Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.05.1984, Side 22

Læknablaðið - 15.05.1984, Side 22
130 LÆKNABLADID NABLAÐIÐ THE ic: B THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL Læknafélag Islands og Læknafélag Reykjavíkur 70. ÁRG. - MAÍ 1984 Hægfara gláka Langalgengasta gerð gláku er svokölluð hæg- fara gláka (glaucoma chronicum, glaucoma simplex, open angle glaucoma), sem er nær eingöngu sjúkdómur roskins og aldraðs fólks. Sjúkdómurinn lýsir sér í pví að taugapræðir í sjóntaugarósi skemmast smám saman vegna hækkaðs prýstings inni í auganu. Þræðir peir sem bera boð frá sjónujöðrum eru viðkvæm- astir og hverfur hliðarsjónin fyrst. Mestan prýsting pola aftur á móti taugapræðir frá miðsvæði sjónu (macula). Halda sjúklingar pví oft skörpu sjóninni, par til sjúkdómurinn er langt genginn og hliðarsjón að mestu horfin. Að lokum hverfur einnig skarpa sjónin og augað verður alblint. Þessi hægfara próun veldur pví, að fólk gerir sér ekki grein fyrir skerðingu á sjón fyrr en miklar skemmdir eru orðnar. Oft er annað augað nánast blint og hitt með byrjandi glákuskemmdir, pegar læknis er fyrst leitað. í pessu sambandi er vert að taka fram, að augnprýstingur sem hækkar smám saman, veldur ekki verkjum. Við vitum ekki ennpá, hvað veldur hægfara gláku. Sumir álíta, að frumorsökin sé léleg blóðrás í sjóntaugarósi, sem leiði til hinna einkennandi sjónsviðsskemmda og að hækkun augnprýstings sé aðeins afleiðing hennar. Aðrir, og peir eru fleiri, telja að sjúklegar breytingar á síuvef (trabeculum) í framhólfs- horni augans valdi frárennslishindrun augn- vatnsins og par með hækkuðum augnprýstingi, sem aftur prýsti á taugapræði í sjóntaugarósi og skemmi pá smám saman. Afleiðingar sjúkdómsins eru vel pekktar svo sem breytingar á útliti sjóntaugaróss og skerð- ing á sjónvídd. Auðvelt er einnig að mæla augnprýsting. Allt fram á sjöunda áratug pessarar aldar voru allir taldir hafa gláku, sem höfðu augnprýsting hærri en 21 mmHg (»hár augnprýstingur«). Nú vita menn að augu pola prýsting misjafnlega vel og að sumir geta polað augnprýsting yfir 30 mm Hg alllengi, án pess að bíða tjón, par sem aftur á móti aðrir fá glákuskemmdir við prýsting innan við 20 mm Hg. Segja má pví að hver einstaklingur hafi sinn ákveðna prýstingspröskuld (pressure sen- sitivity) og fari prýstingur yfir hann verði skemmdir á taugapráðum. Líklegt má telja að prýstingspröskuldurinn sé bundinn ætterni og lækki með aldrinum. Því miður er ekki unnt að mæla prýstingspröskuldinn, en víst er, að pví hærri sem augnprýstingur er, peim mun meiri líkur eru á glákuskemmdum. Öruggasta leiðin til greiningar hægfara gláku er nákvæm sjón- sviðsmæling og skoðun á útliti sjóntaugaróss. Þótt hugmyndir manna um orsakir hægfara gláku hafi breyst í tímans rás, hefur meðferðin ávallt beinst að pví að lækka augnprýstinginn, ýmist með lyfjum eða aðgerð. Erfitt er oft að ákveða hvenær hefja skuli meðferð t.d. hjá fólki með augnprýsting í hærra lagi (25-30 mm Hg) og engar finnanlegar glákuskemmdir. Þessir sjúklingar flokkast undir glákugrun (glaucoma suspectum) og fá meðferð með prýstingslækkandi lyfjum hjá sumum augn- læknum, en aðeins reglubundið eftirlit hjá öðrum. I pessu sambandi getur búseta sjúk- lings, p.e. hve auðveldlega hann nær fundi augn- læknis skipt máli, svo og hvort gláka finn- ist hjá nánum skyldmennum. Á öðrum stað í pessu tölublaði, er fjallað um

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.