Fréttatíminn - 22.10.2010, Síða 45

Fréttatíminn - 22.10.2010, Síða 45
Er þitt barn barn? OKKAR líftryggingar hf. • Sóltúni 26 • 105 Reykjavík • Sími 540 1400 • Fax 540 1401 • www.okkar.is Framtíð - framtíðartrygging barna fyrir „efin” í lífinu og fjárhag fullorðinsáranna „…Maður gæti jafnvel splæst í fjölskyldu einn góðan veðurdag – og kannski hús og bíl.” Draumurinn er að geta fyrst og fremst lifað á loftinu og listinni. Ég er til í einfalt og ódýrt líf og gæti alveg hugsað mér að búa einhvers staðar í kvistherbergi undir súð ef ég fæ góðan tíma til að skrifa og hef pláss fyrir penslana og strigann í einu horninu. Ég þarf líka að eiga fyrir bókum, myndum, músík og fjölmiðlunum. ...Jú, og kannski geta skroppið öðru hvoru í leikhús og bíó. Og svo þarf maður auðvitað að eiga fyrir bolla á kaffihúsunum og rauðvínsglasi ef maður býður einhverri með sér út að borða. Hm… þetta er kannski ekkert rosalega einfalt og ódýrt líf. Góðu fréttirnar eru samt að það er hægt að hafa fínt upp úr almennilegri listsköpun. Maður gæti jafnvel splæst í fjölskyldu einn góðan veðurdag – og kannski hús og bíl. Og jafnvel húsbíl. ZE BR A Öll börn og ungmenni eiga sér drauma um framtíðina. Undan sumum þeirra er fótunum kippt fyrirvara- laust vegna slysa eða sjúkdóma í æsku sem haft geta í för með sér ævilanga örorku. Þeir sem ekki hafa fest sig í sessi á vinnumarkaði standa utan lífeyriskerfisins og njóta því einungis bóta Tryggingastofnunar. OKKAR framtíð er ný og kærkomin framtíðartrygging barna og ungmenna sem skipt getur sköpum fyrir fjárhagslegt sjálfstæði þeirra á fullorðinsárum. Með OKKAR sparnaði, sem laus er til útborgunar við átján ára aldur, má treysta undirstöðurnar enn frekar. xV Nafn: Guðrún Axfjörð Elínardóttir Aldur: 25 ára Flokkur: Formaður Ungra vinstri grænna Búseta: Reykjavík Nám: Nemi í sagnfræði við Háskóla Íslands Byrjaði í flokknum: Árið 2003. 1 Að mínu mati hefur flokks-forystan staðið sig mjög vel í því erfiða verkefni að taka til eftir hrunið. Það má ekki gleyma því að hrunið var afleiðing langrar þróun- ar og því mun það taka sinn tíma að taka til; skyndilausn- ir eru ekki svarið við vand- anum. Sérstaklega þykir mér ánægjulegt að þrátt fyrir erfið verkefni í efnahagsmálum hef- ur VG líka haldið mannrétt- indamálunum á lofti og nefni ég sérstaklega ein hjúskapar- lög í því samhengi. 2 Það er voðalega auðvelt að standa á hliðarlínunni, án ábyrgðar, og gagnrýna þá sem heyja baráttuna. Þó eru vissulega nokkur atriði sem ég hefði viljað sjá minn flokk vinna að, svo sem aðskilnað ríkis og kirkju og úrsögn úr NATO. Ég bind reyndar mikl- ar vonir við tillögu Árna Þórs Sigurðssonar um fullan að- skilnað ríkis og kirkju, þann- ig að segja má að þetta sé allt í áttina. 3 Sem velferðarríki, virkan þátttakanda í samfélagi þjóða og umfram allt stað sem gott er að búa á. 4 Tíu ár eru langur tími og áætlanir breytast gjarna. Ég vil því ekkert spá fyrir um hvar ég verð, nema að ég verð tíu árum eldri, t íu árum reyndari og von - andi ham- ingjusöm, umfram allt. xÆ Nafn: Dagur Kári G. Jónsson Aldur: 23 ára Flokkur: Formaður Ung- Best, unghliðahreyfingar Besta flokksins og sonur Jóns Gnarr. Búseta: Reykjavík Byrjaði í flokknum: Frá stofnun flokksins Nám: Er í forngrísku, latínu og fornaldarheimspeki í Háskóla Íslands og vinnur hjá Símanum með fram náminu. 1 Mér finnst flokkurinn hafa staðið sig vel í borgarstjórn. Hann kemur nýr og óreyndur inn í borgarmálin en hefur þó náð að aðlagast vel og halda karaktereinkenn- um sínum. Allar raddir, frjálshyggjuraddir sem og aðrar, rúmast vel innan flokksins og allir fá að njóta sín. 2 Ég hefði viljað sjá sjálfan mig sem borg-arfulltrúa – þá sem rödd unga fólksins – og hefði því tekið þá ákvörðun ólíkt for- ystunni nú að skipa mig borgarfulltrúa. 3 Ungliðar Besta flokksins eru harðlega á móti Evrópusambandinu og finnst hags- munum okkar Íslendinga betur borgið utan sambandsins og því vona ég að við stönd- um fyrir utan það eftir tíu ár. Þó rúmast innan ungliðahreyfingarinnar einnig sú hugsun að Evrópusambandið sé ákjósan- legt – þannig fáum við það besta úr báðum áttum. Við verðum komin upp úr kreppunni og Besti flokkurinn á þing og í æðstu stöð- ur hjá framkvæmdavaldinu. Fylgið verður svona álíka og hjá Sjálfstæðisflokknum. Andrúmsloftið í kringum stjórnmálaflokk- ana verður lítið breytt – enn ráða þeir vini sína í stöður. Besti flokkurinn á ekki eftir að breyta því en ekki breiða yfir þá stað- reynd. Hann ræður vini sína og notar eigin völd til að koma sjálfum sér áfram. Stjór- nsýslulega yfirbragðið verður því sýnilegra. 4 Sjálfur verð ég hugsanlega í Ísrael – ég hef stefnt á það lengi. Ætli ég verði þó ekki í pólitík á bak við tjöldin. Ég hef verið í stjórnmálum lengi og var sjálfstæðismað- ur áður en ég var kosinn formaður Ung- Best. Ég hef alltaf verið að plotta eitthvað á bak við tjöldin og gerði það einmitt síðast í formannskosningum í Heimdalli. Enginn gerði athugasemd við það þótt ég væri for- maður UngBest. Þannig að kannski verður í lagi að vera í tveimur stjórnmálaflokkum eftir tíu ár. Það kæmi sér vel. spurningar og svör 45 Helgin 22.-24. október 2010

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.