Fréttatíminn - 22.10.2010, Blaðsíða 23
Skoðaðu hvað hægt er að gera í þínu hverfi á www.itr.is
Ævintýri á
heimaslóð
www.itr.is • sími 411 5000
Allskonar fyrir alla!
Fjölskyldustemning í
Diskósund
Wipeout
Pappírsbrot
Sjósund
Kaffihús
Útieldun
Gleðisund
Klifur
Frisbígolf
Heitur pottur
Afa- og ömmustund
Njótum frítímans saman!
22., 25. og 26. október verða vetrarfrí í flestum grunnskólum Reykjavíkur.
Á heimasíðu ÍTR er að finna upplýsingar um alls konar skemmtilegar uppákomur
sem ÍTR býður fjölskyldum upp á í vetrarfríinu, t.d.:
„Kjarninn í hugmyndafræðinni
um fjölmenningu er gagnkvæm
aðlögun,“ segir Helga Ólafs
doktorsnemi. „Þá er reynt að
koma til móts við þarfir innflytj-
enda til að gera þeim kleift að
vera virkir þátttakendur í sam-
félaginu. Þannig er lögð áhersla
á að þeir missi ekki tengslin
við menningu sína og tungu-
mál, heldur eigi þessir þættir
að fá notið sín í samfélaginu. Í
mörgum löndum hefur átt sér
stað visst bakslag við fjölmenn-
ingarlegum stefnum og um-
ræðan færst í þá átt að tímabili
umburðarlyndis sé lokið. Fjöl-
menning er talin vera of mikil
hugsjónastefna og aukin krafa er
nú um að minnihlutahópar verði
að aðlagast gildum og hefðum
meirihlutans.“
Settust að á Íslandi
Ísland hefur nokkra sérstöðu
miðað við nágrannalöndin, þar
sem hér voru mjög fáir innflytj-
endur þar til fyrir 10-15 árum.
Helga segir að þótt flestir inn-
flytjendur beri Íslendingum vel
söguna, hafi aðrir fundið fyrir
minnkandi velvild þegar góðær-
inu lauk. „Sumir vinnuveitendur
litu á innflytjendur sem vinnu-
afl sem nýttist vel í góðærinu en
ekki væri lengur þörf fyrir þegar
fór að halla undan fæti. En stað-
reyndin er sú að það er ekki svo
einfalt. Margir hafa aðlagast ís-
lensku samfélagi, eiga börn í
skóla og komnir með fjárhags-
legar skuldbindingar sem gerir
þeim illa kleift að rífa sig aftur
upp með rótum.“
Þessu viðmóti vinnuveitenda
svipar til Þýskalands á sjöunda
og áttunda áratugnum. Angela
Merkel, kanslari Þýskalands,
sagði í ræðu um síðustu helgi að
Þjóðverjar hefðu almennt talið
að innflytjendurnir myndu fara
heim þegar þeirra verkefni væri
lokið, en sú væri ekki raunin.
Það sama hefur gerst á Íslandi.
Helga segir að efnahagsleg
staða heimalands innflytjenda
hafi meira að segja um hvort inn-
flytjendur snúi aftur eða ekki.
austurríska Jörgs Haider náði yfir
20 prósenta fylgi árið 1994 og fékk
hæst 26,9 prósent í þingkosningun-
um árið 1999. Fylgi flokksins hrap-
aði hins vegar niður í tíu prósent í
kosningunum þar á eftir og hann
hefur ekki komist í stjórn síðan.
Fjölmenningin lifir góðu lífi
Kristín Loftsdóttir, prófessor í
mannfræði við Háskóla Íslands,
segir að skilningur öfgaþjóðernis-
sinna á þjóðerni og menningu sam-
ræmist ekki fyllilega veruleikanum.
„Í fyrsta lagi var það aldrei veruleik-
inn að einhvern tímann hafi öll sam-
félög verið aðskilin og einkennst
af skýrum landamærum. Í öðru
lagi felur þetta í sér þá sýn að fólk
af ólíkum uppruna geti ekki búið
saman. Ef við skoðum það einnig
sögulega og í samtímanum er það
augljóslega heldur ekki rétt, því
víða um allan heim býr fólk saman
sem hefur mjög ólíkan bakgrunn.“
Hún bendir á að fordómar gangi
í bylgjum en atburðir á borð við
hryðjuverkaárásirnar 11. septem-
ber skerpi á þeim. „Þeir fordómar
voru vissulega fyrir hendi áður, en
þeir fá allt í einu skarpari fókus og
ákveðna réttlætingu.“
Margir sem komið hafa til Íslands
koma frá löndum þar sem atvinnu-
leysi er mikið og því ekki eftirsókn-
arvert fyrir þá að snúa aftur.
Tungumálakennsla skorin
niður
Kreppan hefur gert það að verkum
að innflytjendur hafa færri úrræði
sem hjálpa þeim að aðlagast ís-
lensku samfélagi. „Aðgangur að
upplýsingum á erlendum tungumál-
um er orðinn verri eftir að hætt var
að halda úti miðlum eins og pólsku
síðunni á dv.is og fréttablaði Al-
þjóðahússins. Að auki hafa atvinnu-
rekendur dregið úr íslenskukennslu
fyrir starfsmenn sína af erlendum
uppruna. Innflytjendur urðu hluti
af íslensku samfélagi, unnu hörð-
um höndum í uppsveiflunni en það
vill oft gleymast að þeir þjást einnig
vegna niðursveiflunnar.“
Innflytjendurnir komnir til að vera á Íslandi
FJÖLMENNING Helga Ólafs rann-
sakar umfjöllun fjölmiðla í doktors-
námi sínu við Háskóla Íslands.
Herdís
Sigurgrímsdóttir
H.Sigurgrimsdottir
@lse.ac.uk
fréttaskýring 23 Helgin 22.-24. október 2010