Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.1984, Qupperneq 24

Læknablaðið - 15.05.1984, Qupperneq 24
132 1984;70:132-5 LÆKNABLAÐID Jón G. Stefánsson NOKKUR ORÐ UM PRÓF í LÆKNADEILD INNGANGUR Fyrir nær 20 árum skrifadi ég hugleiðingu um próf og einkunnir í Læknanemann (1). Þetta átti að vera hugvekja og hvatning til umræðu og breytinga, en pó meiningin væri góð, pá er ég í vafa um árangurinn, enda sagði eini maðurinn, sem ég veit með vissu að greinina las, við mig, í vinar hreinskilni að hún væri ósköp lítilfjörleg. Þetta var Baldur Sigfússon, páverandi ritstjóri blaðsins. Nú vil ég reyna aftur, enda haft tíma og tækifæri til að hugsa málið frekar. Það er og, að ég finn til nokkurrar skyldu, til að setja saman um petta pistil nú, vegna pess að lækna- deild sendi mig með ærnum kostnaði á fund, er haldinn var á vegum Nordisk Federation for Medicinsk Undervisning (NFMU) í Kuopio (24.-26. febr. 1983), en par var fjallað um próf í læknaskólum. Sagt hefur verið frá pessum fundi, m.a. í Ugeskrift for læger (2). Fundir NFMU um próf NFMU hefur gengist fyrir umræðu um próf nokkrum sinnum áður. Árið 1969 var haldinn fundur í Uppsölum með George Miller frá Chicago, par sem aðal efnið var samband prófa og kennslumarkmiðs. Árið 1972, pegar læknaskólinn í Kuopio hóf kennslu, var hald- inn par fundur um efnið »Mat á árangri læknisfræðikennslu«. Á pessum fundi var áhersla lögð á kosti og galla mismunandi prófgerða og sérstaklega pau áhrif er próf hafa á námsvenjur og hvað lært er. Sérlegur fyrirlesari pessa fundar var Hilliard Jason frá Michigan State University. Árið 1975 héldu svo Christine McGuire og samverkamenn frá Chicago námskeið í gerð raunlíkra prófa (patient managemant problems). Síðasti fund- urinn um próf var svo haldinn í Kuopio 1983, eins og áður er nefnt, er par var m.a. Mrs Suezette Sowden, sem unnið hefur með Ro- nald Harden við læknamenntunarstofnunina í Dundee. Hún gerði grein fyrir prófum sem par Barst 23/11/1983. Samþykkt 07/12/1983 og send 1 prent- smiðju. hafa verið gerð og kallast á ensku; »Objective Structured Clinical Evaluation« (OSCE). Tilgangur prófa Með prófum er litið eftir pví, að verðandi læknar hafi nauðsynlega pekkingu og kunn- áttu í starfi, til að sinna peim verkefnum er peir fá sérstök réttindi til að vinna sem læknar, svo og öðrum störfum, t.d. rannsóknum í læknis- fræði. Prófin, með gerð sinni og innihaldi, stýra að verulegu leyti, hvað læknanemar leggja áherslu á að læra og niðurstöður Prófanna upplýsa nemendur og kennara um hvernig námið eða kennslan hafi tekist og hverju purfi úr að bæta. Próf gegna pannig mikilvægu hlutverki og gerð peirra og tíma- setning í náminu parf að vera slík, að pau komi að sem mestum notum. M.a. vegna pess hve verkefni lækna eru margvísleg, er læknisnám- ið mjög margbrotið og fjölpætt. Til pess að meta árangur í hinum ýmsu mismunandi pátt- um námsins, verður að beita mismunandi aðferðum, pannig að flestir, eða helst allir, pættir námsins séu skoðaðir. Ekki er hægt með einni prófaðferð að meta alla pætti. Hins vegar má nálgast pað, að fá sanna mynd af getu nemanda með pví að nota margar mismunandi prófaðferðir. Áreiðanleiki og gildi Eins og aðrar mælingaaðferðir, purfa próf að vera áreiðanleg. Áreiðanleiki prófs felst fyrst og fremst í pví, að um sömu niðurstöðu verði að ræða pegar prófúrlausn er metin sjálfstætt af fleiri en einum, t.d. kennara og prófdómara. Sé próf endurtekið innan mjög skamms tíma, ætti pað líka að skila sömu niðurstöðu og hið fyrra, en á pað reynir sjaldan í raun. Þá verða próf að vera gild sem mælikvarði á pað sem nemandinn á að kunna. Lýsing á markmiði námskeiðs, kennslan sem par fer fram og próf í lok pess, eiga að vera í rökréttu, eða a.m.k. skiljanlegu samhengi. Sé ekki ljóst hvert markmið námskeiðs er, verður gildi prófs í námskeiðs lok, a.m.k. jafn óljóst. Próf á að hafa forspárgildi um frammistöðu nemand-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.