Læknablaðið - 15.11.1987, Qupperneq 55
LÆKNABLAÐIÐ
399
með sömu heimild um undanþágu og að ofan
greinir.
í marsmánuði sl. afgreiddi heilbrigðis- og
tryggingamálanefnd efri deildar Alþingis
frumvarpið í endurskoðaðri mynd til samsvarandi
nefndar neðri deildar og hafði m.a. tekið gild öll
ofantalin sjónarmið L.í. Nefndin hafnaði
nokkrum athugasemdum L.Í., sem stjórn mat þó
léttvægari en ofantalin atriði. Svo fór þó, að
frumvarpið hlaut ekki afgreiðslu sem lög frá
Alþingi, m.a. sökum þess, að þinglausnir fóru
fram óvenjulega snemma vegna Alþingiskosninga
i aprílmánuði sl. Stjórn L.í. telur brýnt, að nýtt
frumvarp til læknalaga verði flutt á næsta
Alþingi.
SAMSKIPTI VIÐ EVRÓPUSKRIFSTOFU
ALÞJÓÐAHEILBRIGÐIS-
MÁLASTOFNUNARINNAR
í mars 1986 kom Dr. J. E. Asvall,
framkvæmdastjóri Evrópuskrifstofu WHO,
hingað til lands á vegum heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins. Boðaði ráðuneytið
til fundar, þar sem Dr. Asvall kynnti
heilbrigðismarkmið WHO í Evrópu, »Targets in
support of the European regional strategy for
health for all«. WHO efndi til sameiginlegs
fundar með fulltrúum heildarsamtaka lækna allra
Evrópulanda dagana 9. og 10. október 1986 í Vín
um HFA í Evrópu árið 2000. Fund þennan sóttu
formaður L.í. og formaður L.R. Mættir voru
fulltrúar frá 21 landi af 32, sem eru innan
vébanda WHO í Evrópu. Tilgangur fundarins af
hálfu WHO var að kanna afstöðu
læknasamtakanna til sjónarmiða WHO varðandi
m.a. forvarnir og heilbrigðishvetjandi aðgerðir,
sem og siðfræðilegar, efnahagslegar og
skipulagslegar afleiðingar stefnumörkunar á
þessum sviðum í Evrópu. Einnig hvert hlutverk
læknasamtaka er í stefnumörkun
heilbrigðisþjónustu og símenntun
heilbrigðisstétta. Niðurstöður fundarins voru
m.a.:
- að heildarsamtök lækna í Evrópu standa öll að
forvörnum og heilbrigðishvetjandi aðgerðum
- að langflest þeirra styðja áform
Evrópuskrifstofu WHO um HFA 2000
- að heildarsamtök lækna vinni með WHO,
sérstaklega að stefnumörkuninni varðandi
tóbaksnotkun
- að Evrópuskrifstofan beiti sér fyrir betri
dreifingu á upplýsingum um framkvæmdir
læknasamtaka á sviði stefnumörkunar í
heilbrigðismálum
- að WHO sendi læknasamtökum öll útgefin rit
stofnunarinnar og að læknasamtökin geri þeim
skil í tímaritum sinum, eftir því sem við á
- að WHO annist dreifingu tímarita
læknasamtakanna í Evrópu þeirra á milli.
SAMSKIPTI VIÐ ERLEND LÆKNAFÉLÖG
Sú er venjan, að læknafélögin á Norðurlöndum -
þó ekki íslandi - bjóða fulltrúum hinna
læknafélaganna að sitja aðalfundi sína. Sjaldnast
getur L.í. þegið slík boð vegna kostnaðar nema
svo hagi til, að stjórnarmeðlimur sé á ferðinni á
þeim slóðum og á þeim tíma, sem um ræðir.
Þannig æxlaðist það til, að formaður L.í. sat
aðalfund norska læknafélagsins í júní á þessu ári.
Þótti honum fróðlegt að kynnast norsku
fyrirkomulagi aðalfunda. Mjög mörg mál voru til
umræðu og mörg þeirra keimlík þeim málum
lækna og heilbrigðisþjónustu, sem við er að glíma
hér á landi.
Framkvæmastjóri læknafélaganna mun sitja
fund stjórnunarstarfsmanna læknafélaganna á
Norðurlöndunum í október á þessu ári, en þeir
eru haldnir annað hvert ár. í leiðinni mun hann
sitja aðalfund danska læknafélagsins sem fulltrúi
L.í.
L.í. er ekki, eins og kunnugt er, meðlimur í
World Medical Association, né heldur eru önnur
læknafélög Norðurlanda meðlimir. Ýmis önnur
landsfélög lækna í Evrópu eru utan WMA, svo og
félagið í Kanada. Þessi félög hafa haft með sér
óformleg samtök og hafa fulltrúar þeirra komið
saman til fundar árlega. L.í. hefur lítið getað
tekið þátt í þessum samtökum, sem er miður. T.d.
var þátttaka L.í. afboðuð á fund í Kanada í júní
á þessu ári.
Enda þótt L.í. sé ekki innan WMA, sendir
heimsfélagið L.í. staðfastlega allar ályktanir
þings og stjórnar, ýmis fréttabréf og tímarit, sem
WMA gefur út. Er þar að finna margt
markverðra efnisþátta, sem eru í brennidepli og
skipta jafn miklu máli hér á landi sem í öðrum
löndum. Sérlega má nefna atriði, sem tengjast
siðareglum lækna og siðfræði vísindastarfa.
Aðsent efni frá WMA liggur frammi á skrifstofu
læknafélaganna og eiga allir læknar aðgang að
því þar.
RÁÐNING AÐSTOÐARLÆKNA í STÖÐUR
Á SJÚKRAHÚSUM
Félag ungra lækna (FUL) hefur árum saman stýrt
ráðningum aðstoðarlækna í flestar stöður á
sjúkrahúsum, sem heilbrigðis- og