Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.1984, Qupperneq 28

Læknablaðið - 15.05.1984, Qupperneq 28
134 LÆKNABLAÐIÐ þekkingu og skilning stúdents, sérstaklega þar sem kennarar sem prófa eru margir og mis- munandi og verkefni sem stúdentar fá sömu- leiðis. í klínísku prófunum í handlæknis- og lyf- læknisfræði, er sjálfsagt skoðað fyrst og fremst hvernig stúdent notar þekkingu sína, hvaða klíníska afstöðu og framkomu hann hefur gagnvart sjúklingi og hvernig klínísk verkkunnátta hans er a.ö.l. Við þessi próf er þó við sömu erfiðleika að etja við mat á hæfni stúdents og við er að fást í munnlegum próf- um og áður eru nefndir. í geðlæknisfræði hefur verið reynt að leggja mat á ýmis verkefni er stúdent hefur unnið meðan á námskeiðinu hefur staðið, t.d. ritgerð- arverkefni, en einnig framsögu á klínískum fundum, þátttöku í umræðum o.s.frv. Mest hefur þó verið lagt upp úr mati á sjúkraskrám er stúdent hefur unnið. í því sambandi verður þó að hafa í huga, að sjúkraskráin ber fyrst og fremst vott um, hvernig stúdent gerir sjúkra- skrá og vel getur verið að stúdent vinni góða klíníska vinnu a.ö.L, þó hann geri lélega sjúkraskrá og eins hitt, að hann getur gert sjúkraskrána vel, en unnið klínísku vinnuna a.ö.l. illa. Lýsing í sjúkraskrá, t.d. á skoðun, tryggir heldur ekki að skoðun hafi verið framkvæmd. Það er því ekki hægt að byggja á sjúkraskránni einni sér, heldur verður að fylgjast með öllum þáttum klínískrar vinnu stúdents, eigi að gera sér grein fyrir styrkleika hans og veikleikum. Benda má á að s.k. vandamálasjúkraskrá (problem oriented med- ical record) er sérstaklega notagóð við mat á klínískri vinnu, en á kennsluspítölum okkar tíðkast ekki að nota þessa gerð sjúkraskrár. í Læknadeild hefur oft verið rætt um, að hve miklu leyti eigi að nota próf er ná til tiltölulega afmarkaðs efnis, t.d. í lok nám- skeiðs, og að hve miklu leyti eigi að nota löng og yfirgripsmikil próf, t.d. í lok árs, eða jafnvel í lok náms er tekur yfir meira en ár, eins og t.d. í handlæknis- og lyflæknisfræði. Um þetta má segja að hin minni og tíðari próf, koma að betri notum stúdentunum, til hvatningar og leiðbeiningar, en þau eru hins vegar síður fallin til þess að meta hver hæfni stúdents er til læknisstarfa, þar sem hann þarf að flétta saman fræðilega þekkingu og verkkunnáttu hinna ýmsu greina læknisfræðinnar. Hin yfir- gripsmeiri próf eru því þýðingarmeiri, til að gera sér grein fyrir hæfni stúdents til þess að starfa sem læknir. Aðrar prófgerðir Nú skal lýst tveimur prófgerðum er mér sýnist að vel mætti nota við okkar aðstæður. Raunlík próf (patient management problems) (4): Þessa gerð verkefna má nota, hvort heldur er sem kennsluverkefni eða sem próf. Upp- lýsingar eru gefnar um sjúkling síðan er spurt og kostur gefinn á nokkrum svörum. Það svar sem valið er, leiðir til frekari upplýs- inga og/eða spurninga og svo koll af kolli. Verkefnið er oftast útbúið á blöðum, þar sem svörin, eða viðeigandi leiðbeiningar eru skrif- uð ósýnilegu letri, sem svo eru framkölluð af stúdent með sérstökum penna, en einnig má t.d. vísa til svara sem eru í númeruðum, lokuðum umslögum. Verkefni eru einnig til á bandi, eða disk og er þá unnið með tölvu. Stúdent er gefið stig fyrir rétt svar, en fær refsistig, ef svarið er alls ekki viðeigandi. Gefa má fleiri stig fyrir besta svar, en færri fyrir svör sem ekki eru eins góð en þó ekki beinlínis röng, o.s.frv. Verkefni sem þessi eru góð til að prófa notkun þekkingar og ákvörðunartöku, en ekki er hægt að prófa með þeim verk- kunnáttu, t.d. við klíníska skoðun eða upp- lýsingaöflun og framkomu við sjúkling. Með notkun verkefna sem þessara gættu tölvukerfi spítalanna orðið mikilvirk kennslu- tæki. Klínísk próf par sem hinir ýmsu pættir eru skipulega aðskildir. (Objective Structured CIi- nical Examination) (5): Aðferðin felst í því leysa klíníska prófið upp í mörg atriði, sem eru skoðuð og metin hvert fyrir sig. Stúdentinn fer á milli prófstaða og á hverjum stað er kennari með viðeigandi útbúnað eða sjúkling (e.t.v. leikinn sjúkling). Hver stúdent er því prófaður í sömu atriðum, af sömu kennurum, við sömu aðstæður. Prófið í hverju atriði tekur aðeins stutta stund og stúdentar færa sig milli staða eftir tímaáætlun. Kostir þessarar prófgerðar, umfram hina venjulegu aðferð við klínískt próf, eru fyrst og fremst aukinn áreiðanleiki og e.t.v. aukið gildi. Þar við bætist að hún gerir prófun auðveldari þegar stúdentar eru margir. Ókostir hennar eru hins vegar þeir, að undirbúningsvinna er töluverð, svo og það, að stúdent fæst ekki við sjúkling í heild sinni, heldur mismunandi þætti, en þetta er ólíkt því sem yfirleitt gerist í klínískri vinnu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.