Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2007, Síða 52
föstudagur 2. febrúar 200752 Helgarblað DV
Keppnin um fyndnasta mann Íslands
hefur ekki verið haldin frá því árið
2003, en snýr nú aftur eftir fjögurra ára
fjarveru. Það eru aðstandendur heima-
síðunnar uppistand.is sem standa fyrir
keppninni, sem er löngu orðin tíma-
bær. DV heyrði í Oddi Eysteini Frið-
rikssyni, einum skipuleggjanda keppn-
innar, sem sagði allt af létta.
„Þetta er allt að fara af stað,
skráningin er hafin og svona,“ segir
Oddur Eysteinn Friðriksson, sem
ásamt félögum sínum á heima-
síðunni uppistand.is stendur fyr-
ir keppninni um fyndnasta mann
Íslands. Keppnin hefur ekki verið
haldin síðan árið 2003, eða í heil
fjögur ár. Segir Oddur að löngu sé
orðið tímabært að halda keppnina
aftur, enda hafi grínistar á Íslandi
verið að sækja í sig veðrið á und-
anförnum misserum. „Menn hafa
verið að bíða eftir þessari keppni.
Eftir keppnina árið 2003 voru
margir staðráðnir í því að taka þátt
að ári, en ekkert gerðist.“
Útsláttarfyrirkomulag
Reglur keppninnar eru sára-
einfaldar. Haldin verða fimm und-
anúrslitakvöld í heildina og kemst
einn keppandi áfram hvert kvöld.
Hver grínisti sem skráir sig fær 10
mínútur til þess að koma fólki til
að hlæja og sér dómnefnd um að
velja þá sem komast áfram hvert
kvöld. Fyrsta undanúrslitakvöldið
verður haldið þann 1. mars í Aust-
urbæ. Kvöldin verða svo haldin á
vikufresti og úrslitakvöldið þann
5. apríl, en því verður einnig sjón-
varpað á SkjáEinum.
Reynsluboltar skráð sig
Oddur segir að stór hópur hafi
þegar skráð sig í keppnina og að
inni á milli leynist reyndari menn.
„Þarna eru menn sem hafa verið
að uppistandast eitthvað á und-
anförnum árum.“ Enn hefur ekki
verið greint frá verðlaununum,
en eflaust verður það eitthvað
gúmmulaði. Segir þó Oddur að tit-
illinn einn, að vera fyndnasti mað-
ur Íslands, hafi komið mönnum
langt. „Sem dæmi hafa fyrri sig-
urvegarar verið að fá gigg fjórum
sinnum í viku út árið sem þeir hafa
unnið. Það er hellingur af pening-
um.“ En metnaðarfullir sigurveg-
arar hafa einnig verið duglegir við
að koma sér að í sjónvarpi, útvarpi
eða prentmiðlum.
Enn hægt að skrá sig
Þeim sem vilja fræðast meira
um keppnina er bent á að fara inn
á vefsíðuna uppistand.is, þar sem
hægt er að nálgast nánari upplýs-
ingar. Þeir sem hafa svo áhuga á
því að spreyta sig á uppistandi og
telja sig eiga erindi í keppnina geta
sent tölvupóst á netfangið oddur-
boxser@gmail.com.
dori@dv.is
á Íslandi
Upprisa
Uppistandsins
„Buff er fimm manna hljómsveit
og þrír af okkur eru í tólf lögum á
sviði,“ segir Hannes Friðbjarnarson
trommari og einn söngvara hljóm-
sveitarinnar Buffs. „Við erum aðal-
lega að syngja bakraddir en það er
þannig í Buffinu að það er enginn
einn ákveðinn söngvari í hljóm-
sveitinni heldur syngja bara all-
ir sem geta og er það nú eiginlega
sterkasta hlið bandsins, fyrir utan
það hvað við erum æðislegir.
Stebbi, píanóleikari í Buffinu,
hefur líka spilað gríðarlega mikið
af píanóleiknum í þeim lögum sem
hafa verið í undankeppninni en
af söngvurunum er Pétur afkasta-
mestur,“ segir Hannes og talar um
að það sé áskrift á velgengni að fá
Pétur Örn í bakraddir. „Það virð-
ist vera gott að veðja á Pétur sem
bakraddasöngvara, því ég held að
öll lögin sem hann syngur í hafi
komist áfram,“ en Pétur Örn Guð-
mundsson er einnig þekktur úr
hljómsveitinni Dúndurfréttum.
Hljómsveitin Buff hefur ver-
ið lengi að og er með mest bók-
uðu hljómsveitum landsins þannig
að þarna eru engir aukvisar á ferð.
„Síðan er aldrei að vita nema við
förum að hætta þessu rugli og
taka bara þátt sjálfir,“ segir Hannes
hress. „Það þarf að keyra þetta að-
eins upp.“
asgeir@dv.is
ekkert eurovision án buffs
Meðlimir hljómsveitarinnar Buffs taka þátt í 12 lögum sem eru flutt í Söngvakeppni Sjónvarpsins 2007:
Fyndnustu menn Íslands
Sigurvegarar fyrri keppna:
2003
gísli Pétur Hinriksson
2001
úlfar Linnet
1999
Pétur Jóhann sigfússon
2002
Júlíus Júlíusson - fíllinn
frá dalvík
2000
Lárus Páll birgisson
1998
sveinn Waage
Hannes Friðbjarnarson tekur með
félögum sínum í buff þátt í heilum
12 lögum í söngvakeppninni.
Gleðisveitin Buff
Veltir því fyrir sér að taka
þátt í forkeppninni næst.