Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2007, Blaðsíða 51
DV Helgarblað föstudagur 2. febrúar 2007 51
Konur og flottar töskur eiga oft samleið og er taskan sá fylgihlutur sem vekur hvað mesta athygli í tísku-
heiminum. Stjörnurnar berjast um að sjást með það nýjasta, flottasta og ferskasta í bransanum en þær
eiga sér líka uppáhaldstöskur eins og flestar aðrar konur.
UppáhaldstöskUrstjarnanna
Victoria Beckham
fótboltafrúin og fyrrverandi krydd-
pían Victoria beckham hefur tekið
ástfóstri við nýjustu og heitustu
töskuna frá Prada. Þessi súkkulaði-
brúna taska lítur nánast út fyrir að
vera æt og getur Victoria sennilega
komið david beckham fyrir ofan í
henni. Poppdrottningin Madonna
hefur einnig verið ljósmynduð með
eins tösku við ýmis tækifæri.
Sharon Stone
Leikkonan sharon stone hefur alltaf
verið mikill aðdáandi birkin-töskunn-
ar enda ein þekktasta handtaska í
heimi. Hún var hönnuð fyrir bresku
leikkonuna Jane birkin. birkin hitti
fyrir tilviljun forstjóra Hermés í flug-
vél og samræður þeirra urðu til þess
að taskan var hönnuð. fjöldi frægra
kvenna heldur mikið upp á töskuna
sem fæst í ýmsum útfærslum.
LindSay Lohan
Þótt ung sé er Lindsay Lohan alltaf með
það ferskasta á hreinu í tískunni og er yfir-
leitt skrefinu á undan hörðustu tískulögg-
um. stúlkan þekkir þó hönnunarklassík
og er mikill aðdándi Chanel. Þessi Chanel-
taska er í sérlega miklu uppáhaldi hjá
Lohan enda stórglæsileg.
kate moSS
fáar dömur eiga fleiri hand-
töskur eftir fræga hönnuði
en Kate Moss og fær hún
flestar þeirra gefins. Kate hefur hins vegar alltaf notað
þessa svörtu Mulberry bayswater-tösku mikið. Kate notar
töskuna við öll tækifæri og næst hreinlega varla af henni
mynd án þess að taskan fylgi með.
PariS hiLton
Paris Hilton sést ekki í sömu flíkinni
tvisvar og er varla að hún sjáist með
sama fylgihlutinn oftar en tvisvar, fyr-
ir utan ljósa hárið og hundinn. Hún
heldur hins vegar mikið upp á þessa
litlu, hvítu handtösku frá Louis Vuitt-
on og hefur reglulega sést með hana
upp á síðkastið.
nicoLe richie
Nicole hefur ávallt verið
iðin við að fylgja tísku-
straumum og sérstaklega
þegar kemur að fylgihlut-
um. Hún gjörsamlega elsk-
ar balenciaga Lariat-tösk-
una. Hún viðurkenndi í
viðtali nýlega að hún hefði
keypt sér töskuna í svört-
um, hvítum, grænum, blá-
um, bleikum og gulum lit.
geri aðrir betur.
SoPhie dahL
breska fyrirsætan sophie dahl sem er ein
af þeim fyrstu til að fara á skjön við anor-
exíu-útlitið í tískuheiminum hefur lengi
haft mikið dálæti á þessari tösku frá Yves
saint Laurent. taskan hefur verið mjög
vinsæl hjá stjörnunum um þó nokkurt
skeið og fæst hún einnig svört og í hlé-
barðamynstri.
dori@dv.is
Harry Potter stríplast
Hinn ungi og efnilegi leikari daniel radcliffe, sem leikur galdrastrákinn Harry Potter, kom mörgum
aðdáendum sínum í opna skjöldu þegar myndir af kappanum hálfnöktum birtust fyrir skömmu.
Uppi varð mikill fótur og fit í kjölfar þess að
myndir af breska leikaranum Daniel Radcliffe
hálfnöktum birtust nú á dögunum. Hinn 17
ára Daniel, sem er þekktastur fyrir að leika
hinn sívinsæla Harry Potter, leikur í leikrit-
inu Equus á West End í London þessa dagana.
Myndirnar sem hafa vakið svo mikla athygli
eru hluti af kynningu leikritsins, en með Dani-
el á myndunum er mótleikkona hans, einnig
fáklædd.
Þó nokkrir ósáttir foreldrar hafa látið skoð-
anir sínar í ljós og sumir segjast ætla að snið-
ganga kvikmyndirnar um galdramanninn
unga. Hvað sem því líður tekur Radcliffe þessu
fyrsta hlutverki sínu á West End mjög alvarlega
og hefur strákurinn verið að æfa stíft og hlot-
ið einróma lof leikstjóra og annarra aðstand-
enda sýningarinnar. Radcliffe hefur meðal
daniel radcliffe
er þekktastur fyrir hlutverk
sitt sem Harry Potter.
kom fram nakinn í leikritinu
Mörgum finnst radcliffe og mótleik-
kona hans of ung fyrir nektina.
annars unnið mikið með raddþjálfara til að
skila hlutverki sínu betur.