Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Síða 32
Risamótin eru fjögur, US Masters er alltaf fyrst og svo fylgja í kjölfar- ið, Opna bandaríska meistaramótið, Opna breska meistaramótið og PGA- meistaramótið. Ólíkt öðrum risa- mótum er US Masters alltaf leikið á sama vellinum, Augusta-velllinum, sem er völlur í einkaeign og staðsett- ur í Georgíufylki. Sigurvegari mótsins fær græna jakkann sem þykir einn mesti heið- ur í golfheiminum og hefur hann verið veittur frá 1949. Sigurvegarinn fær einnig að leika á öllum risamót- unum fjórum í fimm ár og ævilangt boðskort á US Masters. Í fyrra var verðlaunaféð 7 milljónir dollara eða rétt rúmlega 500 milljónir króna. Sagan Saga US Masters er glæsileg og mörg af frægustu augnablikum golf- sögunnar hafa orðið á Augusta-vell- inum. Arnold Palmer drottnaði yfir Masters-keppninni frá 1958-1964 og vann græna jakkann alls fjórum sinnum. Hann á einn ótrúlegasta sigur í sögu Masters árið 1960 þegar hann var einu höggi á eftir Ken Vent- uri þegar tvær holur voru eftir. Pal- mer setti 25 feta pútt niður á sautj- ándu og jafnaði metin. Á átjándu og síðustu holunni fékk hann fugl við afar erfiðar aðstæður og sýndi og sannaði að hann væri einn besti gol- fari síns tíma. Þegar Palmer var uppi á sitt besta var ungur golfari að hasla sér völl, Jack Nicklaus. Nicklaus vann fyrsta græna jakkann sinn árið 1963. Tveimur árum síðar, 1965, lék hann nánast óaðfinnanlega og þeg- ar hann hafði lokið leik var hann á 17 höggum undir pari og fagnaði sigri. Nicklaus vann sinn fimmta græna jakka árið 1975 þegar hann setti nið- ur ótrúlegt 40 feta pútt á sextándu braut. Hann vann Tom Weiskopf í mögnuðu einvígi. Nicklaus vann græna jakkann alls sex sinnum, oft- ar en nokkur annar, en síðasti jakk- inn hans kom árið 1986 þegar hann var 46 ára gamall og er hann elsti keppandinn sem hefur farið í jakk- ann góða. Gary Player frá Suður-Afríku varð 1961 fyrsti maðurinn utan Banda- ríkjanna sem vann græna jakkann. Eftir að Arnold Palmer hafði fengið tvöfaldan skolla á síðustu holunni nýtti Player sér sjaldséð mistök Pal- mers til hins ítrasta og fagnaði sigri. Player vann alls þrjú US Masters- mót, það síðasta árið 1978 þá orð- inn 41 árs gamall. Flestir höfðu af- skrifað hann fyrir það mót en lengi lifir í gömlum glæðum eins og hefur sannast svo oft. Greg Norman frá Ástralíu er að margra mati mesti klúðrari í sögu US Masters. 1987 tapaði hann í um- spili fyrir heimamanninum Larry Mize sem hafði nokkru áður unnið við stigatöfluna á vellinum. 1996 hafði Norman 6 högga for- ustu á Nick Faldo fyrir lokadaginn miðvikudagur 4. apríl 200732 Sport DV Fáir veðja gegn Tiger Woods Fyrsta risamót ársins í golfi, US Masters, hefst á morgun. Talið er líklegt að baráttan um græna jakkann muni standa á milli Tigers Woods og Phils Mickelson, sem hafa unnið fimm af síðustu sex mótum. Gullbjörninn Jack Nicklaus, oftast nefndur gullbjörninn, hefur unnið flesta græna jakka eða sex alls. Nicklaus vann 1963, 1965, 1966, 1972, 1975 og 1986 – þá orðinn 46 ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.