Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Blaðsíða 62
miðvikudagur 4. apríl 200762 Ferðalög DV U m s j ó n : V a l g e i r Ö r n R a g n a r s s o n . N e t f a n g : v a l g e i r @ d v . i s á ferðinni Engifer við ferðaveiki Gengið í menningar- takti á Spáni dagana 2. til 9. júní geta sóldýrkendur sameinað dvöl í spænskri sól og létta göngutúra og menningarupplifanir. Ferð þessi er á vegum göngu-Hrólfs sem býður þátttakendum upp á dvöl í strandbænum Tossa de mar sem er í 80 kílómetra fjarlægð frá Barselóna. Á meðan á dvölinni stendur verður farið í þrjár léttar gönguferðir meðfram Costa Brava sem býður upp á ægifagurt landslag. göngurnar eru þriggja til fimm tíma langar og henta öllum þeim sem ánægju hafa af hollri hreyfingu. auk þess verður farið í dagsferðir í stórbrotin listasöfn spænsku myndlistarrisanna Salvadors dali og pablos picasso í Figueras og Barcelona. Nánari upplýsingar má fá hjá Úrval Útsýn og á heimasíðunni gonguhrolfur.is. Legoland opnað í Berlín um síðustu helgi var opnaður legóskemmtigarður í Berlín í Þýskalandi. Skemmtigarðurinn sem heitir einfaldlega legoland discovery Centre er staðsettur í hjarta borgar- innar við potsdamer platz. garðurinn, sem er innandyra, er 3.500 fermetrar að stærð og þar er að finna áhuga- verða afþreyingu fyrir alla fjölskyld- una. meðal annars má þar sjá míníútgáfu af helstu byggingum borgarinnar eins og Brandenburgar- hliðinu, að sjálfsögðu úr legókubbum. Fjórvíddarbíó er einnig í garðinum þar sem skynfærunum er ögrað til hins ítrasta og að sjálfsögðu er nóg af kubbum í öllum stærðum og gerðum sem hægt er að byggja úr. lesið nánar um það sem legoland discovery Centre hefur upp á að bjóða á legolanddiscoverycentre.com. Kirsuberjatrén blómstra vorið er komið í Washington og þar standa kirsuberjatrén í miklum blóma. Fram til 15. apríl er sérstök hátíð í gangi í borginni sem tileinkuð er kirsuberjatrjánum sem gaman er fyrir ferðamenn að tékka á. Fyrstu kirsuberjatrén komu til borgarinnar árið 1912 sem gjöf frá Tókýóborg og voru þá 3.000. íbúar borgarinnar kunna afar vel að meta trén og blóm þeirra eru sannkallaðir vorboðar. Þar sem Pragferðirnar eru að hefjast, teljum við rétt að benda á skemmtilegan veitingastað fyrir hópa. Sá er staðsettur rétt utan borg- armarkanna, en það kemur ekki að sök, því staðurinn sér um að sækja gesti á hótel í miðborginni og skila þeim heim að dyrum að lokinni skemmtun. Folklore Garden er eitt best geymda leyndarmálið í Prag. Anna Janousková rekur staðinn og elskar að taka á móti hópum. Í bleika litla kastlanum henn- ar Önnu ríkir hlöðuballsstemning, þar sem boðið er upp á þriggja rétta kvöld- máltíð sem samanstendur af þjóðleg- um réttum og ótakmörkuðu magni af bjór, léttvíni og gosdrykkjum. Topp- urinn á kvöldinu er svo þegar dans- arar og hljóðfæraleikarar, klædd- ir þjóðbúningum, stíga fram og sýna tékkneska þjóðdansa. Verðið er ótrú- legt, rétt rúmar þrjú þúsund krónur á mann, aksturinn innifalinn. Hægt er að skoða myndir og leggja inn pantan- ir á folkloregarden.cz og info@folklor- egarden.cz annakristine@dv.is Ekta tékknesk stemning Bleikur kastali við borgarmörk Töfrandi Tröllaskagi Á Tröllaskaga er að finna mögnuð fjöll að sögn kajak- áhugamannsins Erlends Þórs Magnússonar. Erlendur heimsæk- ir skagann mörgum sinnum á ári bæði til þess að standa þar á bretti og til að bleyta kajakinn sinn. Formaður Íslenska Alpaklúbbs- ins, Freyr Ingi Björnsson, sagði les- endum síðasta helgarblaðs frá berg- djólanum Þumli í Skaptafellsfjöllum og skoraði á Erlend Þór Magnússon að segja frá Tröllaskaga fyrir norðan sem er í miklu uppáhaldi hjá hon- um. „Síðastliðin sjö ár hef ég farið þangað nokkrum sinnum á ári. Þar er að finna fullt af stórum og hrika- legum fjöllum fyrir brettafólk og á sumrin hef ég líka farið þangað á kaj- ak,“ segir Erlendur. Hann segir mikið af skemmtilegum ám vera á svæðinu sem kjörnar eru til kajakróðurs og nefnir meðal annars Garðsá sem er í um 15 mínútna fjarlægð frá Akur- eyri. „Hún er með fullt af flúðum og er í erfiðari kantinum. Svo var þarna önnur mjög góð á, Djúpadalsá, en virkjanaframkvæmdir eyðilögðu hana.“ Erlendur segist vera hrifinn af Skíðadal sem er skammt frá Dalvík en einnig nefnir hann Látraströnd sem skemmtilegan áfangastað fyr- ir brettafólk. „Látraströnd er beint á móti Dalvík. Þangað liggur enginn vegur og því verður maður að taka bát frá Dalvík til að komast þang- að. Ég fór þangað með hópi af fólki í fyrra og það var hrikalega gaman. Það eru verulega flott fjöll þarna,“ segir Erlendur. Hann viðurkennir þó að vissulega þurfi að leggja á sig tölu- verða göngu en það sé þess virði því brekkurnar þarna séu mjög góðar. Á brimbretti á Filippseyjum Erlendur hefur undanfarin ár starfað sem leiðsögumaður hjá Artic rafting. Þar er mest að gera á sumr- in en á veturna hefur hann yfirleitt farið eitthvert erlendis. Þannig hef- ur hann bæði heimsótt Indland og Nepal í þeim tilgangi að sigla á ka- jak og síðastliðin jól var hann á Fil- ippseyjum þar sem hann stundaði brimbrettarennsli. „Þar eru mjög góðar aðstæður fyrir brimbrettasörf, sjórinn er heitur og ekkert of mikið af fólki. Það er hræódýrt að lifa þarna og mjög auðvelt að vera ferðamaður í landinu því það er fyrrverandi ný- lenda Bandaríkjanna svo flestir tala ensku,“ segir Erlendur sem stefn- ir á það að fara þangað aftur næsta haust. Aðspurður að því hvort hann hafi aldrei komist í hann krappan við ástundun þessara íþrótta þá seg- ir hann að einu sinni hafi þurft að hringja á sjúkrabíl fyrir hann. „Þá var ég á kajak í Munkaþverá fyrir norð- an í miklum leysingum og festist bak við foss. Það þurfti að gefa mér smá súrefni en annars hef ég aldrei brotið bein eða neitt slíkt á þessum sjö árum sem ég hef stundað kajak- íþróttina,“ segir Erlendur, sem verð- ur á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður, á Ísafirði um páskana. Með í farangrinum verða bæði snjó- og brimbretti enda aldrei að vita nema færi gefist á góðum öldum. Erlendur, sem er með íbúðina sína fulla af brimbrettum og þvotta- húsið fullt af snjóbrettum, skorar á Elvar Þrastarson, til að segja frá æv- intýrum sínum í næsta helgarblaði en hann er einnig mikill kajaká- hugamaður. Spennandi skíðabrekkur Tröllaskaginn skartar mörgum hrikalegum fjöllum sem gaman er að ganga á og renna sér niður á snjóbretti. Fagrar flúðir Á sumrin stundar Erlendur kajakíþróttina af krafti á íslandi en á veturna er snjóbrettið tekið fram. Þessi mynd af honum er tekin í ánni madi kohla í Nepal árið 2005. Engifer er talið fyrirbyggjandi við ferðaveiki og því óvitlaust fyrir þá sem viðkvæmir eru fyrir róti að taka jurtina inn áður en lagt er í hann. Áhrif engifers gegn ógleði eru talin stafa af efnum sem nefnast gingeról og sjógaól. Jurtin er einnig sögð minnka höfuðverki, gigtarverki, hálsbólgu og dregur líka úr tíðaverkjum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.