Fréttatíminn - 22.10.2010, Blaðsíða 32
E gg má auðvitað nota ein og sér til suðu eða steikingar. Þau eru í raun tilvalin á óteljandi rétti, svo sem kjöthakks-
rétti, fiskrétti og bakstur. Engifer gefur
32 matartíminn Helgin 22.-24. október 2010
M orgunmaturinn er ein mikilvægasta máltíð dagsins, enda er nauð-
synlegt að borða áður en haldið er
af stað út í daginn. Gott er að borða
kolvetnisríkan morgunverð til að
fá sem mesta orku áður en tekist
er á við verkefni dagsins. Stundum
er nauðsynlegt að breyta til og fá
sér eitthvað annað en sama, gamla
morgunkornið. Prófaðu að byrja
daginn á þessum auðvelda og
girnilega morgunmat.
Banana-smoothe
1 banani, þroskaður
1,5 dl mjólk
1 tsk. hunang
2 msk. múslí
nokkrir ísmolar
Setjið allt saman í blandara og
blandið vel saman.
Beygla með avókadó
1 beygla, úr grófu korni
1/2 avókadó, þroskað
smjör
límónusafi
Skerið beygluna í tvennt og ristið í
brauðrist. Skerið avókadó í þunnar sneiðar.
Raðið sneiðunum á beygluna og kreistið
örlítinn límónusafa yfir.
Egg og brauð
2 egg
2 sneiðar fjögurra korna brauð eða annað
gróft brauð
fræblanda, t.d. grasker, sesamfræ og
sólblómafræ
Setjið vatn í lítinn pott svo að rétt fljóti yfir
eggin. Látið þau sjóða í 3 mín. eða þar til
þau eru linsoðin. Ristið brauðið, smyrjið
með örlitlu smjöri og skerið í strimla. Dýfið
brauðstrimlunum í eggjarauðuna, og síðan
í fræblönduna.
Hafragrautur með bláberjum
50 g haframjöl
2 dl mjólk
kanill, eftir smekk
50 g bláber
hunang
Setjið haframjöl í djúpan
disk, hellið mjólk út á og
stráið kanil yfir. Hitið í
örbylgjuofni í 1-2 mín. eða
þar til þetta er orðið að
graut. Bætið bláberjum og
hunangi við og setjið aftur
í örbylgjuofn í 30-60 sek.
Hægt er að sleppa
bláberjunum og setja
epli og jógúrt út á
grautinn en þá er hann
ekki settur aftur í
örbylgjuna.
Á þessu ári hafa komið út nokkrar nýjar og spennandi matreiðslubækur. Hver
man ekki eftir Matreiðslubókinni
minni og Mikka? Nú er komin út
bók í sama dúr, Stóra Disney mat-
reiðslubókin, en hún er sérsniðin
fyrir krakka sem hafa gaman af að
elda. Ein vinsælasta matreiðslubók
ársins, Hvorki meira né minna, er
með girnilegum uppskriftum sem
innihalda ekki sykur, hveiti eða
sterkju. Mataræði handbók um
hollustu er afar áhugaverð bók eftir
Michael Pollan. Hann hefur gagn-
rýnt nútímaframleiðslu á matvæl-
um og er með tillögur um hvernig
við getum borðað hollan og góðan
mat án þess að versla í stórmörk-
uðum. Fiskmarkaðurinn er eftir
meistarakokkinn Hrefnu R. Sætran
en fiskur er hennar sérfag. Tilvalið
er að skoða þá bók til að fá upp-
skriftir að góðum fiskréttum.
Magnaður morgunverður
Óþarfi er að fylla ísskápinn af ferskmeti á hverjum degi en gott er að
eiga alltaf til hráefni sem mikið er notað dagsdaglega við matreiðsluna.
Hvað er gott að eiga
í ísskápnum?
sérstakt bragð og hentar vel í marga fram-
andi rétti, pastarétti og fiskrétti. Kartöflur
eru góður orkugjafi, enda ríkar af kolvetni.
Þær má sjóða, steikja, baka og stappa í t.d.
kartöflumús. Laukur bragðbætir flesta rétti,
ferskur eða steiktur. Sítrónur gefa frískandi
bragð og passa vel í fisk- og pastarétti. Gott
er að nota t.d. nokkra dropa af sítrónusafa
í staðinn fyrir edik í salatlög. Hvítlaukur
kemur oftast að góðum notum, í heita eða
kalda rétti, salöt og sósur, enda gefur hann
gott bragð. Kryddjurtir setja svo punktinn
yfir i-ið í flesta rétti.
Nýjar matreiðslubækur
Pantaðu
í síma
565 600
0
eða á w
ww.som
i.is
Frí heim
sending
*
TORTILLA
VEISLUBAKKI
EÐALBAKKI
LÚXUSBAKKI
DESERTBAKKI
GAMLI GÓÐI
TORTILLA OSTABAKKI
30 bitar
30 bitar
20 bitar
20 bitar
20 bitar
50 bitar
Fyrir 10 manns
Aðeins
1.900 kr.
ÁVAXTABAKKI
Fyrir 10 manns
ÁVAXTABAKKI
Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm.
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
VEISLUBAKKAR
FERSKT & ÞÆGILEGT