Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Qupperneq 49
DV Sport miðvikudagur 4. apríl 2007 49
þeir áttu að vera í líkamlegri upp-
bygginu. „Stefán Arnarsson, sem var
landsliðsþjálfari á þeim tíma, kvart-
aði yfir formi leikmanna í deildinni.
Ég spyr hvar voru leikmennirnir þeg-
ar þeir áttu að vera í þessari líkam-
legu uppbygginu? Þeir voru einmitt
í landsliðsverkefnum á þeim tíma-
bilum og það er það sem ég er að
gagnrýna. Við þurfum að fá tíma til
að byggja upp okkar leikmenn svo
þeir nýtist landsliðunum betur þegar
á þarf að halda,“ sagði Aðalsteinn og
er mikið í mun að koma því á fram-
færi að hann hafi ekkert persónulega
á móti núverandi landsliðsþjálfara.
Margt gott í íslenskum
handknattleik
„Við Íslendingar erum frábært
keppnisfólk. Við hefjum keppni strax
ung að árum og lærum fljótt að til-
einka okkur klókindi inni á vellinum.
Það þekkist sjálfsagt á fáum stöðum
að börn æfi skipulagða íþróttagrein
þrisvar til fimm sinnum í viku. Þetta
veitir okkur ákveðið forskot á önnur
lönd til að byrja með og veitir okkur
ákveðið sjálfstraust.
Við höfum séð yngri lið okkar ná
frábærum árangri í gegnum tíðina.
Vandinn eykst hins vegar þegar við
eldumst. Þá erum við að tapa gegn
sömu þjóðum og við unnum áður,
þar sem þau hafa þá náð meiri lík-
amlegum styrk. Þau eiga auðveldara
með að brjóta sóknarleik okkar nið-
ur og vinna okkur maður á mann lík-
amlega,“ sagði Aðalsteinn. Hann tel-
ur að með aukinni nýtingu á þeirri
frábæru þekkingu sem til er innan
íslensks íþróttalífs, sé hægt að bæta
líkamlega þáttinn til mikilla muna og
nýta sér enn betur þá kosti sem við
búum yfir.
„Það er allt fullt af þekkingu í
kringum okkur. Við þurfum ekki að
finna upp hjólið aftur og aftur. Við
höfum Akademíuna í Reykjanesbæ
og Kennararháskólann á Laugar-
vatni. Þar býr mikil þekking sem okk-
ur stendur til boða að nýta okkur. Ég
tel að við ættum að stunda líkamleg-
ar prófanir í ríkari mæli og nýta okk-
ur þessi próf til að auka markvissa
vinnu með leikmenn líkamlega.
Ragnar hefur aldeilis opnað augu
mín fyrir þessari markvissu langtíma
vinnu sem skilar svo miklum árangri
til lengri tíma. Við erum algjörir kerf-
asnillingar og stöndum öðrum þjóð-
um framar þegar kemur að skipu-
lagningu innan vallar. Þetta hefur
fleytt okkur langt í gegnum tíðina og
skilað okkur góðum árangri. Árangri
sem gæti orðið betri og stöðugri en
við eigum að venjast, ef við bætum
líkamlega þætti okkar í íþróttinni.“
Kornabarn í stúkunni
Þegar Aðalsteinn er spurður út í
handknattleiksiðkun sína og hvern-
ig hans þjálfaraferill hófst, gerir hann
sem minnst út á sinn feril sem leik-
manns. „Ég var bara þokkalegur
yngri flokka spilari, ekkert frábær og
ekki lélegur. Ég smitaðist mjög fljótt
af handboltaáhuga enda gat ég ekki
annað. Ég var kominn í stúkuna sem
kornabarn þegar faðir minn var að
spila og vandist því fljótt að flækjast
á milli húsa að fylgjast með honum,“
sagði Aðalsteinn en þess má geta að
faðir hans, Eyjólfur Bragason, er mar-
greyndur handboltakappi og þjálfari
til margra ára. „Ég þekki lítið annað
en lífið með handbolta og get hrein-
lega ekki hugsað mér lífið án þess að
lifa og hrærast í þessu.“
Þegar við spurðum út í feril Að-
alsteins kemur í ljós að hann hef-
ur oftar en ekki stigið niður fæti þar
sem faðir hans var áður. „Já, það er
rétt,“ segir Aðalsteinn hlæjandi. „Það
má segja að ég hafi að vissu leyti
elt gamla manninn. Hann þjálfaði
Stjörnuna á sínum tíma, fór út í Eyjar
að þjálfa þar og starfaði um tíma hjá
ÍR. Þetta eru einmitt þau félög sem
ég hef þjálfað hjá á mínum ferli. Ég
byrjaði minn feril sem iðkandi hjá
Stjörnunni og sleit þar barnskónum,
fór síðar á flakk og kynntist fullt af
góðu fólki. Ég átti góðan tíma í Eyjum
tímabilið 2003-2004 með þeim Hlyn
Sigmarssyni, Svavari Valtý Stefáns-
syni og Viktori Ragnarsyni. Svo lærði
ég mikið á að þjálfa lið Tus Wibern í
Þýskalandi árið eftir enda alveg nýtt
umhverfi að starfa í.“
Á þessu ferðalagi sínu hefur Aðal-
steinn verið þeirrar gæfu aðnjótandi
að hafa með sér leikmenn sem hann
hóf að þjálfa strax í 5. flokki ÍR á sín-
um tíma. „Já ég er sérstaklega stolt-
ur nú þegar við erum orðnar meist-
arar, að hafa þjálfað þessa leikmenn
síðan þær voru ungar að árum og sjá
þær þroskast í þá leikmenn sem þær
eru í dag. Nú er þessu flakki lokið hjá
mér. Ég er búinn að leita mér þekk-
ingar um víðan völl og nú er ég kom-
inn heim í Garðabæinn aftur. Hér er
eru mínar rætur og hér vil ég láta gott
af mér leiða í framtíðinni,“ sagði Að-
alsteinn Eyjólfsson.
Kristinn Guðmundsson
Annar titillinn aðalsteinn var að vinna
sinn annan íslandsmeistaratitil á
þjálfaraferlinum.