Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2007, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2007, Blaðsíða 21
sjálfur ef ég þyrfti að sitja undir svona ákæru svona lengi.“ Sigurður Líndal segir að ef til vill hefði verið betra að ákæra í færri málum og hafa þá skýrari fókus á þeim atriðum sem gefin er út ákæra vegna. „Svona margir liðir verða dálít- ið til að flækja málið. Það hefði verið betra að ákæruvaldið hefði tekið þau mál sem það hefði talið varða þyngstri refsingu,“ segir Sigurður og bend- ir á að dómar bætist ekki hver ofan á annan. „Menn eru ekki dæmdir í 150 ára fangelsi eins og í Bandaríkj- unum,“ segir hann og bætir við: „Það hefði kannski verið athugandi að hafa ákæruatriðin færri og eyða ekki tíma í þetta smotterí.“ Fátt um svör „Því miður get ég ekki tjáð mig op- inberlega um þau skatta- og refsimál sem í daglegu tali eru kennd við Baug og eru enn til meðferðar hjá skattayfirvöldum, ákæru- valdi og dómstólum. Dómur Hæstaréttar frá 23. janúar styður þá ákvörðun. Þetta útilokar þó ekki að ég eigi síðar eft- ir að tjá mig DV Fréttir föstudagur 2. febrúar 2007 21 Tryggvi Jónsson fyrrverandi forstjóri baugs var ákærður fyrir fjárdrátt, umboðssvik, tollsvik, brot gegn hegningarlögum og ýmsum lögum sem snúa að rekstri og bókhaldi fyrirtækja, auk ákæru um tollsvik vegna bílainnflutn- ings. Hann var sýknaður af tollsvikum í Héraðsdómi reykjavíkur. öðrum ákæru- liðum var vísað frá en tryggvi síðan endur- ákærður fyrir fjársvik, ólöglegar lánveiting- ar og bókhaldsbrot. sætir skattrannsókn. AnnA ÞórðArdóTTir endurskoðandinn var ákærður fyrir að samþykkja reikninga baugs án fyrirvara þótt ekkert væri kveðið á um lánveiting- ar til helstu stjórnenda félagsins. Hæsti- réttur staðfesti 25. janúar sýknudóm Héraðsdóms reykjavíkur yfir endurskoð- andanum sem er nú laus allra mála úr baugsmálinu. sTeFán HilmAr HilmArsson Núverandi forstöðumaður fjár- málasviðs baugs var ákærður fyrir að samþykkja reikninga baugs án fyrirvara, þótt ekkert væri kveðið á um lánveitingar til helstu stjórnenda félagsins. Hæstiréttur staðfesti 25. jan- úar sýknudóm Héraðsdóms reykjavíkur yfir stefáni Hilmari. Hann sætir nú skattrannsókn. ingibJörg sólrún gíslAdóTTir ræddi í borgarnesræðu sinni vorið 2003 um hvernig staðið hefði verið að gagn- rýni og rannsókn gegn baugsmönnum og spurði hvort flokkspólitík eða fagleg sjón- armið réðu rannsókninni. sagði um síð- ustu helgi að sér þætti sem ráðamenn úr sjálfstæðisflokknum hefðu farið gáleysis- lega með vald sitt vegna margra ummæla þeirra í tengslum við baugsmál. geir H. HAArde Þáverandi fjármálaráðherra kom fyrir í tölvupóstum styrmis gunnarsson og Jón- ínu benediktsdóttur. Henni fannst von að rannsókn hæfist ekki strax og þá skrifaði styrmir. „Hugsanlega er skattrannsókna- stjóri að bíða eftir því að fjármálaráðherra komi úr sumarfríi.“ bJörn bJArnAson dómsmálaráðherra þegar fyrstu ákærurn- ar voru gefnar út. skipaði sigurð tómas Magnússon sérstakan saksóknara þegar ríkislögreglustjóri vék frá málinu og rík- issaksóknari taldi sig vanhæfan. skipaði rúnar guðjónsson sýslumann yfirmann skattrannsóknar þegar ríkislögreglustjóri var úrskurðaður vanhæfur. baugsmenn reyndu að fá hann úrskurðaðan vanhæfan til að skipa sérstakan saksóknara. dAvíð oddsson Þáverandi forsætisráðherra vissi af Jóni gerald og málatilbúnaði hans snemma árs 2002 samkvæmt frásögn Hreins Lofts- sonar, stjórnarformanns baugs, af fundi þeirra í Lundúnum, sem sagt var frá vorið 2003. deildi hart á baugsmenn sem álíta að hann hafi átt stóran þátt í að rannsókn á málum þeirra hófst. Jón sTeinAr gunnlAugsson Hæstaréttarlögmaðurinn Jón steinar tók að sér mál Jóns geralds eftir að hafa setið fund með styrmi og Kjartani. styrmir hef- ur sagt að Jón steinar hafi verið efins um að taka að sér starfið en gert það að lok- um eftir samtöl við Jón gerald. Máli Jóns geralds sinnti Jón steinar þar til björn bjarnason dómsmálaráðherra skipaði hann hæstaréttardómara. KJArTAn gunnArsson Þáverandi framkvæmdastjóri sjálfstæðisflokksins sat fund með ritstjóra Morgunblaðsins og Jóni steinari gunnlaugs- syni. Þar ræddu þeir mál Jóns geralds. Kjartan sagði að hans eina aðkoma að málinu hefði verið að segja við styrmi að Jón steinar, fyrrverandi lögmaður Morgunblaðsins, væri mjög fær lögmaður sem væri í stakk búinn að sinna máli Jóns geralds. komu að málinu Stjórnmálamenn óSkýr lög og of margir ákæruliðir lengi í gangi og Baugsmálið. Þannig geti liðið tvö, þrjú og upp í fjögur ár þar til dómur fellur í stærri fjársvika- málum sem komi til kasta venjulegra lögregluembætta. Jón segir að í ljósi reynslunn- ar hefði ef til vill mátt gera þá breyt- ingu á rannsókn málsins að hafa fleiri rannsakendur í málinu. „Þetta mál stækkaði talsvert á ferlinum. Það varð stærra en nokkurn óraði fyrir.“ Það segir hann að hefði hins vegar get- að bitnað á öðrum málum ef rann- sakendum í Baugsmálinu hefði verið fjölgað. Jón segir það hafa staðið efna- hagsbrotadeild fyrir þrifum í gegnum tíðina að hún sé ekki mjög stór. „Hjá deildinni hafa klárlega verið alltof mörg mál í gegnum tíðina.“ margir liðir flækja fyrir „Ég held ég geti fullyrt að þetta sé ekki algengt,“ segir Sigurður Líndal lagaprófessor aðspurður um hvort al- gengt sé að mál séu jafn lengi í meðförum lögreglu og dóm- stóla og Baugsmálið. Í Mannréttindasáttmála Evrópu er kveðið á um að sakborningar eigi rétt til málsmeðferðar innan hæfilegs tíma. Sigurð- ur segir erfitt að segja til um hvað hæfilegur tími sé og hvenær mál hafi verið of lengi í gangi. „Mér finnst þetta orð- inn afskaplega langur tími. Ég væri ekk- ert sáttur við þetta um þessi mál og ýmislegt þeim tengt.“ Svona svaraði Haraldur Johanness- en ríkislögreglustjóri þegar DV leitaði viðbragða hans. Dómurinn sem hann vísar til er sá sem féll um að hann væri vanhæfur til að sitja yfir skattarann- sókn fimmmenninga í Baugsmálinu vegna fyrri ummæla hans. Spyrja átti hvort hann teldi að hafa hefði mátt rannsókn eða saksókn með öðrum hætti meðan Baugsmálið var enn á forræði embættis ríkislögreglustjóra og jafnframt hvort hann hefði ein- hvern tíma íhugað að mannabreyt- inga væri þörf í rannsókninni, hvort sem litið er til stjórnar rannsóknar- innar eða fjölda þeirra sem rannsök- uðu málið. Nokkrar spurningar voru lagðar fyrir Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra í tölvupósti en engin svör feng- ust. Spurningarnar voru: „Telur þú að haga hefði mátt rannsókn eða saksókn málsins með öðrum hætti en gert var meðan það var enn á forræði emb- ættis ríkislögreglustjóra?“ og: „Hef- ur þú einhvern tíma á þeim tíma sem Baugsmálið hefur verið í gangi íhugað að mannabreytinga væri þörf? Þá á ég við hvort tveggja að fjölgað yrði í rannsóknahópn- un eða að ríkislög- reglustjóri eða þáverandi yfirmaður efnahags- brotadeild- ar viki. Ef svo er: Með hvaða hætti var það?“ sigurður líndal fjöldi ákæruliða kann að hafa flækt málin. telur að betra hefði verið að hafa ákærulið- ina færri og fókusinn skýrari. Jón H.b. snorrason telur baugsmál ekki hafa tekið lengri tíma en önnur stór mál, miðað við umfang málsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.