Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Blaðsíða 51
DV Páskablað miðvikudagur 4. apríl 2007 51 Um heiminn með tónlistinaí farteskinu upp í fjárhúsinu á Kolstöðum í Borg-arfirði, hljóðblönduð í Sundlauginni og Sýrlandi. Í gagnrýni um plötuna segir: ,,Hljóðfæraleikurinn er óað-finnanlegur og ómögulegt að benda á nokkuð sem skarar fram úr öðru, sveitin er enda svo vel spilandi að furðu vekur“. En þetta er ekki eina hljómsveitin sem Ólöf hefur leikið í því seinna tók hún upp víóluleik með hljómsveitinni Múm. ,,Ég kynntist krökkunum í Múm þegar ég bjó í Berlín. Ég hafði reynd- ar þekkt þau þegar ég var í Mennta- skólanum í Hamrahlíð en í Berlín kynntumst við betur og urðum góð- ir vinir. Með Múm hef ég ferðast vítt og breitt um heiminn; um Evrópu, Bandaríkin, Ástralíu og Japan. Við fórum einnig saman til Taívan þar sem við nutum þess að vera í fríi og lærðum að kafa. Ég starfa ennþá með Múm og tók þátt í síðustu plötunni Summer Make Good og verð með á nýju plötunni sem kemur út í haust. Það má segja að ég sé fastur „free- lancari“ í hljómsveitinni.“ Tónlistin í genunum Það er kannski ekki undarlegt að Ólöf hafi lagt tónlistina fyrir sig. Hún er komin af tónlistarfólki í báðar ættir, þannig að það má segja að hún hafi tónlistina í genunum. Hún er fjölhæf- ur tónlistarmaður og sveiflast á milli klassískrar tónlistar, þjóðlagatónlistar, popps og rokks. Hún segir skemmti- legt að vera stödd á einhverjum punkti þarna á milli og það sé gefandi að hafa útsýn yfir báða heimana. ,,Móðurafi minn Jóhann Tryggva- son lærði píanóleik og hljómsveit- arstjórn í London. Mamma, Sigrún Jóhannsdóttir, sem er sjúkraþjálfari, hefur lengi sungið með Fílharmón- íukórnum og Þórunn Askenazy, syst- ir hennar, er mjög góður píanóleikari. Svo er einnig talsvert af tónlistarfólki í föðurættinni og það hafa margir ung- ir ,,Arnaldsar“ verið að skjóta upp kollinum hér og þar upp á síðastið og ég hef gaman af því. Í þeim hópi er til dæmis nafni minn Ólafur Arn- alds og það hefur valdið mörgum og skemmtilegum misskilningi.“ Við og við Fyrsta sólóplata Ólafar, Við og við, hefur hlotið frábæra dóma og þykir mikið listaverk. Einn gagnrýn- andi lýsti tónlist Ólafar sem fíngerðri og viðkvæmri, en líka kjarkaðri og ástríðufenginni. Hann bætir við að það séu bjartir æskuhljómar í verki hennar, en líka gamall og myrkur seið- ur úr fjarska. Flest lögin eru eftir Ólöfu og textarnir eru hennar nema við tvö lögin, lag Megasar, Orfeus og Evridís, og síðasta lag plötunnar sem er sam- ið við ljóð eftir pabba hennar, Einar S. Arnalds. Ljóðið, Ævagömul orkuþula, birtst í ljóðabók Einars, Lífsvilji. Einar skrifaði bókina þegar hann barðist við krabbamein, en þá settist hann gjarn- an niður á morgnana og samdi ljóð. ,,Ég notaði einnig ljóð eftir pabba í útskriftarverkefninu mínu í tónsmíði og nýmiðlun frá Listaháskólanum, en það er myndband sem nefnist Eins og sagt er. Ljóðið hans pabba er það eina sem heyrist þar á íslensku. Aðrir text- ar eru unnir úr viðtölum sem ég tók í New York sumarið 2005 við fólk frá öllum heimshornum og fjalla um við- horf þess til lífsins. Verkið er eins kon- ar alþjóðlegt hljómlistaverk þar sem ég syng á átján tungumálum.“ Einar lést úr krabbameini árið 2004 og Ólöf segist vissulega hafa haft hann í huga þegar hún samdi lög og ljóð sem hljóma á disknum Við og við. ,,Vissulega er diskurinn tregafullur. Hann er um fjölskylduna og tregann en jafnframt gleðina sem fylgir fjöl- skyldulífi.“ Ásamt því að fylgja eftir eigin plötu og spila með Múm er Ólöf með fleiri járn í eldinum. ,,Ég er til dæmis búin að vera að spila svolítið með Skúla Sverrissyni, bæði inn á plötu og á tónleikum hér- lendis og erlendis. Við höfum spilað víða í Englandi, Madríd, Köln og fleiri stöðum. Svo stendur til að gera eitt- hvað meira á hans vegum á næstunni. Það er því nóg að gera. Ég nýt þess að vera virk á mismunandi vettvangi. Um þessar mundir er ég að vinna að tveimur verkefnum, annars vegar er ég að semja tónlist fyrir stuttmynd og hins vegar að vinna með Steingrími Eyfjörð, en ég sé um tónlistarhlutann í einu verka hans sem verður á Bi- ennalnum í Feneyjum í sumar. Ást og píanóleikur Ólöf er í sambúð með Ragnari Ís- leifi Bragasyni sem er í námi í leik- listardeild Listaháskólans sem heitir fræði og framkvæmd. ,,Námið er bæði fræðilegt og verk- legt. Það er ekki almennt leikaranám heldur er þar kennt annað sem teng- ist leikhúsinu. Ragnar lærði á píanó hérna áður fyrr og ég stefni að því að fá hann til að dusta rykið af þeirri kunnáttu þannig að hann geti far- ið að spila með mér á ferðalögum. Hann er auðvitað bundinn af nám- inu núna og auðvitað verður hann að fá að ráða sjálfur hvort hann á eftir að leggja fyrir sig tónlistina. En það væri indælt að fá hann í lið með mér þar sem ég er mikið á ferðinni vegna ferðalaga og vinnu.“ Ólöf lítur björtum augum til fram- tíðarinnar. ,,Mig langar til að halda áfram í tónlistinni og gera fleiri plötur. Mig langar ekki endilega að gera sóló- plötur, ég hef áhuga á að taka þátt í alls kyns samstarfi og svo væri gam- an að skrifa verk fyrir aðra hljóðfæra- leikara og þá hef ég klassískar tón- smíðar í huga. Það er um að gera að vera bjartsýnn, því bjartsýnin skilar mestu. thorunn@dv.is ,,Vissulega er diskurinn tregafullur. Hann er um fjölskylduna og treg- ann en jafnframt gleð- ina sem fylgir fjölskyldulífi.“ Beggja heima sýn Ólöf leikur jöfnum höndum klassík, þjóðlagatónlist, popp og rokk. Framtíðin ber margt í skauti sínu langar að semja klassíska tónlist í framtíðinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.