Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.05.1984, Side 53

Læknablaðið - 15.05.1984, Side 53
Tagamet REYNSLA OG GOTT GENGI UM ALLAN HEIM. MEIRA EN 20.000.000 SJÚKLINGAR í 115 LÖNDUM HAFA NOTAÐ LYFIÐ. SANNAST HEFUR LÆKNINGAMÁTTUR LYFSINS OG ÖRYGGI í NOTKUN. Upplýsingar um notkun Lyfjaform: Fölgrænar filmuhúðaöar töflur. áletraðar TAGAMET öðru megin og SK&F 200 hinum megin, innihalda 200 mg cimetidine. Lykjur (ampullur) sem innihalda 200 mg cimetidine i 2ja ml lausn. Notkun: Tagamet er Histamin H?-viðtækja btokkari sem hindrar bæði grunn(basal) og örvað magasafaflæði af sýru og minnkar pepsin útskilnað. Ábendingar Meðferð skeifugamarsára, góðkynja magasáramyndun, endurtekin sáramyndun, stoma- sár, bakflæðis vélindabólga (reflux oesophagitis), aðrar kríngumstæður þar sem liklegt er að minnkuð magasafamyndun só heppileg. Það er einnig ráðlagt við meðferð á Zollinger-Ellison syndrome. Skömmtun og gjöf: Fullordnir: Gjöf i meltingarveg: Vanalegur skammtur er 200 mg 3svar á dag með mat og 400 mg við háttumál (1,0 g/dag). Ef ófullnægjandi symptomatisk svörun fæst eða merki eru um áframhaldandi sáramyndun má auka skammta í 400 mg 4 sinnum á dag (1,6 g/dag) einnig með mat og viö háttumál. Þennan skammt ætti i upphafi að gefa í a.m.k. 4 vikur (6 vikur sé um að ræða góðkynja magasár), jafnvel þótt symptomatisk bót hafi fengist fyrr. Meðferð má halda áfram í lengri tima hjá sjúklingum sem kunna að fá bót af minnkun magasafaframleiðslu og minnka má skammta hjá þeim sem svarað hafa meðferð t.d. í 400 mg að morgni og við háttumál. Hjá sjúklingum með skeifugamarsár sem svarað hafa upphafsmeðferð má hindra endur- myndun sárs með áframhaldandi meðferð með 400 mg við háttumál, eða 400 mg að morgni og 400 mg við háttumál i a/n.k. 6 mánuði (sjá frekari upplýsingar). Við bakflæðis vélindabólgu er ráðlagt að gefa 400 mg 4 sinnum á dag með máltíðum og við háttumál i 4-8 vikur. Hjá sjúklingum með mjög mikla magasýruframleiðslu (t.d. Zollinger-Ellison syndrome) getur veríð nauðsynlegt að auka skammtinn í 400 mg 4 sinnum á dag eða I einstaka tilfellum í 2 g/dag. Við biæðingar frá sárí eða fleiðrum (erosion) i efrí hluta meltingarvegar og við meðferð sjúklinga sem útsettir eru fyrir blæðingu frá efri hluta meltingarvegar er vanalegur skammt- ur 200 mg 3svar á dag með máltið og 400 mg við háttumál. Nauðsynlegt getur verið að auka skammtinn i 400 mg 4 sinnum á dag. Þar eð ekki víst að Tagamet veiti samstundis symptomatiska bót, ættu sjúklingar að hafa aðgang að sýrubindandi lyfjum þar til einkenni hverfa. Stungulyfsnotkun: Tagamet er hægt að gefa í æð eða vöðva. Skammtur í vöðva er vanalega 200 mg sem endurtaka má á 4-6 klst. fresti. Skammtur við gjöf í æð er vanalega 200 mg sem gefa á hægt og má endurtaka á 4-6 klst. fresti. Ef sjúklingur hefur skerta hjarta eða æðakerfisstarfsemi eða ef gefa þarf stærrí skammt ætti að þynna skammtinn og gefa á a.m.k. 10 min. I slikum tilfellum er innrennsli (infusion) hentugra. Skammtur við innrennslisgjöf er 100 mg/klst. i 2 klst. endurtekið á 4-6 klst. fresti. Hámarksrennslishraði ætti ekki að fara fram úr 150 mg/klst. (eða 2 mg/kg líkamsþunga/ klst.). Með samfelldrí innrennslisgjöf ætti meðalrennslishraði allt að 75 mg/klst. á 24 klst. að nægja. Heildardagskammtur með hvaða lyfjaformi sem er ætti vanalega ekki að yfirstiga 2 g. N.B. Skammtastærð ætti að minnka hjá sjúklingum með skerta nýmastarfsemi (sjá varúð). Böm: Reynsla af Tagamet hjá bömum er takmörkuð og hefur ekki verið metin i kliniskum rannsóknum (sjá frekari upþlýsingar). Frábendingar, viðvaranir o.fl. Engar þekktar frábendingar. Vanjð: Skammta ætti að minnka hjá sjúklingum með skerta nýmastarfsemi i samræmi við creatinine clearance. Eftirfarandi skammtar ern ráðlagðir: Creat. clearance 0-15 ml/min. 200 mg x 2/dag, 30-50 ml/min. 200 mg x 3/dag, yfir 50 ml/mín. venjulegur skammtur. Hægt er að fjaríægja cimetidine með hemodialysis. Mælt er með tíðu eftiríiti með sjúklingum sem samtimis eru á meðferð með blóðþynningar- töflum þar eð cimetidine lengir frekar prothrombin tima hjá sjúklingum á þessum lyfjum. Tagamet getur einnig haft áhrif á lyfjaferii klórdiazepoxíðs og díazepam (en ekki lóraz- epam og oxazepam) og þannig aukið klínisk áhrif þeirra. Þótt klíniskar tilraunir í allt að eitt ár hafi ekki sýnt markverðar óvæntar hjáverkanir, ætti að halda áfram að fylgjast reglulega með sjúklingum á langtímameðferð. Áður en hafin er meðferð með Tagamet við magasári, ætti að útibka illkynja vöxt, þar eð meðferð getur dregið úr einkennum og tafið greiningu. Hafa ber í huga hjá sjúklingum með sjúkdóma, eða á lyfjum, sem stuðlað geta að blóðkomafæð, möguleika Hí-viðtækjablokkara til að magna slík áhrif. Notkun i meðgöngu og við brjóstagjöf: Þótt tilraunir í dýrum hafi ekki sýnt hættu af gjöf Tagamet á meðgöngu eða við brjóstagjöf, hafa bæði þessar rannsóknir og rannsóknir á konum sýnt að það fer yfir fylgjuþröskuld og skilst út í mjólk. Því ætti eins og við flest lyf að f orðast notkun T agamet á meðgöngu og meðan br jóstag jöf stendur nema nauðsyn beri til. Aukaverkanir: Niðurgangur, svimakennd eða útbrot, vanalega væg og sem ganga yfir og þreyta hafa veríð tilkynnt. Væg brjóstastækkun virðist sjaldgæf. Lifrarskaði sem gengið hefur til baka og sannaður með blóðrannsóknum eða sýnatöku, hefur einstaka sinnum verið skráður. Ruglástand sem gengið hefur yfir, hefur einnig komið fyrir, vanalega hjá öldruðum eða þegar mjög veikum sjúklingum (t.d. sjúklingum með nýmabilun). Interstitial nephritis eða bráð briskirtilsbólga sem gengið hefur til baka þegar Tagamet meðferð var hætt hefur sést mjög sjaldan. Hækkanir á plasma creatinine gildi án annarra einkenna hafa ekki haft kliniska þýðingu. Eitrunarskammtar: Inntaka allt að 100 taflna i einu hafa verið skráðar nokkmrn sinnum án nokkurs markverðs skaða. Framköllun uppkasta og/eða magaskolun má nota ásamt symptomatiskri- og stuðningsmeðferð. Lyf jafræðileg aðgát: Geymist á köldum stað og f jarri Ijósi. Frekari upplysingar: Rannsóknir sem staðið hafa allt að einu ári hafa sýnt að allt að 80-85% sjúklinga hverra skeifugamarsár greru á upphafsmeðferð með Tagamet i fullum skömmtum, héldust i afturbata á annað hvort 400 mg Tagamet við háttumál eða 400 mg 2svar á dag. Tagamet samrýmist jóna- og sykurinnrennslislausnum sem vanalega eru notaðar. Tagamet hefur ekki verið metið í kliniskum tilraunum hjá bömum. Samt sem áður hefur Tagamet verið gefið þar sem minnkun magasafaflæðis var talin nauðsynleg. Tagamet i skammtastærð 20-40 mg/kg/dag vargefið í dreifðum skömmtum i æð eða meltingarveg. Tilvitnanir: 1. Pounder, R.E. (1981) Lancet,/,29. 2. Bodemar, G. and Walan, A. (1978) Lancet, /, 403. 3. Hansky, J and Korman, M.G. (1979) Digest. Dis. Sci., 4,465. 4. Sonnenberg, A. et al (1979) Dtsch. Med. Wschr., 104,725. 5. Hetzel, D.J. et al (1979) Med.J.Aust., 7,529. 6. Mekel, R.C.P.M. (1978) S.Afr.Med.J., 54, 1089. 7. Venables, C.W. et al (1978) Cimetidine. The Westminster Hospital Symposium, Churchill Livingstone P13. Tagamet er skrásett vörumerki. a SmithKline company SMITH KLINE & FRENCH CANADA LTD. MISSISSAUGA, ONTARIO, CANADA Síðumúla 32-105 Reykjavík - Slmi 86044.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.