Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.1984, Page 52

Læknablaðið - 15.05.1984, Page 52
148 LÆKNABLADIÐ Árin 1980 og 1981 var mikill innflutningur vegna hitaveituframkvæmda, en í pær hafa verið notuð asbeströr, sem innihalda krókídó- lít. Auk þessa hafa á sömu árum verið fluttar inn vélaþéttingar, núningsmótstöðuefni og aðrar asbestvörur svo tugum tonna skiptir. Til pess að stemma stigu við pessu var í reglum nr. 75 og reglugerð nr. 74 árið 1983 (30) sett bann við innflutningi og notkun asbests nema til komi sérstök undanþáguheimild frá Vinnu- eftirliti ríkisins. Samanburður á tíðni mesótelíóma hérlendis og á Bretlandseyjum og í Norður-Ameríku er athyglisverður. Pessar viðmiðanir virðast sýna að mesótelíóma komi fyrir hér í u.p.b. sama mæli og par. Að sjálfsögðu er þessi samanburð- ur háður nokkurri óvissu. Sem dæmi mætti nefna, að hér á landi er önnur aldursdreifing en hjá þeim þjóðum, sem miðað er við. íslensku tölurnar byggja á söfnunarnýgengi, en viðmiðunartölurnar á árlegu nýgengi og þannig mætti tilfæra fleiri atriði. Engu að síður kemur þetta nokkuð á óvart, þar sem asbest- mengun hefur verið talin minni hér á landi en í nágrannalöndum okkar, þar sem hér eru engar asbestnámur eða iðnaður, sem byggir á fram- leiðslu úr asbestvörum. Sú staðreynd, að við finnum u.þ.b. jafn mörg mesótelíóma og búast mætti við, þegar litið er til Bretlands, Bandaríkjanna og Kanada, gæti e.t.v. skýrst af því að greining þessa illkynja æxlis sé betri og nákvæmari hér. Þetta ber einnig að skoða í ljósi þess að forsendur greiningarinnar eru vefjarannsókn og hér á landi má ætla að hærra hlutfall dáinna komi til krufninga en í viðmiðunarlöndunum. Vegna þess hve fáir einstaklingar eru í könnuninni er ekki hægt að reikna út áhætt- una (relative risk) á að fá mesótelíóma ef mað- ur verður fyrir asbestmengun. Það hefði hins- vegar verið unnt, ef mátunin hefði verið felld niður og efniviðurinn meðhöndlaður eins og ómátaður væri. Þarsem rannsóknin varí upphafi lögð upp út frá mátuðum viðmiðum þótti rétt að halda því og breyta ekki frá grunnáætlun rannsóknarinnar. Ef dregnar eru saman helstu niðurstöður þessarar könnunar, kemur í ljós, að hið sjald- gæfa æxli illkynja mesótelíóma, sem rakið er til asbestmengunar, er einnig að finna á íslandi og að því er virðist í svipuðum mæli og í Bretlandi og Norður-Ameríku. Þetta bendir því til að vinnuhættir og aðstæður hér á landi hafi á margan hátt verið sambærileg við það sem gerst hefur í nágrannalöndum okkar. Þorsteini Blöndal, Helga Sigvaldasyni og Hrafni Tulinius eru þakkaöar ábendingar og ráðleggingar. Auk pess eru sérstakar pakkir færðar Krabbameinsfélagi ísiands. SUMMARY A case control study of malignant mesothelioma in Iceland with special regard to asbestos exposure is described. Six cases of malignant mesothelioma of pleura and peritoneum were found in the files of the Icelandic Cancer Registry and the Institute of Pathology of the University of Iceland for the years 1965-1982. Five of six cases and six of twelve controls were considered to have been exposed to asbestos, either through occupation, close contact with another individual with occupational asbestos exposure or through living in a dwelling built from asbestos- containing building materials. Comparison between cases and controls, employing matched triplets, revealed a statistically significant difference at the 5 % level (one-tailed). Relative risk was not calcu- lated due to the small number of cases. The number of cases observed is close to that expected when North American and British inci- dence figures are used for reference. This seems to indicate that asbestos exposure at work and in the home might be comparable to that of other Western countries. HEIMILDIR: 1) Wagner JC, Sleggs CA, Marchand P. Diffuse pleural mesothelioma and asbestos exposure in the North Western Cape Province. Br J Ind Med 1960; 17:260-71. 2) McDonald AD, McDonald JC. Malignant meso- thelioma in North America. Cancer 1980; 46: 1650-6. 3) Selikoff IJ, Hammond EC, Churg J. Mortality experiences of asbestos insulation workers. In: Shapiro HA, ed. Proceedings of the Interna- tional Conference on Pneumoconiosis, Johan- nesburg, 1969. Cape Town: Oxford Press, 1970: 180-6. 4) Selikoff IJ, Hammond EC. Multiple risk factors in environmental cancer. In: Proceedings of Conference: Person at High Risk of Cancer, December 10-12, 1974, Key Biscayne, Florida, 1975; 467-83. 5) Selikoff IJ, Lee DHK. Asbestos and Disease. Academic Press, New York 1978: 255-83. 6) Teta MJ, Lewinsohn HC, Meigs JW, Vidone RA, Mowad LZ, Flannery JT. Mesothelioma in Connecticut, 1955-1977. J Occup Med 1983; 25: 749-56. 7) Borow M, Conston A, Livornese LL, Schalet N. Mesothelioma following exposure to asbestos: a review of 72 cases. Chest 1973; 64: 641-6.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.