Fréttatíminn - 22.10.2010, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 22.10.2010, Blaðsíða 4
Ógleymanleg saga Rifjaðu upp kynnin af einni ástsælustu sögu heimsbókmenntanna „Hundrað ára einsemd er eitthvert áhrifamesta skáld- verk sem hefur komið út í íslenskri þýðingu.“ EinaR FaluR ingólFsson / MoRgunblaðið www.forlagid.is Ég gat enga björg mér veitt heldur lögðust á mig fimm karl- menn og með aðstoð læknis og hjúkrunarfræðings ... veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Minniháttar él eða slydduél norðaustan- og austanlands, en annars úrkoMulaust. höfuðborgarsvæðið: Léttskýjað og hægur vindur af norðaustri. svipað veður, en lítið eitt kólnandi á landinu höfuðborgarsvæðið: Áfram bjartviðri og vægt frost, nema yfir miðjan daginn. bjart veður og hægur vindur uM Mikinn hluta landsins en él norðaustantil. höfuðborgarsvæðið: hægviðri, bjart og faLLegt veður og hiti um eða undir frostmarki. fremur svalt um helgina, en hlýnar heldur á mánudag Það verður áfram fremur svalt á landinu eins og verið hefur undanfarna daga. Þó hitinn togist upp fyrir frostmarkið sums staðar þar sem lág haustsólin nær að skína er spáð vægu frosti um land allt að öðru leyti. Þrátt fyrir kuldatíðina er ekki að sjá að snjór nái að falla suðvestanlands. hins vegar verður élja gangur norðaust- an- og austan lands, einkum á sunnu dag. vindurinn na-stæður, en alls ekki hvass. 3 2 3 0 4 2 0 0 1 3 0 1 2 2 0 einar sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is É g er að bíða eftir að fá læknis-vottorð frá Maríu og síðan mun ég senda bótakröfuna til ríkislögmanns,“ segir Jón Egilsson, lögmaður Maríu Bergsdóttur, spurður hver staðan sé á málinu. Hann segir ekki eftir miklu að slægjast í máli sem þessu. „Mig minnir að hámarksupp- hæðin sé um 1,5 milljónir.“ Dóms- og mannréttindaráðuneytið fól ríkislögmanni að taka afstöðu til bóta til handa Maríu Bergsdóttur eftir athugasemdir frá umboðsmanni Alþingis. María var handtekin fyrir utan Selfoss í mars árið 2007 vegna gruns um ölvunarakstur. Hún neitaði að gefa þvagsýni og í framhaldinu var þvag- legg þröngvað upp í líkama hennar til að ná sýninu. María lýsti upp- lifun sinni í Fréttatímanum í síðustu viku og voru þær lýsingar ekki fögur lesning. „Ég gat enga björg mér veitt heldur lögðust á mig fimm karlmenn og með aðstoð læknis og hjúkrunar- fræðings var eins og mér væri nauðg- að á steinbekknum,“ sagði María í við- María bergsdóttir sækir bætur til ríkisins vegna meðferðinnar árið 2007. Ljósmynd/Hari  Mál Maríu Bergs – BótakraFa vegna FraMkoMu selFosslögreglu Bótakrafa Maríu á leið til ríkislögmanns Lögmaður maríu bergsdóttur mun á næstunni senda bótakröfu til ríkislögmanns sem var falið af dóms- og mannréttindaráðuneytinu að annast hennar mál. maría upplifði hreint helvíti þegar þvaglegg var þröngvað upp í líkama hennar af lögreglu í mars 2007. talinu. Hún missti ökuréttindin í eitt ár og var dæmd í þrjátíu daga skilorðs- bundið fangelsi fyrir að hafa í frammi líflátshótanir við lögregluna. Hún kærði árásina á sínum tíma til ríkissaksóknara sem sá ekki ástæðu til að fara lengra með málið. Umboðs- maður Alþingis tók hins vegar málið upp sjálfstætt og eftir bréfaskriftir á milli hans og ráðuneytis komst ráðu- neytið að þeirri niðurstöðu að fallast mætti á að í umræddu máli hefði ekki verið gætt að grundvallarreglunni um meðalhóf, sem þýðir að lögreglumenn- irnir hafi gengið of harkalega fram. Jafnframt kom fram í svari ráðuneytis- ins að forðast ætti að nota þvaglegg til að taka þvagsýni í þágu rannsóknar. Í kjölfar þessa sendi dómsmálaráðu- neytið lögregluembættum bréf þar sem þess var farið á leit að þvagleggur yrði ekki notaður við þvagsýnatöku í þágu rannsókna. óskar hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ég er að bíða eftir að fá læknis- vottorð frá Maríu og síðan mun ég senda bótakröfuna til ríkislög- manns. morgunblaðið tapaði tæpum 1,5 milljörðum Árvakur, útgáfufélag morgunblaðsins, tapaði 1.350 milljónum á síðasta ári samkvæmt ársreikningi sem birtur var í vikunni. tekjur af rekstrinum lækkuðu um 978 milljónir á milli ára. bókfærður hagnaður félagsins var þó 2,7 milljarðar en þar vega þyngst 4,3 milljarðar undir liðnum nettótekjur. ekki virðist þar um annað að ræða en afskriftir skulda þegar núverandi eigendur eignuðust félagið á vormánuðum 2009. Óskar magnússon, útgefandi morgunblaðsins, segir í samtali við fréttablaðið að þetta sé í takt við það sem búist var við og nægt rekstrarfé sé til staðar. baldur þingfestur í dag Ákæra á hendur baldri guðlaugs- syni, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, vegna innherja- viðskipta verður þingfest í dag, föstudag. baldri er gefið að sök að hafa nýtt sér stöðu sína sem ráðuneytisstjóri fjár- málaráðuneytisins og þær upplýsingar sem hann komst yfir í starfi sínu til að selja hlutabréf sín í Landsbankanum hálfum mánuði áður en bankakerfið hrundi í byrjun október 2008. Karlmaður, sem dæmdur var í tutt- ugu mánaða fangelsi í héraðsdómi Suðurlands á dögunum, hafði þó ástæðu til að gleðjast. Lögreglan fór fram á að fjármunir, sem hún lagði hald á við húsleit að upphæð rúm- lega fjórtán milljónir króna og voru í eigu dæmda, yrðu gerðir upptækir en á það féllst dómurinn ekki. Ekki þótti sannað að fjármunirnir væru til komnir vegna sölu fíkni- efna eða eins og stendur í dómnum: „Þó svo að skýr- ingar ákærða á tilurð fjárins kunni að virðast ótrúverðugar og lúti meira og minna allar að skattundan- skotum og fjárhættuspilum, þá breytir það ekki því að engar sönnur hafa verið færðar á það að ávinningur hafi orðið af brotinu eða að fjárins hafi að öðru leyti verið aflað með fíkniefnasölu.“ kannabisræktandi fékk 14 milljónir til baka 14.000.000 haLdLagt fé við hÚsLeit sem dÓmstÓLL feLLst ekki Á að gera uPPtækt. 4 fréttir helgin 22.-24. október 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.