Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Page 70
Góður tölvuleikur er ekki góður tölvuleik-
ur, nema maður fái að drepa nokkra nasista
í leiðinni. Þetta hef ég alltaf sagt. Medal of
Honor: Heroes er fyrsti skotleikurinn sem ég
prófa á PSP. Leikurinn gerist í seinni heims-
styrjöldinni og er nokkurs konar samantekt á
Medal of Honor leikjunum frægu. Leikmenn
eru hluti af úrvalssveit hermanna sem þurfa
að drepa þá nasista, sem venjulegir hermenn
eru ekki færir um að drepa. Verkefnin eru
skemmtileg og hasarinn nægur. Medal of
Honor hefur aðeins tvo galla. Fyrir það fyrsta
er leikurinn alltof stuttur. Þegar maður er bú-
inn að bjarga Hollandi, Ítalíu og Belgíu, er
gamanið búið. Maður fær ekkert að spreyta
sig á Arnarhreiðrinu sjálfu. Ömurlegt. Svo
eru það stýringarnar en það gefur augaleið
að jafn smá og samanþjöppuð tölva mun
eiga í vandræðum með að stýra skotleik.
Ekki það að maður venjist ekki stýringunum,
heldur getur maður aldrei masterað þær að
fullnustu. Þess vegna er ósanngjarnt að gefa
stig fyrir hittni, þar sem það er mjög erfitt að
stýra byssunni. Að öðru leyti er leikurinn full-
kominn. Multi-player fítusinn bætir það upp
hve leikurinn er stuttur, en síðan ég kláraði
leikinn hef ég verið iðinn við að keppa við
nasista staðsetta í öllum hornum heimsins.
Þannig séð er Medal of Honor: Heroes besti
leikur sem ég hef prófað á PSP, en því miður
þá er þetta hálfófyrirgefanlegt með stýring-
arnar og kostar eina stjörnu.
Dóri DNA
dóri dna segir:
&
U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s
MIÐVIKUdagUr 4. aPrÍL70 Páskablað DV
leikirtölvu
Sims 2 Celebration Stuff - PC
Full auto 2: Battlelines - PSP
afterburner - PSP
Call of duty Warchest - PC
guitar Hero Bundle - XboX 360
Kíktu á þessa
leiKjatölvur
NiNteNdo.is
Heimasíðan nintendo.is hefur verið
tekin í gegn og fengið nýtt andlit.
Takmarkið með síðunni er að gera
upplýsingar um
Nintendo-
leikjavélar og -leiki,
aðgengilegri fyrir
almenning. Þá hefur
einnig verið stofnað
samfélag Nintendo-
áhugafólks á
Íslandi. Samfélagið kallast Nintendo-
klúbburinn og er hægt að skrá sig í
hann á síðunni. Klúbbmeðlimir fá
send fréttabréf og tilkynningar um
sértilboð frá ormsson. Wii og DS fá
hvort sitt svæði á síðunni, þar sem
fjallað er um það helsta sem um er að
vera hverju sinni.
Mario og
soNic saMaN
Væntanlegur er leikurinn Mario &
Sonic at the olympic Games. Hann
er merkilegur vegna þess að í
honum mætast hinar sögulegu
tölvuleikjafígúrur Mario og Sonic í
fyrsta sinn í tölvuleik. Leikurinn
verður fáanlegur bæði á Wii og DS.
Leikurinn er gerður í kringum
ólympíuleikana sem fara fram í
Peking 2008. Persónur úr heimum
Marios og Sonics munu einnig prýða
leikinn sem er væntanlegur í
verslanir um jólin.
Miklar vangaveltur hafa verið
uppi um hina umtöluðu Elite-út-
gáfu af Xbox. Nú hefur hulunni ver-
ið svift af þessu verst geymda leynd-
armáli tölvuleikjabransans og Xbox
360 Elite litið dagsins ljós. Tölvan
verður varanleg viðbót við Xbox-
keðjuna en ekki í takmörkuðu upp-
lagi eins og sögusagnir hermdu.
Það er ekkert launungarmál
að Microsoft sé að setja
Elite-vélina á markað
til þess að reyna að
stemma stigu við
hinni geysiöflugu
PS3.
Xbox 360 Elite
verður með 120GB
hörðum disk í stað
þess 20GB sem er fá-
anlegur fyrir. Á vélina
bætist einnig HDMI-
tengi sem styður spil-
un 1080p mynda.
Þetta er í rauninni
helsta breytingin við
Elite-vélina sem er að
öðru leyti sama Xbox
360-vélin og hinar. Það
kemur töluvert á óvart
en HD-DVD-spilarinn
fylgir ekki með Elite-
útgáfunni eins og bú-
ist var við en á PS3 er
Blu-Ray DVD-spilari
staðalbúnaður í öll-
um vélunum. Einnig var búist við
því að Elite-vélin kæmi í smærri út-
gáfu en svo er ekki.
Hægt verður að kaupa 120GB
harða diskinn sér þannig að Xbox
360 eigendur þurfa ekki að fjárfesta
í Elite-útgáfunni til þess að fá aukið
minni. Elite-vélin er svört á litinn.
Þá verður einhver hluti aukahluta
sem fáanlegir eru fyrir Xbox einnig
svartir og í stíl við tölvuna. Elite-vél-
in er þegar komin út í Bandaríkjun-
um og Kanada en engar dagsetning-
ar hafa verið gefnar upp um hvenær
hún kemur á markað í Evrópu.
Xbox 360 á langstærstan hluta
markaðarins af þriðju kynslóðar
tölvunum enda verið mun lengur á
markaði en Wii og PS3. Wii hefur þó
sótt hart að Xbox og selst grimmt en
sala á PS3 hefur farið hægt af stað og
verið undir væntingum. Salan er þó
farin að taka við sér í kjölfar þess
að PS3 kom á markað í Evrópu.
Til dæmis seldist PS3 í 165.000
eintökum á opnunarhelginni í
Bretlandi en það er 60.000 ein-
tökum meira en Wii, sem átti
metið fyrir.
Leikjatölvustríðið heldur
áfram og aðeins tíminn mun
leiða í ljós hver sigurvegarinn
verður. En alveg víst er að stríð-
inu er langt frá því að vera lok-
ið.
asgeir@dv.is
Medal of Honor:
Heroes
Úrvalsafþreying
tölvuleiKur
H H H H H
Réttu méR lúgeRinn, guntheR!
Microsoft hefur sett á markað Xbox 360 Elite til þess að standast PS3 snúning:
resideNt
evil 4 á Wii
Staðfest hefur verið
að leikurinn Resident
Evil 4 muni koma út á
Nintendo Wii. Talið
var að hætt hefði
verið við að útfæra
leikinn fyrir Wii en nú
virðist sem allt sé komið á
fullt aftur og leikurinn
komi út í lok júní. Þetta
verður þá annar
Resident Evil-
leikurinn sem kemur
á Wii en fyrir er til
Resident Evil:
Umbrella Chronicles.
Xbox uppfærð
til höfuðs Ps3
Aukabúnaður
Elite er með
120gB harðan disk
og HdMI-tengi.
PS3 rokselst í
bretlandi og slær met
Microsoft hefur sett á
markað Xbox 360 Elite
til þess að standast PS3
snúning.
Xbox 360 Elite Kostar
479 dollara í
Bandaríkjunum.
sérútgáfa
Bioshock
Fyrirtækið 2K mun gefa út takmark-
aða sérútgáfu af leiknum bioshock
eftir að beiðni barst frá aðdáendum
leiksins. Forsvars-
menn 2K sögðust
ætla að gera
sérútgáfu af
leiknum ef 5.000
undirskriftum yrði
safnað en það var
Cult of Rapture-
heimasíðan sem
stóð fyrir
beiðninni. Nú hafa
18.000 manns skrifað sig á listann og
sérútgáfan verður því að veruleika.
Útgáfan verður fáanleg bæði á Xbox
360 og PC en ekki hefur verið gefið
upp hvað nákvæmlega mun fylgja
pakkanum.