Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Blaðsíða 4
miðvikudagur 4. apríl 20074 Fréttir DV Allra veðra von um páskana „Það hefur verið tilhneiging í flestum spám að eftir þessi óvenju- legu hlýindi frá pálmasunnudegi sé gert ráð fyrir því að það kólni nokk- uð skart í kjölfar aðfaranætur skír- dags,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. Þar sem fjöldi fólks mun leggja land undir fót um páskana sem endranær er spáin ekki upp á það besta því þó nokkrar óvissu gætir um framhaldið. Gera má ráð fyrir að eftir skírdag muni frysta víða um land, en þó ekki með neinum látum. Einar segir að ekki séu miklar líkur á að þessu kuldakasti fylgi hret með snjókomu en útilokar það ekki. Á föstudaginn langa er aftur á móti út- lit fyrir rólegheitaveður um mest allt land, skýjað og sumstaðar gæti smá éljagangur gert vart við sig. Nokkur óvissa er um veðrið eftir föstudaginn langa að sögn Einars en allt veltur það á því hvort lægð komi að land- inu úr suðvestri. „Sumar spár gera ráð fyrir því að áframhald verði á köldu og stilltu veðri á meðan aðrar spár búast við lægð upp að landinu úr suðvestri en þá myndi hlána og rigna nokkuð á mestöllu landinu.“ Einar bendir á að tölvuspár víða að úr heiminum virðast vera samstíga í því að gera ráð fyrir páskahretinu annaðhvort á páskadag eða annan í páskum með norðanátt og ofank- omu á Norðurlandi og Vestfjörðum, en heldur hægara veðri og minni of- ankomu annars staðar á landinu. Fólk á ferli Heldur kólnar frá því sem verið hefur. Þó gæti viðrað vel á föstudaginn langa en nokkur óvissa er um páskaveðrið. Lísa Skaftadóttir lést í átakanlegu bílslysi á Suðurlandsvegi 21. mars. Útförin fór nýlega fram og er eiginmaður hennar, Ragnar Þór Stefánsson, nú að huga að fermingu tvíbura þeirra. Aðstandendur hafa stofnað styrktarreikning til hjálpar á erfiðum tímum. Ómetanlegur stuðningur „Þetta er búið að vera ofsalega erf- iður tími. Þetta gerðist svo skyndi- lega og fyrirvaralaust. Svona atburðir geta átt sér stað og maður verður að reyna að einbeita sér að því að halda áfram,“ segir Ragnar Þór Stefánsson, eiginmaður Lísu Skaftadóttur sem lést í átakanlegu bílslysi á Suður- landsvegi. Lísa var ein á ferð í jeppabifreið sinni um hádegisbil miðvikudaginn 21. mars. Talið er að hún hafi feng- ið flogaveikikast og færst yfir á rang- an vegarhelming. Á móti kom vöru- bifreið og skullu bílarnir harkalega saman. Talið er að Lísa hafi látist samstundis. Hún var á fimmtugs- aldri og áttu þau hjónin saman fjög- ur börn; fjögurra og átta ára drengi og tvíbura, stúlku og dreng, á ung- lingsaldri ásamt eldri dóttur Lísu frá fyrri tíð. Útförin fór fram síðast liðinn föstudag og á skírdag verða tvíbur- arnir fermdir í Selfosskirkju. Góðar vinkonur Aðstandendur hafa stofnað styrkt- arreikning fjölskyldunni til hjálpar á erfiðum tímum. Berglind Helgadótt- ir, mágkona Ragnars Þórs, er algjör- lega miður sín yfir missinum því hún og Lísa voru góðar vinkonur. „Lísa var hjá mér í kaffi fyrr um morguninn áður en slysið átti sér stað. Þetta ger- ist alveg hrikalega skyndilega, þetta er alveg rosalegt áfall. Hún var ynd- isleg, með góðan húmor og ofsalega góð við börnin sín. Missirinn er því mjög mikill,“ segir Berglind. „Við vilj- um náttúrlega styðja við bakið á þeim á erfiðum tímum. Ekki nóg með það að missa eiginkonu sína skyndilega heldur getur þetta verið fjárhagslega erfitt, það verður bara að horfast í augu við það. Við viljum koma þakk- lætiskveðjum til allra þeirra sem hafa sýnt hlýhug og stuðning.“ Erfiðir tímar Ragnar Þór er innilega þakklát- ur öllum þeim sem sýnt hafa hlýhug frá því að slysið átti sér stað. Hann sér fram á að langan tíma taki að vinna með sorginni. „Ég hefði ekki getað komist í gegnum síðustu daga ef að ég hefði ekki fundið hinn gífur- lega mikla hlýhug sem allir hafa sýnt mér undanfarið. Presturinn hefur verið ómetanlegur og er duglegur að líta við hjá okkur. Ég er ofsalega þakklátur öllum,“ segir Ragnar Þór. „Þetta hefur verið erfitt og á eftir að vera erfitt. Bæði er þetta erfitt fyrir mig og ekki síður fyrir krakka greyin. Skyndilega stend ég einn eftir með börnin og er ég þakklátur allri þeirri aðstoð sem mér hefur verið veitt.“ TrauSTi haFSTEinSSon blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Styrktarreikningurinn: 1169-05-401000 Kennitala 111161-3469 Lést í bílslysi lísa Skaftadóttir lést í bílslysi og lét eftir sig eiginmann og fimm börn. aðstandendur hafa stofnað styrktarreikning til að hjálpa fjölskyldunni. InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Veður fer kólnandi næstu daga gangi spár veðurfræðinga eftir: Páskaeftirlit á hálendinu „Við verðum með mik- ið umferðareftirlit á hálendið um helgina bæði fljúgandi og akandi,“ segir Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli. Sveinn Kristján segir eftirlit- ið verða mest þar sem umferð- in verður en því ráði veðrið. Landmannalaugar eru alltaf vinsælar svo og Mýrdalsjökull og fjallabaksleiðirnar en svo verði bara að koma í ljós hvert straumurinn liggi en helst er von á jeppafólki og vélsleða- mönnum. Þyrla frá Landhelgisgæsl- unni verður á flugi með lög- reglumenn og lækni um borð en gott samstarf hefur verið við gæsluna undanfarin ár og hefur það verið stóraukið. Sjáist eitt- hvað grunsamlegt eða eitthvað sem athuga þarf betur mun þyrlan lenda skammt frá öku- tækjum svo lögreglan geti sinnt sínum störfum. Áhersla á ölvunarakstur Ein mesta áherslan verður lögð á ölvunarakstur og mun læknir um borð taka blóð- prufur þegar sem þurfa þykir. „Það er eins og sumir haldi að önnur lög og aðra reglu gilda upp á hálendinu en það er ekki svo,“ segir Sveinn en hann tel- ur óhætt að segja að síðustu ár hafi um einn látið lífið á ári á hálendinu sökum ölvunar- aksturs. Eitt stærsta ferðmannasvæð- ið á hálendinu er í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli og er það ein ástæðan fyrir því að liðsaukinn sé bættur með þyrlu. Eins er samstarf við Flug- björgunarsveitin á Hellu vegna aksturseftirlit. „Ég vil bara hvetja fólk til þess að fara varlega, láta vita af sér og fylgjast vel með veður- spám,“ segir Sveinn Kristján.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.