Fréttatíminn - 22.10.2010, Síða 10
10 fréttir Helgin 22.-24. október 2010
www.friform.is
TIL AFGREIÐSLU AF LAGER EÐA MEÐ STUTTUM FYRIRVARA
LÆGRA VERÐ Í OKTÓBER
ELdhúS - BAÐ - ÞVOTTAhúS - FATASKÁPAR
33 hurðategundir og -litir
Afmælishátíð
Fríform 10 ára
20% - 25% - 30% - 35%
VIÐ BjÓÐUM BETUR: Gæði, þjónusta og verð, sem þú getur ekki hafnað!
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500
Mán. - föst. kl. 09-18
Laugard. kl. 11 - 15
HREINT OG KLÁRT
6%
Möguleg
Fækkun
AtvinnulAusrA
Fyrir 2013
Hagdeild ASÍ
V ið höfum áhuga.“ Svör Páls Magnús-sonar útvarpsstjóra, Ara Edwald, for-stjóra 365, og Hilmars Björnssonar,
sjónvarpsstjóra Skjás Golf, voru öll á sama veg
þegar Fréttatíminn athugaði hug þeirra til sýn-
ingarréttarins á Evrópukeppni U-21 árs lands-
liða í knattspyrnu. Ísland er á meðal átta þátt-
tökuþjóða eftir frækilega sigra á Skotum fyrr
í október.
Eftir því sem Fréttatiminn kemst næst bárust
útboðsgögn frá Knattspyrnusambandi Evrópu á
mánudag og hafa aðilar tíma til hádegis þriðju-
daginn 26. október til að skila inn tilboðum.
Ljóst er að allir leikir íslenska liðsins verða í
opinni dagskrá hvar sem mótið verður sýnt þar
sem það er skilyrt í samkomulaginu.
Páll Magnússon útvarpsstjóri segir í samtali
við Fréttatímann að það sé í samræmi við stefnu
Ríkisútvarpsins að fylgja íslenska landsliðinu í
alþjóðlegri keppni líkt og þessi keppni sé. „Við
viljum sýna alla leiki með íslenska landsliðinu.
Stundum tekst það og stundum ekki. ég reikna
með keppni frá öðrum um þennan rétt en mið-
SJÓNVARPSRÉTTUR EVRÓPUKEPPNI U-21
Þrír berjast um réttinn
á ungmennalandsliðinu
ríkisútvarpið, 365 og skjár einn hafa fengið útboðsgögn varðandi sjónvarpsréttinn á lokakeppni
evrópumóts u-21 árs landsliða í knattspyrnu sem fram fer í Danmörku næsta sumar. Allir þrír
aðilarnar eru áhugasamir um að ná sýningarréttinum.
að við það skilyrði að sýna þarf leiki ís-
lenska liðsins í opinni dagskrá er keppnin nú
ekki eins aðlaðandi fyrir áksriftarsjónvarp,“
segir Páll.
Ari Edwald, forstjóri 365, segir í samtali við
Fréttatímann að ekki sé búið að ákveða þeirra
megin hvort gert verði tilboð. „Þetta fellur ágæt-
lega að okkar dagskrá. Ég geri ráð fyrir því að
það verði mikill áhugi fyrir þessu móti og það
væri skemmtilegt að geta sýnt þetta,“ segir Ari.
Hilmar Björnsson, sjónvarpsstjóri Skjás Golf,
sagði að menn þar á bæ væru að skoða hlutina.
„UEFA hafði samband við okkur að fyrra bragði
og bauð okkur útboðsgögn. Þetta er að sjálfsögðu
spennandi en það liggur ekki fyrir hvort við bjóðum
í réttinn,“ segir Hilmar.
Mótið hefst 11. júní og fer úrslitaleik-
urinn fram 25. júní. Dregið verður í
riðla 9. nóvember næstkomandi.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Páll Magnússon útvarpsstjóri
og Ari edwald, forstjóri 365,
eru báðir áhugasamir að ná
sýningarréttinum.
UEFA hafði
samband
við okkur
að fyrra
bragði og
bauð okkur
útboðsgögn.
Þetta er að
sjálfsögðu
spennandi
en það
liggur ekki
fyrir hvort
við bjóðum í
réttinn.“
gylfi Þór
sigurðs-
son og
félagar
hans verða
í eldlínunni í
Danmörku
á næsta
ári.
Fjárhagsleg
endurskipulagning
icelandair group í höfn
lokasamningar vegna fjárhagslegrar
endurskipulagningar icelandair group hafa
verið undirritaðir, að því er fram kemur
í kauphallartilkynningu. nýtt hlutafé
í reiðufé kemur inn en fjárfestar hafa
skráð sig fyrir um 5,5 milljörðum króna að
markaðsvirði. stærstu lánveitendur félags-
ins hafa breytt skuldum að fjárhæð 3,6
milljarðar króna í hlutafé. Þá lækka vaxta-
berandi skuldir um ríflega 10 milljarða með
yfirfærslu og sölu á tilteknum eignum.
Þær verða
26 milljarðar
eftir endur-
skipulagn-
inguna. Félagið
fyrirhugar að
safna um 2,5
milljörðum króna til
viðbótar með útgáfu
nýs hlutafjár. -jh
Hagdeild ASÍ spáir tæplega 4% samdrætti í lands-
framleiðslu á þessu ári en þá taki við tveggja ára
hægur vöxtur. Á næstu árum munu ráðstöfunar-
tekjur aukast lítið og atvinnuástandið verður
erfitt. Hægt mun draga úr atvinnuleysi sem
gert er ráð fyrir að komið verði niður undir 6%
á árinu 2013. Verðbólga verður hófleg, um eða
innan við 2% næstu árin, og vextir fara lækkandi.
Gert er ráð fyrir að gjaldeyrishöftum verði létt
af í áföngum næstu misserin. Vegna óvissu um
áframhaldandi framkvæmdir við álver í Helguvík
er ekki gert ráð fyrir þeim né orkuframkvæmdum
þeim tengdum í spá hagdeildar. „Takist hins vegar
að nýta þau tækifæri sem þar liggja til að skapa ný
störf og aukin verðmæti myndi hagvöxtur næsta
árs nær tvöfaldast og atvinnulausum fækka um
1.300 manns auk þess sem betri skilyrði sköpuð-
ust fyrir styrkingu krónunnar,“ segir í spánni.
ASÍ gerir ráð fyrir
hægfara bata
HÓPUPPSögN í ORKUVEITU REyKJAVíKUR
Fólk með áratuga reynslu missti vinnuna
Trúnaðarmaðurinn Stefán Pálsson missti vinnuna í gær eins og 64 aðrir starfsmenn. Þeir fá ekki að vinna uppsagnarfrestinn.
Minjasafni Orkuveitunnar lokað, hálf almanna-
tengsladeildin horfin og starfsfólk tínt út úr
öllum deildum. 65 fastráðnum starfsmönnum
Orkuveitu Reykjavíkur var sagt upp störfum í
gær, 45 körlum og 20 konum. Fastráðnu starfs-
fólki fækkar um ellefu prósent og svipað margir
starfa nú hjá fyrirtækinu og árið 2004. „Þetta
er fyrsta hópuppsögnin í sögu Reykjavíkur-
borgar,“ segir Stefán Pálsson, forstöðumaður
Minjasafnsins og fyrrum trúnaðarmaður sem
nú missir vinnuna.
„Mér finnst svona frekar að fólk hafi verið
rekið og því fylgt út heldur en að það missi vinn-
una í sparnaðarráðstöfun. Fólki var ekki gefinn
langur tími til að ryðja borðin,“ segir hann og
bendir á að engum hafi verið boðið að vinna
uppsagnarfrestinn. „Innan fyrirtækisins er hár
meðalaldur og ég þekki því fólk sem er komið
yfir sextugt og missti vinnuna eftir áratuga
störf hjá fyrirtækinu. Það er sárt að sjá enda
fólkið ekki í sömu aðstöðu og ég, 35 ára, og sá
mig ekki eldast í starfinu.“
Erfiðast af öllu segir Stefán þó síðustu vikur
hafa verið starfsfólkinu. „Uppsagnirnar í Orku-
veitunni eru skólabókardæmi um hvernig ekki
á að standa að slíku. Fyrirtækið hefur verið í
viðvarandi gíslingu í fjörutíu til fimmtíu daga,“
segir hann. „Á sama tíma og málið velktist um
í fjölmiðlum var afstaða stjórnenda sú að þeir
segðu ekki neitt og litu starfsmenn hornauga,
segðu þeir eitthvað. Ég held að þessi leynd hafi
ekki orðið til að bæta ástandið.“ Margt starfs-
fólk sé því reitt og tætt. „Það verða talsverð sár
eftir hjá mörgum.“
Ástæða uppsagna Orkuveitunnar eru vegna
erfiðar fjárhagstöðu fyrirtækisins.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is