Læknablaðið - 15.05.1984, Side 50
146
LÆKNABLAÐIÐ
Tilgangur pessarar könnunar var að athuga
tíðni mesótelíóma á íslandi og bera hana
saman við tíðnitölur í öðrum löndum. Einnig
var reynt að komast að því hvort einstakling-
ar, sem greindir voru með mesótelíóma, hefðu
oftar orðið fyrir asbestmengun en almennt
gerist.
EFNIVIÐUR
Leitað var að einstaklingum með illkynja
mesótelíóma í Krabbameinsskrá fyrir árin
1955-1982. Auk pess var leitað í greininga-
skrám Rannsóknarstofu Háskólans við Bar-
ónsstíg árin 1955-1976. í priðja lagi var leitað
að einstaklingum með mesótelíóma í krufn-
ingaskýrslum og peim öllum flett frá árun-
um 1976-1982.
Farið var yfir sjúkraskýrslur, lýsingar á
vefjasýnum og krufningaskýrslur og öll smá-
sjárgler frá sjúklingum með mesótelíóma voru
endurskoðuð af einu okkar (H.B.). Einu
tilfelli var hafnað par sem pað uppfyllti ekki
skilyrði vefjagreiningar.
Pegar viðmiðunareinstaklingar voru valdir,
var tekið tillit til pess að sjúklingarnir voru
látnir og höfðu verið krufnir. Því var leitað að
viðmiðum í krufningaskýrslum Rannsóknar-
stofu Háskólans. Fundin voru tvö viðmið fyrir
hvern einstakling með mesótelíóma. Viðmiðin
voru mátuð (matched) við tilfellin hvað varðar
kyn, aldur og dánartíma. Enginn í viðmiðunar-
hópnum hafði fengið lungna — eða meltingar-
færakrabbamein.
Pegar grennslast var fyrir um hvort tilfellin
og viðmið peirra hefðu orðið fyrir asbest-
mengun var haft samband við aðstandendur
viðkomandi símleiðis og með beinum
viðtölum. Hjúkrunarfræðingur, sem í upphafi
vissi ekki hvort um tilfelli eða viðmið var að
ræða, spurði aðstandendur um atvinnusögu,
vinnuaðstæður, félagslegar aðstæður og störf
náinna ættingja eftir stöðluðum spurningalista.
Peir sem spurðir voru, fengu ekki að vita,
hvort hinn látni aðstandandi peirra væri í
tilfella- eða viðmiðahópnum og ekki heldur að
verið væri að athuga afleiðingar hugsanlegrar
asbestmengunar. Petta var gert til pess að
girða eins og hægt var fyrir hlutdrægni í
söfnun pessarra upplýsinga.
Við mat á mengun í vinnu bæði hjá pátttak-
endum og aðstandendum peirra var notaður
listi yfir pau störf, sem talið er að asbest-
mengun fylgi og notaður hefur verið áður í
rannsóknum af pessu tagi (2, 26). Þátttakendur
voru taldir hafa orðið fyrir mengun utan vinnu
ef peir höfðu búið langtímum saman í húsi,
sem byggt var utan eða innan úr asbestbygg-
ingarefni eða ef peir höfðu verið samvistum
við ættingja, sem höfðu unnið við asbestmeng-
uð störf.
Við samanburð á tíðni illkynja mesótelíóma
á íslandi og í öðrum löndum voru notaðar
nýgengitölur frá Norður-Ameríku 1972, en par
fundust 2.8 tilfelli á hverja milljón karla og 0.7
tilfelli á hverja milljón kvenna pegar miðað er
við alla 15 ára og eldri (2). Ennfremur var
miðað við tölur frá Englandi, Wales og Skot-
landi par sem árin 1967 og 1968 greindust
2.2 ný tilfelli á ári á hverja milljón íbúa, pegar
reiknuð eru saman konur og karlar á öllum
aldri (11). Reiknað er með að 70.600 karlar og
70.300 konur séu 15 ára og eldri að meðaltali á
hverju ári á íslandi 1965-1982 og að alls séu
235.300 karlar og konur að meðaltali á öllum
aldri á hverju ári á sama tímabili.
Samanburður á tíðni asbestmengunar hjá
tilfellum og viðmiðum var gerður í mátuðum
príundum (matched triplets) og var notað
afbrigði af McNemar prófi (27). Mismunurinn
var álitinn tölfræðilega marktækur fyrir p<
0.05 (einhliða).
NIÐURSTÖÐUR
Sex illkynja mesótelíóma fundust miðað við
tímabilið 1965-1982. Fjögur peirra greindust
hjá körlum, en tvö hjá konum og öll æxlin
voru vaxin frá fleiðru, nema eitt, sem reyndist
vaxið frá lífhimnu (önnur konan). í tveimur
tilfellum var greiningin gerð á vefjasýni (biop-
sy), en í fjórum við krufningu.
Yfirleitt leið stuttur tími frá pví að sjúkling-
arnir fengu fyrstu einkenni um æxlið, par til
pað leiddi pá til dauða eða frá fjórum dögum
og upp í prjú ár. Á peim átján árum sem
rannsóknin náði yfir greindist eitt tilfelli á fyrsta
Tafla 1. Greiningaár illkynja mesótelíóma á íslandi.
Ár Fjöldi tilfella Ár Fjöldi tilfella
1965 ... .. 1 1974 . . . .. 1
1966 ... .. — 1975 ... .. —
1967 .. . .. — 1976 ... .. —
1968 . . . .. — 1977 ... .. 2
1969 . . . . . — 1978 . . . . . —
1970 ... .. — 1979 . . . . . —
1971 ... . . — 1980 . . . . . —
1972 ... .. 1 1981 ... .. —
1973 ... ■ • — 1982 ... . . 1