Fréttatíminn - 22.10.2010, Síða 26
Í Tösku- og hanskabúðinni finnur þú
mikið úrval af handtöskum, tölvu- og
skjalatöskum, seðla-og leðurveskjum,
ferðatöskum, leðurhönskum og vönduðum
göngustöfum svo fátt eitt sé nefnt.
Þú getur litið við í verslun okkar eða farið á
slóðina www.th.is þar sem hægt er
að skoða úrvalið og gera góð kaup!
Tösku og hanskabúðin • Skólavörðustíg 7 • 101 Reykjavík • Sími 551 5814 • www.th.is
21. til 23. október
A f bókunum og kvikmynd-unum kenndum við Ljósa-skipti og þættina The Vamp-
ire Diaries ber sjónvarpsþættina
True Blood hæst í blóðsugugeiran-
um þessi misserin enda um frábæra
þætti að ræða sem hafa allt það til
að bera sem heldur fólki límdu við
skjáinn; spennu með hryllingsívafi,
nekt, kynlíf og að sjálfsögðu ómót-
stæðilegar blóðsugur.
Þættirnir byggjast á The Southern
Vampire Mysteries sem fjalla um æv-
intýri gengilbeinunnar og hugsana-
lesarans Sookie Stackhouse í hin-
um sveittu Suðurríkjum sem verða
ansi hreint æsileg og kynósa þegar
vampírur stíga fram úr myrkri þjóð-
sagnanna og vilja aðlagast mannlegu
samfélagi.
Ófétið sem varð kynvera
Vampírur hafa skotið fólki skelk í
bringu frá örófi alda og lifðu góðu lífi
í munnmælasögum til forna. Á með-
an vampírurnar léku aðalhlutverk
í martröðum sauðsvarts almúga til
forna voru þær ósköp ógeðslegar; illa
lyktandi og andstyggilegar í útliti.
Þegar rómantísku bresku skáldin
tóku vampírurnar upp á sína arma
fengu þær mannlegri eiginleika og
eðalborna blóðsugan varð til. Dra-
kúla greifi er vitaskuld þekktastur
úr þeim ættboga. Vinsældir Drakúla,
og vampírunnar almennt eftir að hún
eignaðist göfugt ættartré, eru rakt-
ar til þess seiðandi kynþokka sem
fylgir hinum ódauðlegu. Þannig
blasir til dæmis við að skáldsöguna
um Drakúla má lesa sem dulbúna
klámsögu fyrir teprulegan Viktoríu-
tímann í Englandi. Bit blóðsugunnar
er þá jafngildi samfara og ódauðleik-
inn sem smitast við blóðblöndun við
vampíru er þá kynsjúkdómur.
Ást við fyrsta bit
Á okkar tímum, þegar allt má, þýðir
auðvitað ekkert að fara undan í flæm-
ingi með kynsvall og lauslæti og í
True Blood er heldur ekkert verið að
fara fínt í hlutina; þar er allt löðrandi
í nekt og kynlífi. Sama má segja um
bækur Charlaine Harris sem þætt-
irnir byggjast á. Þar eru nánast öll
samskipti persóna keyrð áfram á
kynferðislegri spennu. Flestar kven-
persónur eru brjóstastórar píur sem
eru óseðjandi við rúmstokkinn og
vita ekkert betra en að leggjast með
vampíru. Eðlilega þar sem allar aðal-
blóðsugurnar í bókunum og þáttun-
um eru stæltir strákar, vaxnir niður
eins og klámmyndaleikarar og end-
ast miklu, miklu lengur en dauðlegir
menn í rúminu. Auk þess sem full-
nægingin, sem næst þegar blóð-
sugan bítur rekkjunautinn í hálsinn
og drekkur af honum þegar leikar
standa sem hæst, er engu lík.
Bækur Harris eru bráðskemmti-
leg og ávanabindandi lesning en
munu seint teljast til alvöru bók-
mennta. Bókaflokkurinn, sem nú
telur tíu skáldsögur og nokkrar
smásögur, minnir í raun um margt
á Ísfólkið, það öndvegisdrasl sem
hefur náð heljartaki á fjölda lesenda,
ekki síst vegna fjörugs kynlífs. All-
an Ball, sem á að baki hina stórfínu
þáttaröð Six Feet Under, vinnur al-
veg meistaralega úr þessum safa-
ríka en grunna efnivið og hefur með
True Blood töfrað fram alveg hreint
magnaða sjónvarpsþætti. Fyrsti ár-
gangur þáttanna náði strax flugi og
sópaði að sér verðlaunum og síðan
þá hefur þetta bara orðið betra en
þriðji árgangur rann sitt skeið ný-
lega í Bandaríkjunum við miklar
vinsældir.
Betri en bókin
Ball fer þvers og kruss um bóka-
flokkinn og sækir það sem honum
hentar hverju sinni og færir í þann
stíl sem hann hefur fundið þáttunum
þannig að spennan og dýptin í þátt-
unum er margföld á við það sem er
að finna í bókunum. Leikaraval hans
er óaðfinnanlegt þar sem hver pers-
óna bókanna lifnar við og tútnar út.
Anna litla Paquin, sem hlaut barn-
ung Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í
The Piano, er orðin fullorðin og ansi
hreint kræf í kynlífinu þegar hún
kemst upp á blóðbragðið af fyrsta
kærastanum sínum, vampírunni Bill
sem Stephen Moyer ljær rómantísk-
an blæ töffarans sem er dæmdur til
eilífs lífs. Bill er að vísu á stöðugu
undanhaldi í bókunum eftir því sem
hinn þúsund ára gamli víkingur Eric
Northman gerist frekari til fjörsins
og gráðugri í Sookie. Sænski leik-
arinn Alexander Skarsgård er eitur-
svalur í hlutverki Erics og er óum-
deildur aðalgæinn í þáttunum þótt
ætla megi að Ball muni passa betur
upp á Bill en Harris hefur gert.
Annars er auðvitað ómögulegt að
spá fyrir um hvaða leiðir Ball velur
í framhaldinu en hitt er þó víst að
hann hefur enn úr haug af skemmti-
legum grunnhugmyndum frá Harris
að moða og gera að einhverju miklu
magnaðra en hún hefur sett á blað.
Ferskt blóð á skjánum
Vampírur eru með lífseigustu skrímslum í sögu bókmennta og kvikmynda. Þær hafa sjaldan verið
öflugri en nú og hafa læst tönnunum bæði í unglinga og fullorðna í bókum, bíó og sjónvarpi.
blóðsugur: FornAldArFyrirbæri leggjA undir sig 21. öldinA
Dáðadrengurinn Dexter
Spennuþættirnir um hinn geðþekka raðmorðingja
Dexter Morgan, sem drepur bara illmenni sem eiga
það skilið, eru ekki síður blóðugir en True Blood.
Þættirnir eiga það sameiginlegt með True Blood að
þeir taka frumtextanum sem þeir byggjast á fram í
gæðum, dýpt og spennu.
Fyrsta bók bandaríska rithöfundarins Jeff Lyndsay
um Dexter var prýðislesning en síðan hefur grautur-
inn verið að þynnast jafnt og þétt með framhaldsbók-
unum þremur. Þættirnir hafa hins vegar orðið betri
eftir því sem á líður. Fyrsta þáttaröðin fylgdi fyrstu
bókinni nokkuð vel eftir en síðan skildi leiðir og
miklu skemmtilegri sögur í sjónvarpinu voru vægast
sagt laustengdar framhaldsbókunum. Á meðan
Lyndsay á í bölvuðu basli með að halda dampi vindur sögu Dexters áfram með frábærum
fléttum og persónum á skjánum. Þetta er meira að segja svo langt gengið að í seinni
bókum sínum er Lyndsay farinn að sækja hugmyndir í þættina og útfæra í bókunum.
Víkingurinn Eric gerir harða hríð að
Bill og ætlar sér að komast yfir Sookie
með öllum tiltækum ráðum. Bill hefur
átt undir högg að sækja gegn Eric í
bókunum en Alan Ball er líklegur til
að halda yfir honum verndarhendi á
skjánum.
Sookie Stackhouse springur út sem kynvera eftir að hún leggst með blóðsugunni Bill.
Fram í sviðsljósið
Lafayette Reynolds
Samkynhneigði kokkurinn
á Merlotté s er einn allra
mesti töffarinn í röðum
dauðlegra manna í True
Blood. Hann varð þó ekki
langlífur í bókaflokknum
þar sem hann fannst
dauður í upphafi bókar
númer tvö. Alan Ball sá hins
vegar gullið í dásamlegri
persónunni, framlengdi líf
Lafayette í þáttunum og gaf
honum miklu meira vægi.
Sam Merlotte
Bareigandinn, hamskipt-
ingurinn og vinnuveitandi
Sookie lætur stundum til
sín taka í bókunum. Sjón-
varpsþættirnir kafa samt
sem áður miklu dýpra ofan
í persónu hans og
bakgrunn þannig að
miðlungspersóna
í bókunum fær að
njóta sín í fremstu
röð.
Jason Stackhouse
Kynóði ónytjungurinn
Jason, stóri bróðir Sookie,
er frekar þreytandi í
bókum Charlaine Harris og
hefur lítið til málanna að
leggja. Í þáttunum er hann
hins vegar orðinn alger
lykilpersóna sem ástralski
leikarinn Ryan Kwanten
blæs ótrúlegu lífi í.
Hoyt Fortenberry
Hinn einlægi og fremur
treggáfaði vinur Jasons
Stachouse er ein
fyndnasta og áhuga-
verðasta persóna True
Blood en í bókunum er
hann varla mikið meira
en nafnið. Breytingin
sem á honum verður á
skjánum er gott dæmi
um hugmyndaauðgi
og útsjónarsemi Alans
Ball.
Tara Thornton
Æskuvinkona Sookie
er algert aukanúmer í
bókunum. Á skjánum er
hún í forgrunni, snaróð í
skapinu, fljótfær, grimm
og til alls líkleg. Tara er
jafn heillandi og spennandi
persóna í sjónvarpinu og
hún er litlaus og leiðinleg í
bókunum.
Bækurnar um Dexter fara
versnandi á meðan sjónvarps-
þættirnir um morðingjann
eflast.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
sjónvarp
26 sjónvarp Helgin 22.-24. október 2010