Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Blaðsíða 78
miðvikudagur 4. apríl 200778 Síðast en ekki síst DV
veðrið ritstjorn@dv.is
fIMMTudagurMIÐVIKudagur
Sandkorn
Pistlahöfundum sagt upp
Nú um mánaðamótin fengu
nokkrir af föstum dálkahöfund-
um Fréttablaðsins uppsagnar-
bréf. Þeirra á meðal eru Ólaf-
ur Hannibalsson og Valgerður
Bjarnadóttir. Skýring uppsagn-
anna er sögð sú að blaðið vilji
hafa meiri fjölbreytileika. Mynd-
ast nú pláss á síðum Fréttablaðs-
ins fyrir skrif pólitíkusa, enda
ekki nema rétt rúmur mánuður
til kosninga og ekki seinna að
vænna fyrir menn að stinga niður
penna.
Sigurður Tómas í nýtt starf
Bogi Nilssonríkissaksóknari lætur
af störfum í sumar. Í viðtali við
Fréttablaðið í gær sagðist Bogi
ekki vilja hafa uppi getgátur um
hver yrði hans
eftirmaður, en
staðan verð-
ur auglýst og
dómsmála-
ráðherra mun
skipa nýjan
saksóknara.En
eins og oft áður
þegar um op-
inberar stöður er að ræða hefur
nýr ríkissaksóknari þegar verið
valinn.Leitin að eftirmanni Boga
mun víst hvorki hafa staðið lengi
né verið erfið. Sigurður Tómas
Magnússonsettur ríkssaksóknari
í Baugsmálinu mun ekki verða
hissa þegar hann fær tilkynningu
um að hann fái djobbið...
Mugison til Súðavíkur
Tónlistarmaðurinn Mugison flutti
nýverið til Súðavíkur. Nánar til-
tekið í byrjun mars. Hann hafði
sótt um að
kaupa gömlu
slökkvistöðina í
Hnífsdal sem er
skammt frá Ísa-
firði. Þar hugð-
ist hann reisa
stúdíó og sinna
tónlist sinni.
Það fór út um
þúfur en ástæðan mun vera sú að
maður sem hafði stefnt Ísafjarð-
arbæ bauðst til þess að láta af
stefnuninni ef bærinn léti hann
fá stöðina gömlu. Maðurinn
höfðaði málið vegna þess að Ísa-
fjarðarbær reif bílskúr í hans eigu
fyrir misgáning. Mugison hyggst
samkvæmt heimildum innrétta
bílskúr í staðinn sem tónlistar-
aðstöðu.
Plokkfiskur og faðmlag
Og meira af Ísafirði því hátíðin
Aldrei fór ég suður verður haldin
um páskahelgina. Allir þeir lista-
menn sem fram koma munu gefa
sitt framlag til hátíðarinnar. Það
hefur gefist vel að sögn kunnugra
en babb kom í bátinn um daginn.
Þá forfallaðist hljóðmaður sem
hefur hingað til séð um hátíð-
ina. Þetta kom staðarhöldurum
í opna skjöldu og leita þeir nú
ljósum logum að arftaka hljóð-
mannsins góða. Þeir bjóða engin
laun frekar en fyrr, aftur á móti
vilja þeir koma til móts við þann
sem hugsanlega býður sig fram
og bjóða honum plokkfisk og
faðmlög fyrir vinnuframlagið.
Tengsl
Lindu Pétursdóttur að hafa verið
kjörin ungfrú heimur
Linda á það sameiginlegt með
Margréti J. Pálmadóttur, söngkonu
og kórstjóra, að hafa búið á
Húsavík.
Margrét á það sameiginlegt með
agli Ólafssyni tónlistarmanni að
hafa átt stóran þátt í uppfærslunni
á Eva Luna.
Egill á það
sameiginlegt
með
Jakobi frímanni
Magnússyni að
vera í Stuðmönn-
um
Jakob frímann
á það
sameiginlegt
með Kristni H.
gunnarssyni
að hafa skipt
um flokk.
Kristinn á það
sameiginlegt
með
Ellert B. Schram
að eiga maka
sem er
hjúkrunarfræðingur.
Ellert á það sameiginlegt
með Páli Óskari
Hjálmtýssyni, söngvara að
búa við Sörlaskjól.
Páll Óskar á það sameiginlegt með
Skildi Eyfjörð að hafa verið
dragdrottning.
Skjöldur Eyfjörð á það sameigin-
legt með unni Birnu Vilhjálms-
dóttur að hafa verið valinn
drottning númer eitt.
...unnur Birna Vilhjálmsdóttir
á það sameiginlegt með
Drengjakórinn starfar í Hall-
grímskirkju og syngur þar í messu
einu sinni í mánuði. Einkunnarorð
kórsins eru: ,,Syngja eins og engl-
ar, hegða sér eins og herrar og leika
sér eins og strákar.“ Friðrik segir þau
lýsandi fyrir hið mikla uppeldislega
gildi kórstarfsins, en það kenni strák-
unum að vinna saman og taka tillit til
annarra.
,,Einhvern veginn tekst okkur að
halda uppi aga þótt strákarnir komi
beint úr skólanum og séu stundum
frekar hátt stemmdir. Við reynum að
hafa mikinn aga, við gerum þær kröf-
ur að allir séu kurteisir, komi fallega
fram og sitji og standi beinir í baki.
Það er ólíkt því sem gerist í dag þegar
krakkar fá að valsa um og eru svolítið
ráðríkir. Ég þarf að glíma við að snúa
þessu við áður en æfingarnar hefjast.
Strákarnir taka aganum vel því þeir
finna hvað allt gengur betur þeg-
ar allir eru stilltir og prúðir. Margir
þeirra fá aukinn áhuga á tónlist og
fara í alls kyns tónlistarnám. Þetta
spilar allt saman. Yfirleitt helst það
í hendur að þeir sem eru duglegir í
tónlistarnámi eru duglegir að læra
því þeir hafa tamið sér öguð vinnu-
brögð. Fyrir tveimur árum var stofn-
uð undirbúningsdeild fyrir 6 til 8 ára
stráka og um þessar mundir eru sjö
strákar í þeim hópi. Þeir fengu að
koma fram með kórnum um jólin og
gera það aftur í maí. Einnig fá þeir að
taka þátt í tónleikunum okkar í vor ef
þeir standa sig vel.“
Það komast ekki allir í kórinn því
allir þurfa að taka inntökupróf þar
sem röddin er prófuð og látið reyna
á tónheyrnina. Verkefni kórsins eru
þess eðlis að gera þarf vissar kröfur
til strákanna.
,,Kórinn syngur í þriggja radda
útsetningum og stundum fjögurra
og kemur fram jafnt utan sem inn-
an kirkjunnar. Við komum fram við
ýmis tækifæri, ráðstefnum og hátíð-
um og strákarnir eru mjög spenntir
þegar þeir fá að syngja fyrir forset-
ann og erlenda gesti. Annað hvert ár
förum við í söngferðalag til útlanda
og hitt árið höldum við tónleika hér
heima. Þetta er góður kór sem er að
gera góða hluti. Nú erum við að taka
upp disk sem kemur út um næstu
jól. Á honum er blanda af andlegri
og veraldlegri tónlist og strákarnir
syngja á latínu, frönsku, þýsku og ís-
lensku. Við erum einnig að undirbúa
ferð til Barselóna á næsta ári. Það
verður spennandi að heyra hvern-
ig diskurinn heppnast og einnig eru
vortónleikarnir tilhlökkunarefni. Ég
skora á fólk að fylgjast með þessum
duglegu strákum.“
Friðrik er einnig stjórnandi
Karlakórs Reykjavíkur og hefur ver-
ið það í 17 ár. Aðspurður hvort það
sé mikill munur á því að stjórna
„gömlu körlunum“ og strákunum
segir hann lítinn mun þar á.
„Málið er það að í Karlakórn-
um eru strákar sem voru áður í
barnakórnum. Það finnst mér mjög
skemmtilegt. Í Karlakórnum eru
ungir menn í meirihluta, marg-
ir þeirra á aldrinum 20 til 25 ára.
Það hefur orðið mikil endurnýj-
un í kórnum og það er af sem áður
var þegar kórfélagar voru yfirleitt af
eldri kynslóðinni. Ungum mönnum
í dag þykir upphefð að því að syngja
í karlakór.“
Tvisvar í viku safnast 40 strákar á aldrinum 8 til 13 ára saman í
Hallgrímskirkju, stilla sér upp eins og litlir englar og hefja upp raust
sína. friðrik S. Kristinsson, stjórnandi Drengjakórs Reykjavíkur,
segir marga tónlistarmenn framtíðarinnar leynast í hópnum og það
sé lítið mál að halda uppi aga í þessum hressa hópi.
ENGLAR, HERRAMENN
OG HRESSIR STRÁKAR
Í SÁTT OG SAMLYNDI
drengjakór reykjavíkur ,,Þetta er góður kór sem er að gera góða hluti.“
friðrik S.
Kristinsson
kórstjóri
,„við komum fram
við ýmis tækifæri, á
ráðstefnum og
fleira og strákarnir
eru mjög spenntir
þegar þeir fá að
syngja fyrir
forsetann og
erlenda gesti.“
4
44
8
7 12
8 7
10
79
12
6 4
7
4
6
7
9 7
1
1
-1
0 -2
-3 14
0
43
11
3 1
1 4
55
4
1