Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Blaðsíða 52
Menning
miðvikudagur 4. apríl 200752 Menning DV
Páskaleikrit
RÚV
Útvarpsleikhúsið endurflyt-
ur leikrit Jóhanns Sigurjónsson-
ar, Mörð Valgarðsson, í þýðingu
Sigurðar Guðmundssonar og
leikgerð Bríetar Héðinsdótt-
ur klukkan 13.00 á páskadag.
Tónlistin í verkinu er eftir Leif
Þórarinsson og flutt af Sinfón-
íuhljómsveit Íslands. Á undan
flutningi leikritsins flytur Jón
Viðar Jónsson inngangsorð.
Meðal leikara eru Þorsteinn Ö.
Stephensen og Helga Bach-
mann. Leikritið var áður á dag-
skrá árið 1983.
Passíusálmar í Hallgrímskirkju
óPERA
vEtRARhátíð
Í garðinum
mínum
Sýning Rósu Sigrúnar Jóns-
dóttur, Í garðinum mínum,
verður opnuð á skírdag í gallerí
BOXi á Akureyri. Á sýningunni
verða sýnd postulínsverk eftir
Rósu. Hún útskrifaðist úr Lista-
háskóla Íslands 2001 og hefur
tekið þátt í ýmsum sýningum
innan lands og utan. Síðustu
þrjú ár hefur hún verið for-
maður Myndhöggvarafélags-
ins í Reykjavík. Sýning Sigrúnar
stendur til 22.apríl.
Hallgríms-
passía
Á föstudaginn langa verður
óratórían Hallgrímspassía eftir
Sigurð Sæv-
arsson frum-
flutt í Hall-
grímskirkju.
Verkið er
byggt á Pass-
íusálmum
Hallgríms
Péturssonar
og aðalhlut-
verk verksins, Hallgrímur sögu-
maður, er skrifað fyrir bassa-
söngvara. Fleiri einsöngvarar
og kór fara svo með hlutverk
persóna píslarsögunnar, eins og
þær birtast í Passíusálmunum.
Flytjendur eru kammerkórinn
Schola cantorum, sem nýver-
ið var tilnefndur til Tónlistar-
verðlauna Norðurlandaráðs,
Jóhann Smári Sævarsson bassi
og kammerhópurinn CAPUT.
Stjórnandi er Hörður Áskels-
son. Tónleikarnir hefjast kl. 22.
Frá Róm til Hollywood með viðkomu í Japan
Óperan hefur verið kvikmynduð nokkrum sinnum,
meðal annars árið1982 í leikstjórn Franco Zeffirell-
is, þar sem Yelena Obraztsova og Plácido Domingo
fóru með aðalhlutverkin.
Atriði úr óperunni eru notuð sem bakgrunnur í
lokaatriði þriðju og síðustu kvikmyndarinnar um
Guðföðurinn og hið fræga millispil óperunnar
hljómar á plötunni sem gefin var út með tónlist-
inni úr myndinni. Í Guðföðurnum eru atriðin ekki
birt í réttri tímaröð, sem dæmi um það má taka að
drykkjusöngur Turiddus kemur á undan aríu Al-
fiosar.
Þrjú brot úr tónlistinni voru notuð í kvikmynd
Martin Scorsese, Raging Bull og einnig má heyra
nokkra tóna í kvikmyndinni Avanti!
Í einum af þáttum sjónvarpsþáttanna vinsælu um
Hótel Tindastól, þar sem fjallað var um samskipta-
vandamál, spyr hótelhaldarinn Basil Fawlty kokk-
inn Terry hvort hann kunni að meta Cavalleria Ru-
sticana. Terry svaraði að hann hefði aldrei smakkað
þann rétt.
Millispil óperunnar var einnig notað í einum þætti
hinna vinsælu japönsku teiknimyndaþátta Ru-
rouni Kenshin, í atriðinu þegar Himura Kenshin
kveður Kamiya Karou og fer til Kyoto.
Í kvikmyndinni Love Story, sem sló öll aðsókn-
armet þegar hún birtist fyrst á tjaldinu árið 1970,
vaknar spurning hjá hinni snobbuðu fjölskyldu Ol-
iver Barrets fjórða, sem leikinn er af Ryan O´Neal,
hvort kærasta hans, Jennifer Cavilleri, gæti hugs-
anlega verið afkomandi Cavalleri, þess sem óper-
an er kennd við!
Í kvikmyndinni A Midsummer Night´s Dream frá
árinu 1999 og byggð er á leikriti Shakespears, er
tónlistin úr milliþættinum not-
uð í nokkrum atriðum og er mest
áberandi þegar Bottom, sem
leikinn er af Kevin Klein, og Titania, sem leikin er
af Michelle Pfeiffer, tjá hvort öðru ást sína.
Tónlistin úr óperunni Cavalleria Rusticana er oft notuð í þágu kvikmyndanna.
Lestur Passíusálmanna á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju er orðin
föst hefð í kirkjunni á föstudaginn langa og sækir mikill mannfjöldi
þangað allan daginn til að hlýða á lesturinn. Í ár hefur Grétar Einarsson
umsjón með lestrinum, en lesarar auk hans verða Arnar Jónsson, Guðrún
Ásmundsdóttir og Ragnheiður Steindórsdóttir leikarar.
Um tvö þúsund ungmenni hafa
tekið þátt í starfi kórs Menntaskól-
ans við Hamrahlíð á þeim tæplega
fjörutíu árum sem hann hefur starf-
að, en hann var stofnaður haust-
ið 1967. Fyrstu árin var hann ein-
göngu skólakór, en undanfarin 25 ár
hefur einnig verið starfræktur „eldri
kór“ - Hamrahlíðarkórinn, þar sem
útskrifaðir kórfélagar syngja með
vönum félögum í skólakórnum. Á
þessum 40 árum hefur kórinn ferð-
ast til flestra Evrópulandanna, Jap-
ans, Bandaríkjanna, Kanada, Ís-
rael, Filippseyja og víðar. Þá hafa
íslensk tónskáld verið iðin við að
semja verk sérstaklega fyrir kórinn
og eru þau nú yfir 80 talsins. Kórinn
var nýverið tilnefndur til Tónlistar-
verðlauna Norðurlandaráðs og það
raunar ekki í fyrsta skipti, því hann
var einnig tilnefndur árið 1992.
Verðlaunin, sem nema um 4 millj-
ónum íslenskra króna, verða veitt á
þingi Norðurlandaráðs í Osló í okt-
óber. Þorgerður Ingólfsdóttir hefur
stjórnað kórnum frá upphafi.
Erfiðara að hætta en byrja
„Þegar kórinn var stofnaður, í
október 1967, fannst einn tenór til að
syngja með honum, svo voru menn
hálfpartinn dregnir í kórinn - sumir
með herkjum. Því hefur þó verið lýst
hvernig það þurfti mun meira átak til
að hætta að syngja með kórnum en
byrja,“ segir Þorgerður. Kórinn varð
þó fljótt vinsæll meðal nemenda,
svo vinsæll raunar að þegar þurfti
að bæta við kórinn vegna flutnings
á stóru verki árið 1981 reyndist lítið
mál að kalla til útskrifaða nemend-
ur. „Þeir tóku fagnandi tækifærinu
til að syngja áfram með kórnum og
til varð mjög sterkt lið. Hamrahlíðar-
kórinn var síðan stofnaður formlega
árið 1982.“
Tónlistarlegt uppeldi
Eins og fyrr segir hafa um tvö þús-
und manns tekið þátt í starfi kórsins.
Þorgerður segist sjá gamla kórfélaga
víða og þá ekki síst í allskyns kórum
og öðru tónlistarstarfi. Ef til vill má
því segja að tónlistarlegt uppeldi í
kórnum fylgi fólki áfram út í lífið.
„Við í Hamrahlíðinni erum kannski
nokkurskonar móðurkartafla, svo
spretta kartöflur hingað og þangað
út frá henni,“ segir Þorgerður. Marg-
ir kórfélagar hafa einnig látið að sér
kveða sem einsöngvarar og á hinum
ýmsu sviðum tónlistar.
Hörð samkeppni
Samtals eru 12 kórar tilnefnd-
ir til Tónlistarverðlauna Norð-
urlandaráðs í ár. Tveir frá hverju
Norðurlandanna, einn frá Fær-
eyjum og einn frá Grænlandi. Frá
Íslandi er Schola Cantorum til-
nefndur auk Hamrahlíðarkórsins.
Meðal tilnefndra eru kórar á borð
við danska Útvarpskórinn, Ein-
söngvarakórinn norska og fleiri
úrvalskóra sem skipaðir eru mjög
færum söngvurum. Þorgerður segir
að þarna geti verið ólíku saman að
jafna. „Við erum þarna að etja kappi
við atvinnufólk frá hinum Norður-
löndunum, fólk sem til dæmis get-
ur titlað sig tenór í símaskránni. Í
okkar röðum eru hinsvegar 17 og 18
ára ungmenni, sem sum eru jafnvel
ekki vön að lesa nótur. Þannig að
það er töluverður munur þarna á.
Hinsvegar hafa þessir unglingar oft
náð töluverðum hæðum, gert mjög
eftirminnilega hluti og snert við
mörgum.“
Í Menntaskólanum við Hamrahlíð hefur undanfarin 40 ár verið starf-
ræktur kór undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Hann var nýverið til-
nefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs öðru sinni.
kartöflurækt í Hamrahlíð
Kórstjórinn Þorgerður ingólfsdóttir hefur stjórnað kórnum frá stofnun hans árið 1967.
Tónlistarleg