Læknablaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 14
126
LÆKNABLAÐID
skráðir eru í Reykjavík og nágrenni eru í
eftirliti á göngudeildinni.
SKIL
Hversu áreidanleg er pessi könnun á algengi
gláku ? Þar eð könnunartímabilið spannar yfir
meira en hálft ár ættu innkallaðir glákulyf-
seðlar að gefa til kynna nær alla einstaklinga,
sem eru á glákulyfjum. Að vísu bárust gláku-
lyfseðlar ekki frá tveimur lyfjabúðum úti á
landi. Mætti því ætla að könnunin gæfi ekki
rétta mynd af fjölda glákusjúklinga í þeim
landshlutum. Unnt var þó að fylla í þessar
eyður með því að fá upplýsingar um gláku-
sjúklinga frá þeim augnlæknum, sem fara í
augnlækningaferðir í þau læknishéruð, sem
ávísanir á glákulyf bárust ekki úr.
Gera má ráð fyrir að nær allir glákusjúkling-
ar 50 ára og eldri séu með hægfara gláku. Eru
þeir því á stöðugri lyfjameðferð að þeim
undanskildum, sem gengist hafa undir gláku-
aðgerð. Algjör undantekning væri ef þeir
endurnýjuðu ekki lyfseðla á skemmri tíma en 6
mánuðum. Þar sem erfitt er að ná fundi
augnlæknis er algengt að heimilislæknir ávísi
glákulyfjum, samanber grein um lyfjanotkun
glákusjúklinga, sem birt verður síðar í þessum
greinaflokki um gláku. Glákusjúklingar, sem
gengist höfðu undir aðgerð og voru ekki á
lyfjum voru allir með hægfara gláku. Af
framansögðu má því ætla að nær allir þekktir
sjúklingar með hægfara gláku á rannsóknar-
tímabilinu séu tíundaðir í þessari könnun.
Hversu mikill hluti hægfara gláku á klínísku
stigi hér á landi má ætla að sé ípessu uppgjöri ?
í þessu uppgjöri er eingöngu greint frá þekkt-
um glákutilfellum. Vegna eðlis sjúkdómsins
mun nokkuð á skorta að allir glákusjúklingar
séu tíundaðir, þar eð sjúkdómurinn gefur oft
eða oftast ekki einkenni, fyrr en á lokastigum.
Finnst hægfara gláka af þeim sökum ekki
nema sérstaklega sé leitað. Oftast er hægfara
gláka greind þegar sjúklingur kemur til augn-
læknis í gleraugnamátun eða af öðrum ástæð-
um. Tölur þær, sem birtast í þessu uppgjöri,
eru því lágmarksalgengistölur. Með því að
kanna aðsókn sjúklinga til augnlækna í augn-
lækningaferðum er unnt að sjá hversu margir
hafa verið skoðaðir í hverjum aldursflokki á
ákveðnu tímabili.
í Borgarneslæknisumdæmi höfðu 1939 ein-
staklingar komið í augnskoðun til lækna, sem
önnuðust þar augnlæknisþjónustu á vegum
Table IV. Age and sex of 706 patients attending the
Glaucoma Clinic, St. Joseph’s Hospital, Landakot,
Reykjavik during the period of present study.
Age groups Both sexes Males Females
0-39 3 3 0
40-44 4 3 1
45-49 8 3 5
50-54 17 11 6
55-59 32 17 15
60-64 59 37 22
65-69 97 46 51
70-74 138 66 72
75-79 139 69 70
80-84 123 60 63
85 + 86 46 40
Total 706 361 345
Table V. Distribution by regions of 691 patients 50
years and older attending the Glaucoma Clinic, St.
Joseph’s Hospital, Reykjavík during the period of
present study. The number of patients and their
percentage of all glaucoma patients in regions. Both
sexes.
Region Number attending the Glaucoma Clinic Per- centage of glaucoma patients in regions
Reykjavík (Capital City) Neighbour communities .. 396 49.6
(Suburbs) .. 79 54.5
Suðurnes (S-W Peninsula) .... .. 16 15.0
Vesturland (Mid-West) .. 79 50.1
Vestfirðir (North-West) Norðurland vestra .. 23 37.1
(Northern-west) Norðurland eystra .. 20 16.0
(Northern-east) 16 6.4
Austurland (Eastern) .. 19 11.8
Suðurland (Southern) ... 43 52.4
All patients 691 37.0
landlæknisembættisins á árabilinu 1976-82 eða
54.5 % af öllum íbúum, sem voru 3557 að tölu
1. desember 1980. Hver einstaklingur er talinn
einu sinni, enda þótt hann hafi komið oftar.
í töflu VI er greint frá prósentutölu skoðaðra
í aldursflokkum. í aldursflokkum 0-49 ára
hafði nær helmingur allra íbúa verið skoðaður
á umræddu tímabili og meðal 50 ára og eldri
79.7 % (79.3 % karlar og 80.1 % konur). Er
dreifingin svipuð í elstu aldursflokkum. Sé gert
ráð fyrir svipaðri aðsókn til augnlækna ann-