Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.1984, Qupperneq 60

Læknablaðið - 15.05.1984, Qupperneq 60
152 LÆKNABLADID áratugi (23) og sé enn að breytast. Okkur er hins vegar ekki kunnugt um eldri rannsóknir af þessu tagi hérlendis og getum því ekkert sagt um breytingar né breytingarhraða. Það er hins vegar nokkuð ljóst, að íslendingar búa ekki við kalíumskort, en sá ólíklegi möguleiki var hugsanleg skýring á lágum K-gildum í sermi (19). Það er athyglisvert að Na/K hlutfallið er hærra í morgunþvagi heldur en í sólar- hringsþvagi. f>að virðist þess vegna vera vara- samt að bera saman Na/K hlutfallið í einstök- um þvagsýnum, sem tekin eru á einhverjum óákveðnum tíma dagsins, ef Na/K hlutfallið er sífellt að breytast. Lægri útskilnaður Na og K á hverja kreatinin einingu í morgunþvagi en í sólarhringsþvagi er í samræmi við það sem áður hefur verið lýst (24), eða allt að 5 sinnum minni útskilnaður þessara jóna að nóttu en degi. Það er líklegt að betra hefði verið að mæla fleiri en eitt sýni (sólarhringsþvag) frá hverjum einstaklingi vegna hugsanlegrar einstaklings- bundinnar sveiflu í útskilnaði Na og K. Þetta var ekki gert, enda hefði það kostað aukið álag á þátttakendur. Dahl (1) rannsakaði þetta og fann nokkrar sveiflur hjá einstaklingum frá degi til dags, en meðaltal margra sýna eyddi sveiflunni. Við höfum kannað tíðnidreifingu útskilnaðargildanna og sýnist dreifingin fara nálægt »normal« dreifingu. Eins og að framan er getið hefur mikil Na- neysla og lítil K-neysla verið nefnd sem ein af orsökum hárrar tíðni blóðþrýstings á Vestur- löndum (2). Breytingar þeirrar neyslu gætu svo aftur skýrt lækkun á tíðni dauða af völdum sjúkdóma í heilaæðum og hjarta (7), sem fundist hefur síðustu áratugi í flestum löndum hins vestræna heims (Evrópa og N-Ameríka) (7, 15). í þjóðfélögum, sem lítið eru talin hafa breyst í gegnum aldirnar og eru ósnortin af vestrænni menningu, hefur fundist mjög lág Na-neysla og lágur blóðþrýstingur, sem ekki hækkar með aldri (7,22). Þannig eru útskilnað- artölurnar, sem sýndar eru í töflu IV fyrir Yanomamo indíánana sláandi. Ekki fá allir hækkaðan blóðþrýsting þrátt fyrir mikla saltneyslu. Þetta hefur Dahl skýrt með mismunandi erfðum, sumir þola saltá- lagið, aðrir ekki. Tilraunir á rottum hafa sýnt mismunandi óþol eða næmi fyrir saltálagi og tengdist það erfðum (25). Frá íslandi hafa ekki birst greinar um saltneyslu, sem könnuð hefur verið m.t.t. blóðþrýstings. Okkur er þó kunnugt um niður- stöður mælinga á Na og K útskilnaði í 22 körlum með vægan háþrýsting, sem gerð hefur verið af Boga Andersen, lækni og fleirum á Göngudeild háþrýstings á vegum Lyflækningadeilda Borgarspítalans og Land- spítalans. Þessir menn höfðu tekið þvagræsilyf, en verið án þeirra í þrjár vikur, þegar mæl- ingin var gerð. Þessi hópur hafði mun hærri natríum útskilnað en hópur sá, sem hér er kynntur. Einnig var Na/K hlutfallið í háþrýst- ingshópnum hærra. Þessi mismunur milli hóp- anna gefur vissulega ástæðu til að kanna þessi mál betur hérlendis. Pakkir. Höfundar pakka Rannsóknarstofu Hjartaverndar og starfsfólki á Rannsókn 6, Rannsóknastofu Landspítalans fyrir veitta aöstoð. Table IV. Comparison between some published excretion values and our values for Na, K and Creatinine and their ratios (x±SD: mmoies/24 hrs and mmoles/mmoles). Year Na K Creat. Na/K Na/Cr K/Cr Ref. 1978 N. Zealund men 173±75 66 ±26 16 ± 5,4 2,62 10,75 4,10 21 women 140 ±53 55 ± 19 11 ±3,2 2,55 12,39 4,87 1982 West Indies 2,7 19,6 8,3 9 1982 Belgium men 162±61 71 ±24 16 ± 5,3 2,3 10,5 4,6 4 women 121 ±51 57 ±21 13 ± 4,4 2,1 9,6 4,5 1975 Brazil Yanomamo 1,02 ±1,5 152 ± 75 8,3 ±3,3 22 Indians 1958 N-America men 186 ± 60 1 1983 Iceland men 155 ± 40 73 ±22 15 ±2,6 2,3 10,5 4,8 pres. women 109 ±45 56 ±24 11 ±1,6 2,2 10,0 5,3 pres.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.