonast hann til að losna í mars. lalli johns segir dvölina í breiðuvík hafa verið hryllilega.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.