Læknablaðið - 15.11.1987, Blaðsíða 40
386
LÆKNABLAÐIÐ
Smám saman fjölgaði svo sérfræðingum í
geðlækningum þar til á árinu 1960 að við vorum
orðnir átta starfandi hér á landi, en sá níundi,
núverandi prófessor Tómas, sonur Helga heitins,
var þá aðstoðarmaður prófessors Strömgrens í
Árósum og vann undir handleiðslu hans að
stórmerkri faraldsfræðilegri doktorsritgerð sinni
um geðsjúkdóma hér á landi sem víða er vitnað
til.
Þá hafði ég lagt drög að því að hefja
sálkönnunarnám í American Institute for
Psychoanalysis, hjá skólastjóra þeirrar
stofnunar, dr. Harold Kelman og þegar ég sagði
honum að við værum orðnir níu íslenskir
sérfræðingar taldi hann það vera tímbært að við
stofnuðum með okkur félag. Myndi hann þá
gjarnan leggja lykkju á leið sína umhverfis
hnöttinn og flytja tvo fyrirlestra við Háskólann
okkur að kostnaðarlausu.
Esra rakti síðan stofnun félagsins sem var fyrsta
sérfræðingafélagið. Var stofnfundurinn haldinn
22. apríl 1960 og i fyrstu stjórn sátu auk Esra sem
kjörinn var formaður: Kristján Þorvarðarson
ritari og Alfreð Gíslason gjaldkeri. Aðrir
félagsmenn voru Jakob Jónasson, Þórður Möller,
Gunnar Benjamínsson, Grímur Magnússon og
Ragnar Karlsson. Sama ár kom síðan Harold
Kelman til landsins og flutti tvo fyrirlestra, annan
fyrir Geðlæknafélagið og hinn fyrir Læknafélag
Reykjavíkur.
FYRSTU SPORIN
Geðlæknafélagið starfaði í fyrstu af röggsemi og
nutum við þess að geta borið saman bækur okkar
ásamt samvistanna hver við annan, því stundum
er dálítið einmanalegt að fást við geðlækningar
úti í bæ. Svo fluttu félagarnir hvern fræðandi
fyrirlesturinn af öðrum. Til dæmis um rannsóknir
með rafritum á vöðvaspennu geðsjúkra borið
saman við heilbrigða, fyrirlestur um Freud og
kenningar hans, erindi um geðveiki á efri árum og
í elli, erindi um geðlækningar í Rússlandi,
Rúmeníu og Austurríki, ástand geðveikramála á
íslandi og fleira. En eins og oft vill verða hjá
nýjum og fámennum félögum dofnuðu
félagsstörfin og fundirnir urðu strjálli. En á
fundinum 6. apríl 1971 vaknaði félagið heldur
betur til dáða er Tómas Helgason beitti sér fyrir
umræðu um geðlækningaráðstefnu Norðurlanda
sem fyrirhugað var að halda hér árið 1973.
FULLGILDING FÉLAGSINS
í tilefni hins væntanlega þings var einnig unnið að
greinargerð um skipulag heilbrigðismála á
íslandi. Mun Tómas hafa haft mestan veg og
vanda af því. Með honum sem formanni störfuðu
að undirbúningi og framkvæmd
Norðurlandaþingsins þeir Páll Ásgeirsson, Lárus
Helgason, Jóhannes Bergsveinsson, Ásgeir
Karlsson, Þórður Möller og Karl Strand. Var
þetta mikið og vandasamt verk og mun nefndin
hafa haldið 60 fundi fyrir þingið og þrjá til fjóra
að því loknu. Þingið tókst mjög vel og voru
norrænir þátttakendur 507 og fluttir voru 80
fyrirlestrar, þar af 11 íslenskir.
Fyrir ágóða þingsins var stofnaður Fræðslusjóður
Geðlæknafélags íslands að tillögu Tómasar.
Hlaut félagið frama og sóma af þinginu og tók
það með því sæti með öðrum fullgildum
geðlæknafélögum.
Þórður heitinn Möller var ekki aðeins starfsfélagi
okkar heldur einnig góðvinur. Hann var
tónelskur, trúrækinn og hugljúfur og öllum
harmdauði er hann lést fyrir aldur fram 1975.
ÁRANGURSRÍK BARÁTTUGLEÐI
Um þetta leyti og í nokkur ár eftir það stóðu
Tómas og Geðlæknafélagið í harðri baráttu við
•ýmsa andstæðinga innan og utan
læknastéttarinnar um fyrirhugaða byggingu
geðdeildar við Landspítalann. Lauk henni með
sigri félagsins. Fátt hefur orðið geðlækningum
eins mikið til framdráttar hér eins og hin
glæsilega bygging geðdeildarinnar við
Landspítalann og sú ágæta starfsemi sem þar fer
fram enda eru óánægjuraddirnar að mestu
þagnaðar. Er það helst í sambandi við hinn mikla
kostnað sem fylgir öllum sjúkrahúslækningum.
I upprunalegum lögum félagsins var fyrirskipað
að fundir yrðu haldnir að minnsta kosti fjórum
sinnum á ári og aðalfundur yrði haldinn árlega í
septembermánuði. Vegna þess hversu fámennt
félagið var framan af mun þetta ekki alltaf hafa
staðist en samt voru margir góðir fundir haldnir
og mörg mál tekin fyrir. Spunnust um þau
allmiklar umræður og stöku sinnum allharðar
deilur.
Umræður á fundum voru m.a. um starfssvið
göngudeilda, skipulagsskrá og ársskýrslu
Fræðslusjóðs Geðlæknafélagsins, notkun róandi
og svæfandi lyfja, fyrirlestur prófessors Michael
Rutters frá Maudsley Hospital í Lundúnum um
»The Skills of Psychiatric Interviewing«, frásögn
Páls Ásgeirssonar, Guðmundar B.
Guðmundssonar og Eyjólfs Haraldssonar af ferð
þeirra til Alþýðulýðveldis Kína. Var það alveg
sérlega skemmtilegur fundur og fróðlegt að frétta