Læknablaðið - 15.11.1987, Blaðsíða 45
LÆKNABLAÐIÐ 1987; 73: 389-91
389
Birna Þórðardóttir
EGILSSTAÐIR:
HEILSUGÆSLUSTÖÐ OG SJÚKRAHÚS
Að loknum aðalfundi Læknafélags Austurlands,
sem haldinn var í Neskaupstað í október 1986,
eins og áður hefur komið fram i Læknablaðinu,
var haldið í Egilsstaði. Þar gafst tækifæri til að
skoða heilsugæslustöðina og ræða við
heilsugæslulækna.
Á Egilsstöðum hefur verið læknisbúseta frá 1944.
Sjúkraskýli var tekið í notkun í þorpinu árið 1949
og var það umbyggt sem sjúkrahús 1975. Það
reyndist strax of lítið en vonandi rætist úr því
þegar nýja sjúkrahúsið, sem er í byggingu, verður
tekið í notkun.
Nú eru starfandi þrír læknar á Egilsstöðum, þeir
Gunnsteinn Stefánsson yfirlæknir, Stefán
Þórarinsson héraðslæknir og Þórður G.
Ólafsson.
AÐBÚNAÐUR OG VINNUAÐSTAÐA
Sjúkrahúsið er á tveimur hæðum. Á efri hæð eru
sjö stofur, þar af ein fæðingarstofa og ein
ungbarnastofa. Ein til þrjár konur geta verið í
sængurlegu samtímis.
Á neðri hæð eru sex sjúkrastofur, eldhús
sjúkrahússins sem mikil þörf er á að stækka og
borðstofa. Þar fer einnig sjúkraþjálfun fram við
slæm skilyrði og starfa þar tveir hollenskir
sjúkraþjálfarar. Setustofur eru á báðum hæðum.
Á neðri hæðinni er ennfremur tannlæknastofa og
búningsherbergi starfsfólks.
Sjúkrahúsið leggur undir sig hálfa
heilsugæslustöðina og strandar allt á nýbyggingu
sjúkrahússins sem beðið er með óþreyju.
Ef vel ætti að vera kæmust fyrir 25-26 rúm á
sjúkrahúsinu, en þar eru að meðaltali 32-35
sjúklingar og hafa verið allt upp í 42, segir sig
sjálft hve þá er troðið. Mjög margir sjúklinganna
eru gamalmenni og leiðir það til þess að
sjúklingafjöldi er breytilegur.
Reynt er að halda tveim til þrem rúmum á
sjúkrahúsinu lausum fyrir bráðatilfelli, þótt það
reynist erfitt.
Fæðingar á sjúkrahúsinu eru um 35 á ári og fer
þeim heldur fækkandi. Heimafæðingar þekkjast
ekki lengur. Reynt er að skilgreina
áhættumeðgöngur með góðum fyrirvara og senda
þær konur í burtu í tíma. Fæðingar hafa yfirleitt
gengið vel á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum.
Á Borgarfirði er starfandi ljósmóðir en í
öryggisskyni þurfa konur þaðan að koma í
Egilsstaði vel fyrir fæðingu.
Á sjúkrahúsinu sem verið er að byggja er gert ráð
fyrir hjúkrunardeild með 20-24 rúmum á einni
hæð. Þar verða einnig fimm hjónaíbúðir og er
hægt að ganga út á svalir úr öllum íbúðum og
stofum. Á neðri hæðinni er gert ráð fyrir
einstaklingsíbúðum, setustofu, kapellu og líkhúsi.
Ef til vill verður komið þar upp dagvistun fyrir
aldraða. Einnig er fyrirhugað að hafa þar aðstöðu
fyrir sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun og
búningsherbergi fyrir starfsfólk.
Það verða því mikil umskipti þegar nýja húsið
kemst loks í notkun, en þess verður vonandi ekki
allt of langt að bíða.
Heilsugæslustöðin er uppi á annarri hæð en engin
lyfta er í húsinu og þarf að bera alla sjúklinga sem
ekki eru gangfærir upp stiga.
Aðeins tveir læknar hafa viðtalsherbergi og
skoðunaraðstöðu í einu. Röntgenaðstaða er á
heilsugæslustöðinni en hún er mjög takmörkuð.
Þar er einnig sótthreinsun og rannsóknastofa.
Á heilsugæslustöðinni er eitt rúm fyrir
bráðatilfelli á efri hæðinni þar sem
viðtalsherbergi lækna eru. Og inni í skoti á
ganginum er skrifborð fyrir þriðja lækninn
»skrifstofa héraðslæknis«. Stöðin er í raun gerð
fyrir tvo lækna þótt þeir séu þar þrír núna.
STARFSFÓLK HEILSUGÆSLU OG
SJÚKRAHÚSS
Alltaf er einn læknir á vakt og annar á bakvakt.
Einn læknanna þriggja sinnir
héraðslæknisembætti. Læknar töldu að full þörf
væri á einum lækni til viðbótar. Hugsanlega væri
hægt að koma því þannig fyrir að um væri að
ræða hálfa stöðu héraðslæknis og hálfa
námsstöðu.