Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.05.1984, Side 27

Læknablaðið - 15.05.1984, Side 27
LÆKNABLADID 133 ans við samskonar verkefni í framtíðinni. Próf- ið á því að fjalla fyrst og fremst um þau atriði sem nemandinn þarf frekast að fást við í starfi síðar, en ekki snúast nema að mjög litlu leyti um vandamál sem sjaldgæf eru. Algeng vandamál eiga að vera algeng þróf- verkefni, sjaldgæf vandamál sjaldgæf þrófverk- efni. Prófið þarf þannig að vera sniðið eftir því, sem nemandinn mun í raun fást við sem læknir. Þá á þrófið einnig að reyna mest á þá þætti sem eru þýðingarmestir. Til glöggvunar má spyrja, hvort atriðið sé algengt viðfangs- efni, hvort vanþekking á því muni hafa alvar- legar afleiðingar fyrir sjúkling eða nem- andans sem læknis almennt og hvort það sé atriði sem gera verði ráð fyrir að allir kunni skil á. Á þennan veg má draga atriði í dilka og meta, hve stór hlutur þeirra skulli vera í prófi (3). Fyrir utan vankanta tengda áreiðanleika og gildi, eru helstu gallar prófa venjulega þessir: a. Prófuð eru minnisatriði, sem fljótt gleymast og verða úrelt að stórum hluta, jafnvel áður en nemandinn lýkur námi. b. Prófað er mest úr því sem sagt er í fyrirlestrum, en það dregur úr lestri, bæði kennslubóka og tímarita. c. Ekki er prófað í hæfni til að leysa úr vandamálum. d. Ekki er prófað í getu til að tvinna saman kunnáttu í mismunandi greinum. Að lokum skal þess minnst, að próf verður að vera framkvæmanlegt, en kostnaður og ýmsir tæknilegir erfiðleikar geta reynst ofjarlar fá- tækum læknaskóla. Próf við Læknadeild Háskóla íslands Próf við Læknadeild Háskóla íslands eru nokkuð mismunandi, en lang algengast er að þau séu gerð úr spurningum sem svarað er í stuttu máli og fjölvalsspurningum eða afbrigð- um af þeim, (t.d. rétt-rangt spurningum). Ritgerðarverkefni eru mun sjaldnar notuð og munnleg próf og verkleg próf enn sjaldnar. Fjölþættasta prófið í Læknadeild er próf í lyflæknisfræði í lok námsins. Prófið er í 3 hlutum; skriflegum, munnlegum og verklegum hluta. Skriflegi hlutinn, þar sem um er að ræða fjögurra stunda próf, er samsettur úr fjölvals- spurningum er gilda 40 % og tveimur ritgerð- arverkefnum, er hvort um sig er metið til 30 % prófsins. í munnlega prófinu dregur stúdent verkefni og fær eitt aðal- og eitt aukaverkefni. Prófið mun taka 30-40 mínútur. í verklega prófinu gengur stúdent á fund þess kennara er prófar hann og fær þar sjúkling til skoðunar, en kennarinn og prófdómari fylgjast með er stúdent leitar eftir upplýsingum hjá sjúklingnum og skoðar hann. Mjög svipað er farið að í lokaprófi í handlæknisfræði. í geðlæknisfræði er munnlegt próf í lok námskeiðs. í því prófi er gengið út frá, annað hvort sjúkraskrá er stúdent hefur ritað á námskeiðinu eða ritgerðarverkefni er hann hefur skrifað undir handleiðslu kennara í náminu. Til skamms tíma var lagt mat á sjúkraskrár er stúdent ritaði meðan á nám- skeiðinu stóð, frammistöðu i klíníkum og um ræðufundum, svo og aðra frammistöðu á námskeiðinu og stúdent gefin fyrir þetta eink- unn, er reiknuð var sem hluti af lokaeinkunn. Þetta er þó niður lagt að sinni. Munnlegt próf er einnig í réttarlæknisfræði. í heimilis- læknisfræði er ekki um eiginlegt próf að ræða, heldur er einkunn gefin eftir mæt- ingu og annarri frammistöðu meðan á nám- skeiðinu stendur. Próf í öðrum greinum eru fyrst og fremst skrifleg. Um þessi próf má segja þetta: Próf sem fyrst og fremst eru byggð upp úr spurningum sem svarað er í stuttu máli eða fjölvalsspurningum, en þetta er algengasta prófgerðin í Læknadeild, eru tiltölulega auð- veld í gerð, þannig að þau verði áreiðanleg. Þau fjalla þó oftast að verulegu leyti um minnisatriði og oft um aukatriði og þegar svo er verður að draga í efa að þau hafi mikið gildi. Ritgerðarverkefni reyna meira á skilning stúdents og notkun á því sem hann kann, en þó fer oft svo að nemendur draga ekki saman og gera upp, heldur skrifa allt sem þeir vita og gera lítinn greinarmun á aðal- og aukaatriðum. Þá er erfiðleikum háð að meta verkefnin til einkunnar, þannig að áreiðanlegt sé, nema gerð sé fyrirfram skýr áætlun um hvaða atriði skuli koma fram í ritgerðinni, hvernig gefið skuli fyrir hvert þeirra og hvað draga skuli frá fyrir þau atriði sem vantar. í munnlegu prófi er hægt að fara nánar út í þau atriði sem þykja þýðingarmikil og kanna þar bæði þekkingu og skilning stúdents. Að- stæður í munnlegu prófi nálgast að vera það sem gerist við vissar kringumstæður í klínískri vinnu, en hins vegar mun raunin sú, að stúdentum er illa við munnleg próf og flestir kjósa fremur skrifleg. í munnlegu prófi, eins og þau gerast í Læknadeild, er þó mjög erfitt að komast að áreiðanlegri niðurstöðu um

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.