Læknablaðið - 15.11.1987, Síða 32
380
LÆKNABLAÐIÐ
Samkvæmt athugun Guðrúnar R. Briem (4) verða
80% slysa á »gangandi« börnum 14 ára og yngri,
vegna þess að þau hlaupa skyndilega út á akbraut
í veg fyrir ökutæki (töflur I og II). Meðalaldur
barnanna er 8 ár. Á aldrinum 5-12 ára urðu 80%
slysa eftir klukkan 12.40 og 55% eftir klukkan
14.20. Slys á leiðinni í skólann eru því ekki
algeng. Börn slasast frekar eftir skólatíma, þegar
þau eru að leik. Slysin verða yfirleitt í björtu og á
góðum vegi. Um 50% ökumanna er valda slysum
á gangandi vegfarendum er 24 ára og yngri. Nær
%0
... Male (mean —- ) Female (mean -----)
Mynd 2. Innlagðir á sjúkrahús og látnir vegna
umferðarslysa. Hlutfali af ibúum í hverjum aldurshópi.
(Bjarni Torfason: Umferðarslysin og afleiðingar þeirra.
Heilbrigðisskýrslur, 1984, fylgirit 1: 70).
■ Piltar □ Stúlkur
Mynd 3. Piltar og stúlkur 15-19 ára, sem slósuðust í
umferð á Reykjavíkursvœðinu árið 1975. Hlutfall af
1000 íbúum. (Bjarni Torfason: Umferðarslysin og
afleiðingar þeirra. Heilbrigðisskýrslur, 1984, fylgirit I:
69).
60% barnanna slasast alvarlega, borið saman við
50% fullorðinna. Barn sem slasast er yfirleitt eitt
á ferð eða með öðrum börnum. Afleiðingar
reiðhjólaslysa eru m.a. tíð höfuðslys meðal
barna. Um 45% allra höfuðslysa í umferð verða á
börnum 14 ára og yngri (5) (tafla III).
Miðað við fjölda ökutækja eru slys á vélhjólum
(6) sex til sjö sinnum algengari en slys af öðrum
ökutækjum. Um 65% þeirra er slasast hafa haft
ökuréttindi skemur en eitt ár, en 50% innan við
hálft ár. Ef litið er á ökumenn léttra bifhjóla hafa
80% einungis haft réttindi í eitt ár en 60% innan
við hálft ár. Um 63% vélhjólaslysa verða vegna
þess að réttur er brotinn á ökumanni vélhjólsins.
Slys vegna ölvunar við akstur eru fátíðari á
íslandi en í nágrannalöndum, þó að fleiri séu
teknir hér vegna ölvunar við akstur en í flestum
öðrum löndum (7).
Tafla I. Algengustu samverkandi þœttir við slys á
gangandi börnum og unglingum.
1. Kyrrstæðar bifreiðar eða annað hindrað útsýni.
2. Óvarkárni við strætisvagnabiðstöðvar.
3. Nálægð skóla.
4. Bæklun.
5. Hálka.
Tafla II. Orsakir umferðarslysa á börnum 14 ára og
yngri í Reykjavík 1981-1982.
Barn hleypur út á akbraut...... 76 80,9%
Annað.......................... 18 19,1%
Samtals 94 100,- %
Upplýsingar lögreglu um slysaorsakir eru yfirleitt byggðar á
upplýsingum þess er ekur ökutækinu. Upplýsingar frá börnum
koma yfirleitt ekki fram. Þetta vekur spurninguna hvort
lögreglan eða lögmenn taki ekki mark á börnum.
Tafla III. Orsakir höfuðslysa meðal fullorðinna og
barna 0-14 ára, sem innlögð voru á Borgarspítalann
1973-1980.
Orsök Börn °7o Fullorðnir °7o Alls °7o
Fall.......... 422 (63) 325 (43) 747 (52)
Umferðarslys 164 (24) 250 (33) 414 (29)
Högg......... 21 (3) 45 (6) 66 (5)
Árás.......... 11 (2) 44 (6) 55 (4)
Íþróttir ..... 13 (2) 13 (2) 26 (2)
Byssuskot ... - 10 (1) 10 (1)
Annað........ 42 (6) 75 (10) 117 (8)
Samtals 673 (100) 762 (101) 1.435 (101)