Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Blaðsíða 20
miðvikudagur 4. apríl 200720 Helgarblað DV
Fjölskyldufjör um páskana
Hott Hott á Hesti
Íshestar í Hafnarfirði verða með hestaferðir alla páskana. Hægt er að
velja á milli klukkutíma eða tveggja tíma ferða og eru brottfarir klukkan
10 og 14. Best er að hringja á undan sér og panta pláss en mæting er
hálftíma fyrir brottför. Klukkutíma reiðtúr kostar 4.200 krónur og tveir
tímar 4.900 en börn fá 25% afslátt. Innifalið í verði er allur búnaður eins
og stígvél, hjálmur, regn- eða kuldagalli. Að reiðtúr loknum er kjörið að
fá sér ekta íslenska kjötsúpu í veitingaaðstöðu hestamiðstöðvarinnar.
Föndrað með
trölladeig
Ef veðrið er leiðinlegt um pásk-
ana er tilvalið að taka föndurdag.
Hér er uppskrift af trölladeigi en
fleiri einfaldar en skemmtilegar
föndurhugmyndir má fá á heima-
síðunni fludir.akureyri.is.
Trölladeig
300 gr salt
300 gr hveiti
1 msk. matarolía
Þetta er hrært saman í skál og út í er
vatni bætt í smáum skömmtum þar til
deigið er orðið að stórri kúlu. Hnoðið
deigið með höndunum þar til það
er orðið mjúkt og teygjanlegt. Úr
deiginu eru síðan alls konar fígúrur
mótaðar. Það er til dæmis kjörið að
nota piparkökumót. munið að gera
gat á fígúrunar til þess að hægt sé að
hengja þær upp. leggið fígúrurnar á
bökunarplötu og bakið við 180°C í 1-2
klukkustundir. Stundum þarf að baka
hlutina lengur ef þeir eru þykkir.
Þegar búið er að baka hlutinn og hann
hefur kólnað er tilvalið að mála hann.
athugið að ef hluturinn er lakkaður þá
lengir það líftíma hans töluvert. Séu
menn ekki með aðgang að ofni er hægt
að búa til keramikdeig til að föndra úr,
því það þarf ekki að baka heldur er það
bara látið þorna.
Keramikdeig
1 bolli maisenamjöl
2 bollar salt
2/3 bolli vatn
vatnið og saltið er soðið saman.
maisenamjölið er leyst upp í 1/2 bolla
af vatni og sett út í soðið. Þetta er hrært
vel saman þar til þetta er orðið að ágætis
deigi til að móta skemmtilegar fígúrur
úr.
páska-„bruncH“ á Hóteli
Hótelin eru opin alla páskana og þannig er tilval-
ið að gera sér dagamun og klæða sig fínt upp og
mæta í mat á eitthvert þeirra. Veitingastaðurinn
Vox á Nordica hóteli býður til dæmis upp á páska-
„brunch“ 5., 6., 8. og 9. apríl frá 11.30 til 14. Verð fyr-
ir fullorðna er 2.200 en börn á aldrinum 6 til 12 ára
borga hálft verð. Börn yngri en 6 ára borða frítt. Börn
geta vel haft gaman af því að fara á fína veitingastaði en
vissulega þurfa foreldrarnir að sjá til þess að þau séu prúð og stillt.
páskaungar í Húsdýragarðinum
Það er opið í Fjölskyldu- og húsdýragarð-
inum alla páskana milli klukkan 10 og 17
og verður þar ýmislegt skemmtilegt um
að vera. Börnin geta komist á hestbak alla
dagana á milli klukkan 14 og 14.30 og ef
veður leyfir verða eftirfarandi tæki opin:
lestin, hringekjan, krakkafoss, fallturn-
inn og ærslabelgurinn. Í smádýrahúsinu
er hægt að skoða sæta hænuunga og svo
er líka hægt að taka þátt í páskaratleik þar
sem fyrstu 1.000 krakkarnir sem leysa
þrautina fá verðlaun. Á páskadag verður
svo sunnudagaskóli á vegum Laugarneskirkju í garðinum kl. 11. Aðgangs-
eyrir að garðinum er 550 krónur fyrir fullorðna og 450 krónur fyrir börn á
aldrinum 5 til 12 ára. Yngri börn fá frítt inn.
Vorlaukarnir gróðursettir
Páskarnir eru rétti tíminn til þess
að setja vorlaukana niður. Krakk-
ar geta haft mjög gaman af slíku
stússi. Leyfið þeim að velja sér
tegund og setja niður í sitt eigið
horn í garðinum. Það getur síð-
an orðið að föstum lið að fylgjast
með gróskunni og vökva.
skautað í reykjaVík
og á akureyri
Skautahöllin í Reykjavík er
opin alla páskana frá 13 til
18. Það kostar 700 krónur inn
þurfi börnin að leigja skauta en
annars er aðgangseyririnn 400
krónur. Fullorðnir greiða 100
krónum meira. Skautahöllin á
Akureyri er líka opin alla pásk-
ana á milli 13 og 17 og er sama
verð þar og í Skautahöll Reykja-
víkur.
Vetrarfjör á Akureyri
margir bregða sér á skíði um páskana en
hægt er að fá upplýsingar um opnunar-
tíma og ástand íslensku skíðasvæðanna
á heimasíðunni www.skidasvaedin.is.
1
2
3
4
5 6
9