Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1984, Síða 16

Læknablaðið - 15.05.1984, Síða 16
128 LÆKNABLAÐID gláka algengari meðal karla en kvenna. Er munurinn meiri utan Reykjavíkursvæðisins. Athyglivert er að heildaralgengi karla og kvenna er nær það sama í Reykjavík og bilið í aldursflokkum milli karla og kvenna þar mun minna en annarsstaðar á landinu, sjá 11. mynd. Áberandi er línuleg aukning í Reykjavík frá 60-69 ára aldurshópi og upp í elsta aldurshóp- inn. Þetta bendir til flutnings gamals fólks til Reykjavíkur og þá einkum þeirra, sem þurfa að vera undir læknishendi. í Reykjavík er tiltölulega fleira aldrað fólk en annarsstaðar á landinu. íbúar sjötíu ára og eldri á öllu landinu eru 6.8 % en í Reykjavík 8.8 % af heildaríbúatölu, (manntal 1. desember 1981). Hver er ástæðan fyrir mismunandi aigengi gláku eftir landshlutum ? Við athugun á 6. og 7. mynd er áberandi hversu algengi gláku er mismunandi í landshlutum. Stígandi í aldurs- flokkum er mjög svipuð, hvar á landinu sem er og er stöðug línuleg aukning á algengi frá 60- 69 ára aldri til 80 ára aldurs, en eftir það fer glákusjúklingum aftur hlutfallslega fækkandi einkum úti á landsbyggðinni. Ástæðan er sennilega sú að eftir áttræðisaldur leitar fólk síður til augnlæknis vegna ellihrumleika. Áberandi er hversu algengið er meira, þar sem reglulegar augnlækningaferðir eru farnar, þ.e. frá Vesturlandi norður um til Austfjarða en í Reykjavík og nágrenni, þar sem algengið er undir landsmeðallagi, sbr. 8. mynd. Ástæðan fyrir lægra algengi í öllum aldursflokkum á höfuðborgarsvæðinu er sennilega sú, að íbúar í Reykjavík og nágrannabyggðum hafa um alllangt árabil átt í erfiðleikum með að ná til augnlæknis. Það er ekki fyrr en þetta er skrifað (1983) að augnlæknar eru orðnir það margir að ekki er vandkvæðum bundið að ná fundi þeirra. Aftur á móti hefur verið auð- veldara fyrir fólk úti á landi að komast í augnskoðun, þar sem augnlæknar koma reglu- lega. Hafa augnlæknar yfirleitt dvalist það lengi á hverjum stað að allir, sem þess óskuðu, gátu komist að hjá þeim. Um 15-20 % héraðs- búa sækja árlega til augnlækna á augnlækn- ingaferðum. Er hægt að meta heildarfjölda hægfara gláku- sjúklinga á íslandi, pekktra og ópekktra eftir peim algengistölum, sem fyrir liggja í pessari könnun? Næst því verður sennilega komist með því að miða við algengið í þeim landshlut- Fig. 11. Prevalence of open angle glaucoma by age and sex in the population fifty years and older in Reykjavík in 1982. Rates per 1000 population in each age group. %o Fig. 12. Prevalence of open angle glaucoma and of estimated Glaucoma Visual Field Defects in the population fifty years and older in lceland. Both sexes by age. Rates per 1000 population in each age group. Estimated of GVFD are based on records of 691 patients attending the Glaucoma Clinic, St. Joseph’s Hospital, Reykjavik. um, þar sem augnlækningaferðir eru farnar og gefa sér þær forsendur að gláka leynist meðal 20 % þeirra, sem komnir eru yfir fimmtugt og ekki hafa verið skoðaðir. Er þá gengið út frá því, að aðsókn til augnlækna, sem fara í augnlækningaferðalögin, sé svipuð og í Borg- arneslæknisumdæmi.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.