Læknablaðið - 15.11.1987, Qupperneq 41
LÆKNABLAÐIÐ
387
Stjórn Geðlœknafélags fslands, frá vinstri: Högni Óskarsson, Hannes Pétursson, Jóhannes Bergsveinsson, Grétar
Sigurbergsson og Tómas Zoéga.
af landi og þjóð og lækningum þeirra sem eru svo
fráþrugðnar okkar lækningum.
Ennfremur var rætt um framtíðarskipan
geðheilbrigðismála, samninga við
Tryggingastofnun ríkisins og Sjúkrasamlag
Reykjavíkur, starfsemi geðdeilda Borgarspítalans
á Hvítabandinu og víðar, erlend læknamót og
erlenda fyrirlesara, bráðabirgðaþjónustu,
sérfræðingareglugerð og margt fleira. Árið 1984
var efnt til ráðstefnu um öldrunargeðlækningar
með íslenskum og erlendum fyrirlestrum og árið
áður hafði félagið staðið fyrir málþingi ásamt
geðdeild Landspítalans.
NÚVERANDI STJÓRN
Núverandi stjórn Geðlæknafélagsins skipa þeir
Hannes Pétursson, Högni Óskarsson ritari og
Jóhannes Bergsveinsson gjaldkeri. Voru þeir
kosnir á aðalfundi 1984 en þá var lögum félagsins
breytt nokkuð. Ári síðar bættust tveir menn í
stjórnina í samræmi við nýju lögin, þeir Tómas
Zoéga og Grétar Sigurbergsson. Tómas tók þá við
ritarastörfum og Högni varð varaformaður.
Með tilkomu þessara nýju herra og nýju siða má
með sanni segja að félagið hafi aftur gengið í
endurnýjun lífdaganna. Nýja stjórnin hefur sett
met í stjórnarfundum og eru þeir nú orðnir 31
talsins síðan hún var kosin. Hefur stjórnin beitt
sér fyrir fjölda málefna, meðal annars fyrir
fræðslufundi um sjálfsvíg og sjálfsvígstilraunir,
um rannsóknir í geðsjúkdómafræði, málþingi um
kynlífsmál, raflækningar og fræðslufundi um
hlutdeild sjálfsins, sálarinnar og andans í
sállækningum með hliðsjón af kenningum
Freuds, Kohuts og Lacans, málþingi um
framhaldsmenntun geðlækna með prófessorum
frá íslandi, Svíþjóð, Ameríku og Englandi.
Er hér fljótt farið yfir sögu og ýmsu sleppt en eins
og sjá má er nú haldið á málum félagsins með
framtakssemi, forsjálni og festu og má því vænta