Læknablaðið - 15.11.1987, Page 14
366
LÆKNABLAÐIÐ
sendir til Calculab í Richmond, Va. í
Bandaríkjunum til greiningar. Kristallar einstakra
steina voru greindir með því að ákvarða ljósbrot
röntgengeisla, sem beint er að steinunum. Þessi
greiningaraðferð skilur einnig á milli
samsetningar í miðju steinanna og ytri laga. Alls
voru 152 steinar sendir til greiningar. í þessum
hópi sjúklinga voru 97 karlar og 55 konur.
Hlutfallið þeirra á milli er 1,8 : 1 eða 63% á móti
37% (mynd 2). Aldursdreifing eftir kyni er sýnd í
mynd 3. Meðalaldur karla var 51,9 ár en kvenna
47,1 ár. Steinarnir voru ýmist fjarlægðir með
aðgerðum eða gengu niður af sjúklingunum og
voru þá sigtaðir úr þvagi. Frá fimm sjúklingum
voru sendir tveir steinar til greiningar. Steinar
umfram einn eru ekki teknir inn í útreikninga.
Þeir reyndust í öllum tilfellum vera sömu gerðar
og sá fyrsti.
NIÐURSTÖÐUR
í mynd 4 er að finna fjölda hverrar steingerðar.
Þar sést, að 90% steinanna eru kalsíumsteinar,
ýmist samsettir eða hreinir. Blanda af
kalsíumoxalati og kalsíumfósfati finnst í 49%
steinanna. Þessir steinar fundust hjá 75
sjúklingum, 45 körlum og 30 konum.
Næstalgengasta steingerðin eru hreinir
kalsíumoxalatsteinar. Þeir fundust hjá 34 körlum
og 14 konum. Þriðju í röðinni koma svo hreinir
kalsíumfósfatsteinar, 14 steinar alls, og í þessum
hóp eru 8 karlar og 6 konur. Þvagsýrusteinar eru
8 og fundust eingöngu hjá körlum. Strúvítsteinar
(ammoníummagnesíumfosfat) fundust hjá 7
sjúklingum, 5 konum og 2 körlum. Steinar úr
sýstíni, xanþíni og 2,8-díhýdroxyadeníni fundust
ekki í þessari rannsókn. Kynskifting innan
hverrar steingerðar er sýnd í mynd V.
UMRÆÐA
Nýrnasteinar eru mjög algengir á Vesturlöndum.
í grein eftir Ljunghall og fleiri er því haldið fram
að algengi nýrnasteina í Svíþjóð sé 10-20% hjá
körlum og 3-5% hjá konum (3). Þó er
varhugavert að treysta um of á tölfræðilegar
upplýsingar frá sjúkrahúsum, því margir
sjúklingar þurfa ekki á sjúkrahúsvist að halda (4,
5). Þá er rétt að benda á að endurmyndun steina
er algeng. Williams fylgdi 538 steinamyndurum
eftir í 10 ár og fann að 80% karlanna og 60%
kvennanna mynduðu fleiri steina. í rannsókn,
sem Blacklock gerði, var endurmyndunartíðnin
72% og Ljunghall & Hedstrand komust að sömu
niðurstöðu. Langoftast mynda þessir sjúklingar
sömu steingerð aftur (6). Til að koma í veg fyrir
frekari steinamyndun er því mikilvægt að þekkja
steingerðina. í okkar rannsókn er kynjahlutfallið
1,8 karlar á móti hverri konu. Þetta er með því
lægsta sem gerist. Flestir gefa upp hlutfallið 2-3: 1
(7). Karlar hafa meirihluta innan allra steingerða
nema strúvítsteina. Þar snýst hlutfallið við og
Fjöldi
30
0
0-20 21-30 31-40 41
■ Konur 0 Karlar
Mynd 3. Aldursdreifing.
-50 51-60 61-70 71-80 81-90
Aldur
Fjöldi
■ Karlar Konur Tegund
Mynd 5. Kynjaskifting innan steingerða.