Fréttatíminn - 22.10.2010, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 22.10.2010, Blaðsíða 6
Frábærar barnabækur www.forlagid.is KíKtu við fyrsta vetrardag! Sýning á myndum Sigrúnar Eldjárn úr bókunum tveimur verður opnuð í Þjóðminjasafninu laugardaginn 23. október kl. 15. Þórarinn og Sigrún kynna bækurnar og lesa upp. Verið velkomin! Forngripasafnið er fyrsta bókin í nýjum þríleik eftir Sigrúnu Eldjárn, ríkulega mynd- skreytt og spennandi saga fyrir krakka á aldrinum 8–12 ára. árstíðirnar er bráðskemmtileg ný vísnabók eftir Þórarin og Sigrúnu Eldjárn. Bók sem börnin lesa aftur og aftur! Þótt ég prenti ekki mikið með tölvuprent- aranum mínum finnst mér hann alltaf vera að senda mér þau skilaboð að það þurfi að skipta um blekhylki. Þetta er auðvitað hið versta mál því með falli krónunnar hafa þessi prentarablekhylki orðið rándýr. Prentarinn minn heitir Canon Pixma IP4000. Það eru fimm blekhylki í honum, tvö svört, blátt, rautt og gult. Kaupi ég öll þessi hylki af upprunalegu framleiðslu- tegundinni Canon þarf ég að punga út í kringum 10.000 krónum. Það er smávegis munur á verðinu á milli búða; þegar ég hef gáð hafa Tölvutek, Elko og Griffill verið með besta verðið. Annar möguleiki er að kaupa „samhæft“- blekhylki, þ.e.a.s. ekki orgínal Canon-hylki heldur ódýrari hylki frá öðrum fram- leiðendum. Hér eru nokkrir möguleikar í stöðunni: Prentvörur heitir póstverslun sem einnig er með verslun í Skútuvogi 1. Þar get ég keypt samhæfð hylki í prent- arann minn fyrir helmingi minna, eða á um 5.000 krónur fyrir hylkin fimm. Enn ódýrari möguleika fann ég hjá Mynd- bandavinnslunni, Hátúni 6b. Þar eru seld samhæfð blekhylki frá hinu aldna þýska fyrirtæki Agfa fyrir ýmsar gerðir prentara. Verðið er glettilega gott. Ég get fengið öll fimm hylkin sem ég þarf í einum pakka fyrir 3.190 kr. En eru samhæfð hylki eins góð og orgínal? Kemur ekki sparnaðurinn niður á gæð- unum? Auðvitað eru til bæði góð og slæm samhæfð hylki. Ekki kaupa hylki þar sem nafn framleiðanda kemur hvergi fram. Ég keypti einu sinni hræbillegt kínverskt blekhylki sem reyndist algjör martröð, það míglak og var næstum búið að eyðileggja prentarann minn. Það skiptir mestu í hvað þú notar prentar- ann þinn. Ef þú prentar mikið og aðallega myndir í lit, þá er affarasælast að splæsa í orgínal hylki. Ef þú prentar mest texta og skjöl eru samhæfð hylki góður kostur. Því eldri sem prentarinn er, því auðveldara er að finna samhæfð hylki. Ef þú ert með glænýja týpu af prentara er séns á að engin hylki séu í boði nema upprunaleg hylki frá framleiðanda. Það er hundrað prósent öruggt að þú færð það besta út úr prentaranum með blek- hylki frá upprunalega framleiðandanum. Samhæfð hylki eru hins vegar ódýrari – geta verið meira en 200% ódýrari – en þú getur verið að taka óþarfa sénsa. Ef þú vandar hins vegar valið og notar góðan pappír til að prenta á, þá er allt eins líklegt að þú sjáir engan mun. Dr Gunni er UmboðsmaðUr neytenda Ábendingar og kvartanir: drgunni@centrum.is Um prentarablekhylki Gunnar Hjálmarsson drgunni@centrum.is Canon Pixma IP4000 prentari Hægt er að skipta um öll prent- arahylkin fyrir 10.000 krónur eða 3.190 krónur, eftir því hvort valin eru upprunaleg eða sam- hæfð hylki. i KEA hefur fjarlægt stól starfsmanns úr barnagæslu og sett upp plexigler eftir að þriggja ára gutti stökk yfir afgreiðsluborðið, reif af sér merkimiða og gekk út úr versluninni óséður, skó- og úlpulaus. „Þetta er í fyrsta skipti sem barn hverf- ur úr barnagæslunni,“ segir Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA. Því sé nú einnig unnið að því að setja upp aukavegg sem stöðva eigi börn sem nái að stökkva yfir afgreiðsluborðið eða lauma sér út með öðrum sem verið sé að sækja. „Við erum með mjög góðar myndir af því þegar drengurinn stökk yfir vegginn. Hann fer upp á stól og um leið og starfs- maðurinn lítur undan stekkur hann ein- beittur yfir borðið og rífur af sér merki- miða. Hann fer beint út á bílaplan þar sem kona stöðvar för hans og kemur með hann aftur inn í verslunina.“ Þegar inn var komið sagði konan að svo virtist sem drengurinn hefði sloppið út úr bíl. „Ör- yggisverðir tóku það trúanlegt og því tók nokkurn tíma að átta sig á því að dreng- urinn hafði sloppið úr barnagæslunni.“ Ýr Róbertsdóttir, móðir drengsins, og amma voru með hann í IKEA þennan dag. „Við stóðum við afgreiðsluborðið til að sækja hann og starfsmaðurinn, ung stúlka, kallar og kallar á hann en hann kemur ekki. Sú fór því að afgreiða aðra. Í því gengur að okkur lögreglumaður. Mér brá og hélt að búið væri að ræna barninu mínu,“ segir hún. „Konan sem stöðvaði strákinn á bílastæðinu kom þá með hann í fanginu. Hann hafði verið hjá henni all- an tímann og þau beðið á matsölustaðn- um,“ segir Ýr og lýsir því hvernig hún hafi áttað sig á málinu þegar lögreglu- maðurinn hóf að taka af henni skýrslu fyrir vanrækslu, en hún útskýrt að barn- ið hafi verið í barnagæslunni. „Úti var dimmt og það rigndi. Hann hefði getað hlaupið upp á hraðbraut og orðið fyrir bíl, já eða gengið út í hraunið og orðið úti.“ Þórarinn segir málið litið mjög alvar- legum augum, enda barnið í stórhættu á bílastæðinu. „Það er guðsmildi að ekki fór verr.“ Starfsmenn hafi verið í upp- námi yfir atvikinu. „Við viljum að foreldr- ar geti treyst okkur 100% fyrir börnunum og því setjum við nú upp þennan tvöfalda vegg,“ segir Þórarinn. „Ég er sjálfur for- Úti var dimmt og það rigndi. Hann hefði getað hlaupið upp á hrað- braut og orðið fyrir bíl, já eða gengið út í hraunið og orðið úti.  ikea ÖryggisreglUrnar hertar Þriggja ára drengur hvarf úr barnagæslunni Guðsmildi að ekki fór verr, segir framkvæmdastjóri IKEA, sem fjarlægði stól af svæðinu, setti upp plexigler og reisir aukavegg. Móðir drengsins hugsar með hryllingi til þess að hann var úlpulaus og á sokkunum á dimmu bílastæðinu. Aldrei gerst áður, segir framkvæmdastjóri verslunarinnar. Þórarinn við nýja vegginn sem eykur öryggið í IKEA. Verslunin bregst við eftir að þriggja ára snáði stökk yfir afgreiðsluborðið og hljóp út á bílastæði. Ljósmynd/Hari eldri og get ekki hugsað þá hugsun til enda hefði farið verr.“ Faðir litla drengsins, Gylfi Steinn Gunnarsson, segir hann f jörugan, óhræddan og góðan að klifra og vilji kanna heiminn. Honum hafi tekist að opna hliðið á leikskólanum sínum en náðst í tíma. Móðir hans segir þó með ólíkindum að honum hafi tekist að kom- ast óséður yfir afgreiðsluborðið. „Þetta eru einfaldlega hlutir sem þurfa að vera í topplagi. Ég viðurkenni að ég hefði viljað segja margt þegar ég fékk drenginn í hendurnar en var bara svo slegin,“ segir hún enda margt betur mátt fara í ferlinu þennan dag og í kjöl- farið, þegar hún leitaði skýringa á atvik- inu. „Við erum þó ánægð með að IKEA bregðist við þegar út af bregður.“ Ánægð- ust séu þau foreldrarnir þó með konuna sem passaði litla pjakkinn þennan dag og færðu þau henni blóm og ostakörfu nokkrum dögum eftir björgunin. „Þetta er áminning um að hafa alltaf augun á börnunum, það er ekki hægt að segja annað.“ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is 6 fréttir Helgin 22.-24. október 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.