Læknablaðið - 15.11.1987, Page 25
LÆKNABLAÐIÐ
375
NABLAÐIÐ
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
Læknafélag Íslands og
Læknafélag Reykjavíkur
73. Árg. - NÓVEMBER 1987
AF LUNGNABÓLGU
Lungnabólga er mikilvæg orsök veikinda og
dauða (1) og er hin sjötta í röð algengustu
dánarorsaka á íslandi (2). Sjúkdómurinn er
algengur á lyfjadeildum sjúkrahúsa. Á árunum
1982-1985 vistuðust til dæmis að meðaltali um
100 sjúklingar á ári á lyflæknisdeild Borgarspítala
með lungnabólgu af einhverju tagi sem
meginsjúkdóm (3). Ekkert er hins vegar vitað um
tíðni sjúkdómsins utan sjúkrahúsa, en álíta
verður að hún sé allmikil. Sjúkdómurinn veldur
því ýmsum þungum búsifjum á stundum, bæði
einstaklingum og þeim er fjármagna
heilbrigðisþjónustu. Oft er lungnabólga Iokastig
langrar ævi eða erfiðs sjúkdómsferils. Þekkt eru
ummæli William Oslers í kennslubók hans í
lyflækningum: »Lungnabólgu má nefna vin
hinna öldruðu. Dauðdagi úr þessum bráða,
skammvinna og oft sársaukalausa sjúkdómi
forðar gamla manninum frá ógn hrörnunar sem
hann og fjölskylda hans óttast svo mjög« (4).
Eftir tilkomu sýklalyfja var rannsóknum og
klínískum umræðum um lungnabólgu nokkuð
kastað fyrir róða, enda töldu sumir að sýklalyfin
leystu þau vandamál er sýkingar ollu. Svo
reyndist þó ekki eins og kunnugt er. Sýklalyf auk
annarra nýjunga í greiningu og meðferð
sjúkdóma hafa hins vegar breytt ásýnd
lungnabólgu. Sjúklingar eru eldri en áður og
líklegri til að hafa fyrir langvinna og alvarlega
sjúkdóma. Lungnabólga hjá sjúklingum er liggja
á sjúkrahúsum hefur orðið sérstakt vandamál.
Einnig eru sýkingar og ekki síst lungnabólga hjá
sjúklingum með brenglað ónæmiskerfi af ýmsum
orsökum nær daglegt brauð á sjúkrahúsum. Þó
að sýklalyf væru ekki endanlegt svar við
lungnabólgu fremur en öðrum sýkingum,
lækkaði dánartala mjög eftir tilkomu penisillíns.
Hins vegar hefur dánartalan haldist nær óbreytt
(10-25%) undanfarna tvo til þrjá áratugi þrátt
fyrir tilkomu sýklalyfja með æ breiðara
verkunarsvið (5).
Rannsóknir undanfarinna áratuga á lungnabólgu
hafa einkum beinst að orsakavöldum. Þó að
meginorsök Iungnabólgu sem verður til utan
spítala sé enn pnemókokkar hefur tíðni þeirra
farið hlutfallslega minnkandi. Rannsóknir
gerðar erlendis á árabilinu 1960-1970 leiddu í ljós
að 60-70% lungnasýkinga utan sjúkrahúsa voru
af völdum pnemókokka. I nýlegri rannsókn er
hlutfallið undir 40% (6). Veirur hafa reynst vera
mikilvægari orsök Iungnabólgu en áður var talið,
einkum inflúensuveirur, parainflúensuveirur,
adenoveirur o.fl. Mikilvægi Mycoplasma
pneumoniae er löngu ljóst í þessum efnum, en
ekki er nema rúmur áratugur síðan fjórða
meginorsök lungnabólgu utan spítala, Legionella
pneumophila, varð mönnum ljós. Ekki er vitað
hvort um raunverulegar breytingar á tíðni sé að
ræða í öllum tilvikum eða hvort þakka megi
einungis bættum greiningaraðferðum. Vitað er þó
að Legionella pneumophila hefur sennilega verið
til lengi og rekja hefur mátt sjúkdóma af hennar
völdum allt til ársins 1947 (7).
Ýmsar aðrar mikilvægar breytingar á orsökum
lungnabólgu hafa orðið á undanförnum árum.
Með tilkomu alnæmis og fylgisýkinga þess,
sérstaklega lungnabólgu af völdum Pneumocystis
carinii, breytast viðhorf til alvarlegra
öndunarfærasýkinga ungs fólks. Branhamella
catarrhalis, sem áður var talinn saklaus sýkill,
hefur nú haslað sér völl sem mikilvæg orsök
loftvegasýkinga. Vægi hennar stafar ekki síst af
því, að 85% stofna þessa sýkils framleiða
P-laktamasa, sem veldur ónæmi gegn penisillíni,
ampisillíni og skyldum lyfjum. Stafa af því
nokkur vandamál þegar meðferðarlyf eru valin.
Aðrar mikilvægar breytingar tengdar
lungnabólgu lúta einkum að breytingum á ferli
ýmissa þekktra sýkla. Til dæmis er Hemophilus
influenzae ekki lengur sýkill bundinn börnum.
Hann er orðinn allalgeng orsök lungnabólgu,
sérstaklega í reykingamönnum með lungnaþan
eða krónískan bronchítis. Á sama hátt er
respiratory syncytial virus (RSV) nú þekkt orsök
lungnabólgu í fullorðnum.