Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1987, Blaðsíða 50

Læknablaðið - 15.11.1987, Blaðsíða 50
394 LÆKNABLAÐIÐ Formaður flutti skýrslu stjórnar en hún hafði áður verið send til fundarmanna, og var síðan birt í septemberhefti Læknablaðsins, 7. tbl. 1986. Að loknum flutningi skýrslunnar urðu nokkrar umræður og voru bornar fram fyrirspurnir. Þátt í umræðunum tóku: Atli Dagbjartsson, Þorvaldur V. Guðmundsson, Halldór Halldórsson, Ólafur Ólafsson, Sigurbjörn Sveinsson, Uggi Agnarsson, Ólafur Mixa og Pétur Lúðvigsson. Formaður svaraði fyrir hönd stjórnar. Páll Þórðarson kynnti reikninga Ekknasjóðs og flutti skýrslu stjórnar Lífeyrissjóðs lækna. Þorvaldur V. Guðmundsson lagði fram skýrslu stjórnar Domus Medica. Nokkrar umræður urðu um byggingarmál Domus Medica og lífeyrismál. Tóku þátt í þeim: Ólafur Mixa, Haukur Þórðarson, Þorvaldur V. Gumundsson, Kjartan Örvar, Páll Þórðarson og Ragnar H. Guðmundsson. í lok fyrri fundardags voru lagðar fram tillögur til ályktunar, 11 talsins og fulltrúum skipt í fjóra hópa til að fjalla um tillögurnar. Fundur hófst að nýju kl. 09.00 23. ágúst með því, að Haukur Þórðarson bauð velkomnar Ragnhildi Helgadóttur, heilbrigðismálaráðherra og Ingu Jónu Þórðardóttur, aðstoðarmann ráðherra. Hann gaf síðan Ragnhildi Helgadóttur orðið. Hún kvaðst í upphafi vera komin á fundinn til að læra. Hún benti á, að mjög lítill hluti þess fjár, sem væri varið til heilbrigðismála, væri notaður til að fyrirbyggja, að fólk leggðist inn á sjúkrahús. Langstærsti hlutinn af kökunni færi til sjúkrahúsanna. Hún greindi frá, að rikisstjórnin hefði í mars sl. samþykkt tillögu frá henni, þar sem stefnt var að því, að fé væri í ríkara mæli varið til forvarnaraðgerða. Þetta væri m.a. bráðnauðsynlegt vegna breyttrar aldursdreifingar í þjóðfélaginu. Hún taldi, að það þyrfti að auka samstarf milli sjúkrahúsanna og heilsugæslustarfsfólks um forvarnir. Ráðherra minnti á áætlun WHO og að farið væri að vinna að heilbrigðisáætlun fyrir ísland til aldamóta, en til hennar þyrfti nokkurt fé. Hún taldi, að L.í. gæti hjálpað með að auka skilning á þessu máli, svo að fé fáist. Ráðherra sagði, að nú væri unnið að breytingu á löggjöf um heilbrigðisþjónustu til að rýmka fyrir um möguleika lækna til að taka að sér heilsuvernd. Uppbygging heilsugæsluþjónustu úti á landi hefði gengið vel, en Reykjavík gæti rúmað fleiri lausnir. Þá benti ráðherra á ýmsan vanda, sem fylgdi tilkomu AIDS. Ný löggjöf hefði komið til sl. vetur, en einnig kæmi til ýmis konar vandi, sem snertir réttarstöðu einstaklinga og mat á ýmsum hagsmunum. Stjórnvöld hafi í huga að stofna til nýrrar kynningarherferðar, þar sem menn væru vaktir til sem mestrar varúðar. Hvað þennan sjúkdóm snertir, væri betra, að fólk væri hrætt en andvaralaust. Einnig hlyti að koma til ný endurskoðun á sóttvarnarlöggjöfinni, en hér væri um mjög flókið mál að ræða. Hún benti á ýmsar breytingar, sem stefnt væri að að gera á almanntryggingalögum. Þá hefðu verið sett ný lög um Sjónstöð íslands og Geislavarnir ríkisins og þar settar á stofn sjálfstæðar stofnanir. Reglugerð um veitingu sérfræðileyfa og lækningaleyfis hefði verið endurskoðuð, sem enn hefði leitt til þess, að unnt var að setja á stofn sérfræðimenntum í heimilislækningum hér á landi. Hún minnti á nýkomna reglugerð um endurgreiðslu tannlæknakostnaðar og í samskiptum sínum við tannlækna hafi ráðherra bent á, hvernig læknar legðu áherslu á að fara ávallt að lögum. Hún fjallaði nokkuð um kjör heilbrigðisstétta, sem væri orðið eitt helsta vandamálið í heilbrigðiskerfinu. Skortur væri á fólki til hjúkrunarstarfa og í stoðgreinar. Hún taldi, að læknar ættu að beita sér fyrir því að vekja athygli á ábyrgð þessara stétta og þeirri virðingu, sem þær njóta innan kerfisins. Hún lagði áherslu á, að læknar gerðu allt, sem þeir gætu til að lækka lyfjakostnað, án þess að það komi niður á þjónustu við sjúklinga. Að lokum fjallaði hún nokkuð um þá breytingu að setja sjúkrahús á föst fjárlög. Þar með væru öll sjúkrahús fjármögnuð með sama hætti, sem þýddi, að verk, sem nú er unnið á tveim stöðum, verði unnið á einum stað. Ætlunin sé að reyna að styrkja fjármálastjórn fagráðuneytisins og stofna um leið fjármálasvið í heilbrigðisráðuneyti, þar sem fólk úr heilbrigðiskerfinu fjalli um fjármagnsþörfina. Að loknu máli ráðherra var gengið til málþings. Sveinn Magnússon fjallaði um lokaskýrslu SNAPS-hópsins um atvinnuhorfur lækna á Norðurlöndum. Þá spjallaði Kristján Baldvinsson um samskipti lækna og almannatrygginga. Allmiklar umræður urðu að loknu hvoru erindi um sig og tóku ráðherra og landlæknir m.a. þátt í þeim. Erindin birtust í janúarhefti Læknablaðsins, 1. tbl. 1987. Næsta mál á málþingi var breyting á rekstrarformi (fjármögnunarfyrirkomulagi)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.