Fréttatíminn - 22.10.2010, Síða 59

Fréttatíminn - 22.10.2010, Síða 59
24. október sjónvarp 59Helgin 22.-24. október 2010  Í sjónvarpinu ELDsnÖGGT MEÐ jóa FEL  Ég get horft endalaust á matreiðsluþætti. Tveir þættir eru á boðstólum á litlu skrítnu ÍNN. Mér finnst heimilislegt að fylgjast þar með frekar illa gerðum en oft fræðandi þáttum. Sér í lagi á þátt- urinn Eldum íslenskt fína spretti. Ungur sá ég Humar B. Lauksson, nei ég meina Hauksson, elda heimilismat á RÚV og nú síðast hina frumlegu og nett klikkuðu þætti Fagur fiskur í sjó. Þeir voru, þrátt fyrir aðeins of mikinn rembing, sniðugir og augljóst að Svenni á Fylgifiskum kann að vasast í sjávarfangi. Hrefna Sætran er alltaf að verða öruggari og ef ég væri með Skjá einn myndi ég fylgjast betur með henni. Stöð 2 hefur frá upphafi lagt sérstakan metnað í að búa til matreiðsluþætti og eru allir frægustu sjónvarpskokkarnir þaðan. Skúli Hansen reið á vaðið, Siggi Hall tók svo við keflinu og nú síðast er það Rikka með þáttinn Matarást. Konungur matreiðsluþáttanna er þó Jóhannes Felixson með þáttinn sinn Eldsnöggt með Jóa Fel. Jói er kannski ekki besti kokkurinn í brans- anum, gjarn á að láta matinn brenna svolítið við, en hann hefur þó það sem sjónvarpsstjarnan þarf, sjarmann. Matinn sem Jói eldar er líka oftast einfalt að kokka upp á skömmum tíma. Ekkert verið að flækja hlutina um of eða búa til frá grunni. Bara skrúfa lokið af krukkunni og út í pottinn með inni- haldið. Reyndar fer þessi krukkudýrkun Jóa svo- lítið fyrir brjóstið á mér. Þættirnir eru fullmikið sponsaðir. Krukkan gæti þess vegna verið þarna bara vegna þess að hún var að nálgast síðasta sölu- dag í sponsbúðinni. Bestu sprettirnir eru þegar Jói skellir í brauð eða kökur. Þar er minn maður á heimavelli og ekkert brennur við. Haraldur Jónasson hari@frettatiminn.is Krukkudýrkun Jóa Fel Skjár einn 09:30 Rachael Ray (106/175) 10:15 Rachael Ray (107/175) 11:00 Rachael Ray (108/175) 11:45 Dr. Phil (31/175) 12:25 Dr. Phil (32/175) 13:10 90210 (12/22) 13:50 90210 (13/22) 14:30 90210 (14/22) 15:10 90210 (15/22) 15:50 Judging Amy (1/23) 16:35 Spjallið með Sölva (5/13) 17:15 Nýtt útlit (5/12) 18:05 Parenthood (3/13) 18:55 The Office (9/26) 19:20 Hæ Gosi (4/6) Ný íslensk gaman- sería þar sem tekið er á alvöru mál- efnum á ferskan og sprenghlægilegan hátt. 19:50 Fyndnar fjölskyldumyndir (4/10) Bráðfyndinn fjölskylduþáttur þar sem sýnd eru bæði innlend og erlend myndbrot, sem kitla hláturtaugarnar og koma öllum í gott skap. Þættinum hafa borist mörg hundruð íslensk myndbrot og eins og áður verða veitt vegleg verðlaun fyrir fyndnasta íslenska myndbrotið. Vinsælasti skemmtikraftur Íslands, Þórhallur Sigurðsson, hinn eini og sanni Laddi, er kynnir þáttanna. 20:15 Psych (1/16) Bandarísk þáttaröð um ungan mann með einstaka athyglisgáfu sem aðstoðar lögregluna við að leysa flókin sakamál. 21:00 Law & Order: Special Victims Unit (12/22) Bandarísk sakamálasería um sérdeild lögreglunnar í New York sem rannsakar kynferðisglæpi. 21:50 Leverage (6/15) 22:40 House (9/22) Bandarísk þáttaröð um skapstirða lækninn dr. Gregory House og samstarfsfólk hans. 23:30 Nurse Jackie (3/12) Skemmtileg þáttaröð um hjúkrunarkonu sem er snjöll í sínu starfi en þarf að fá dópið sitt reglulega. 00:00 Last Comic Standing (7/14) 00:45 Sordid Lives (7/12) 01:10 CSI: Miami (1/25) 01:55 Pepsi MAX tónlist 06:00 Pepsi MAX tónlist 4 5 6 allt fyrir áskrifendur fréttir, fræðsla, sport og skemmtun 08:15 F1: Við endamarkið 08:45 Meistaradeild Evrópu: Meistaradeildin - (E) 10:30 Meistaradeild Evrópu: Meistaradeildin - meistaramörk 11:10 Inside the PGA Tour 2010 11:40 Celtic - Rangers 13:50 Frys.com Open 14:50 Grillhúsmótið Sýnt frá Kraftasport- inu 2010 en til leiks eru mættir flestir af sterkustu mönnum Íslands. 15:30 Fuchse Berlin - RN Löwen 17:05 Formúla 1 2010 19:35 F1: Við endamarkið 20:05 Small Potatoes - Who Killed the USFL 21:00 Justin Timberlake Childrens Open 00:00 Fuchse Berlin - RN Löwen 4 5 6 allt fyrir áskrifendur fréttir, fræðsla, sport og skemmtun 08:20 Maradona 08:50 Chelsea - Wolves 10:35 Sunderland - Aston Villa 12:20 Stoke - Man. Utd. 14:45 Man. City - Arsenal 17:00 Sunnudagsmessan 18:00 Liverpool - Blackburn 19:45 Sunnudagsmessan 20:45 Man. City - Arsenal 22:30 Sunnudagsmessan 23:30 Stoke - Man. Utd. 01:15 Sunnudagsmessan SkjárGolf 07:30 Castello Masters (1/2) 11:30 Castello Masters (2/2) 15:30 Ryder Cup Official Film 2002 17:30 LPGA Highlights (3/10) 18:50 Castello Masters (2/2) 22:50 PGA Tour Yearbooks (3/10) 23:40 ESPN America 06:00 ESPN America

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.