Fréttatíminn - 22.10.2010, Page 65

Fréttatíminn - 22.10.2010, Page 65
dægurmál 65Helgin 22.-24. október 2010 1.990 kr. 2.490 kr. Komin út! 4.490kr. 4.990 kr. T ilb o ð g ild ir t il o g m e ð 3 1 . o k tó b e r 2 0 1 0 . Beckham hjálpar frúnni Victoria Beckham valdi ekki ódýrustu fyrir- sætuna til að máta nýjustu sólgleraugun í tísku- línu sem ber nafn hennar. Hún póstaði í gær á Twitter-síðuna ljósmynd af eiginmanni sínum, David Beckham, með vígaleg flugmanns- gleraugu sem munu koma í verslanir innan skamms. David hefur undanfarin ár verið ein hæst launaða fyrirsæta heims, í aukavinnu með boltanum, og hefur setið fyrir á auglýsingum fyrir meðal annars Armani og Adidas. Það mó þó reikna með að hann rukki frúna ekki fyrir þessa myndatöku. Lífvörður Oksönu ætlar að segja allt Kristian Herzog, líf- vörður hinnar rúss- nesku Oksönu Gregor- ievu, ætlar að skrifa bók um allt havaríið í kring- um hana og eiginmann hennar fyrrverandi, Mel Gibson. Slúður- vefurinn TMZ greinir frá því að hann segi öllum sem vita vilji að hann hafi verið kærasti Oksönu og tali við hana á hverjum degi. Herzog segist eiga meira en þúsund sms-skilaboð og tölvupósta þar sem hann ræði við Oksönu um málið gegn Gibson, sem barði hana eins og harðfisk og hótaði henni lífláti. Kunnugir segja að óumdeilt sé að Herzog hafi haft aðgang að mikilvægum upplýs- ingum þar sem hann sat alla fundi Oksönu með lögfræðingum. Ekki er vitað til þess að hann hafi skrifað undir þagn- areið þegar hann réð sig til starfa hjá rússnesku þokkadísinni.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.