Læknablaðið - 15.11.1987, Qupperneq 56
400
LÆKNABLAÐIÐ
tryggingamálráðuneytið metur gildar fyrir
viðbótarnám kandidata til almenns
lækningaleyfis. Formlegir samningar við
sjúkrahúsin hafa ekki verið gerðir um stöður, sem
FUL ráðstafar á þennan hátt, heldur hefur verið
um óformlegt samkomulag að ræða við
yfirlækna. Af margvíslegum ástæðum hefur
þessum stöðum farið heldur fækkandi síðastliðin
ár. Ný reglugerð um veitingu lækningaleyfis og
sérfræðileyfa kveður á um, að kandidat vinni á
viðurkenndu deildaskiptu sjúkrahúsi eða
sjúkrahúsum í alls 12 mánuði, þar af a.m.k. fjóra
mánuði á almennri lyflæknisdeild og a.m.k. tvo
mánuði á almennri skurðdeild. Ljóst er, að
fjölmennir árgangar lenda í umtalsverðum
erfiðleikum við að uppfylla skilmála
reglugerðarinnar innan sanngjarns tíma frá
útskrift. Nýskipan ráðningarkerfis
aðstoðarlækna hefur verið á döfinni hjá FUL,
m.a. að teknar verði upp »viðbótarnámsblokkir«
með áframhaldandi kennsluferli á hinum ýmsu
deildum. FUL leitaði samstöðu við L.í. um
fyrirkomulag ráðningar aðstoðarlækna.
Sameiginlegt álit stjórna L.í. og FUL um þessi
mál var sent í janúar 1987 til allra þeirra aðila,
sem með þessi mál hafa að gera.
ATVINNUHORFUR LÆKNA
Lengi hefur verið ljóst, að framboð á læknum á
íslandi verður meira í náinni framtíð en nemur
eftirspurn. Kynntar hafa verið spár um
framboðið og eftirspurnina, unnar í samstarfi
svokallaðs SNAPS-hóps, samnorræns vinnuhóps
á vegum læknafélaganna á Norðurlöndunum. Að
sjálfsögðu hafa versnandi atvinnuhorfur lækna
hér á landi sem víðast annars staðar vakið
umræðu í hópi lækna. Stjórn L.í. boðaði til
málþings um atvinnumál lækna 12. des. 1986 í
Domus Medica. Greint er frá málþinginu í
ágústhefti Læknablaðsins þetta ár. í febrúar 1987
samþykkti stjórn L.í. eftirfarandi um versnandi
atvinnuhorfur lækna:
1. Fœrri kandidatar frá Háskóla íslands
Vaxandi atvinnuleysis gætir meðal lækna i
Evrópu. í Ameríku fara atvinnumöguleikar
minnkandi og er jafnvel spáð atvinnuleysi þar.
í þessum löndum eru þó útskrifaðir allt að
helmingi færri læknar hlutfallslega en hér á
landi. í skýrslu SNAPS-hópsins er spá um
verulegt atvinnuleysi meðal lækna á íslandi i
náinni framtíð. Stjórn L.í. leggur því til, að
ekki verðri útskrifaðir fleiri læknar úr
læknadeild H.í. en 16-22 á ári og vísar í því
sambandi til ályktana aðalfunda L.í. 1984 og
1985. Enda þótt félagið bendi einnig á aðrar
leiðir til úrbóta, er ekki líklegt, að komið verði
í veg fyrir atvinnuleysi að gagni nema veruleg
fækkun verði á útskrifuðum læknum frá
læknadeild H.í.
2. Ný starfssvið
Læknismenntun getur komið að gagni við
ýmis störf, sem læknar hafa lítt sinnt hingað
til. Benda má á störf við stjórnun og
skipulagningu í heilbrigðiskerfinu,
heilbrigðiseftirlit o.fl. Skortur á öðru
heilbrigðisstarfsfólki getur leitt til þess, að
starfssvið lækna víkki frá því, sem nú er, og
stöðum fjölgi. Störfum lækna í lyfja- og
líftækniiðnaði mun vafalítið fjölga.
3. Dreifing vinnuálags
Vinnuálag aðstoðarlækna er víða mikið, ekki
sist á vöktum. Algengt er, að þeir fái ekki
notið samningsbundinna ákvæða um
hvíldartíma, þar sem krafist er áframhaldandi
starfa af þeim í stað hvíldar. Nauðsynlegt og
æskilegt er að bæta úr því og ætti að vera
auðvelt vegna fjölda unglækna. Vinnutími
annarra lækna er oft á tíðum of langur. Á
þetta við bæði um einstaka sérfræðinga og
heilsugæslulækna út um land. Reikna má
með, að einhver fjölgun á stöðum geti orðið af
þessum sökum.
4. Nýjar námsstöður
Nú eru flestar stöður á heilsugæslustöðvum
setnar til frambúðar og afleysingastöður mjög
fáar. Færri læknakandidatar en æskilegt er
kynnast því þessari hlið læknisstarfsins.
Fyrirsjáanlegir eru erfiðleikar fyrir íslenska
lækna að komast í sérnám til Norðurlanda,
hafi þeir ekki unnið á heilsugæslustöð. Nú er
vaxandi bið eftir stöðum á námssjúkrahúsum
til lækningaleyfis. Þann biðtíma væri æskilegt
að nýta við vinnu á heilsugæslustöðvum. Slík
vinna gæti einnig nýst sem hluti af sérnámi í
heimilislækningum.
5. Atvinnuleysistryggingar
Vegna fyrirsjáanlegra breytinga á
atvinnumöguleikum lækna á næstu árum og
áratugum er tímabært, að læknafélögin íhugi
stofnun atvinnuleysistryggingasjóðs.
VÍSINDASIÐANEFND L.í.
Um nokkurt skeið hefur stjórn L.í. haft í
undirbúningi stofnun Vísindasiðanefndar
Læknafélags íslands. Nefndin var skipuð 26. maí
1987. Nefndarskipunin var kynnt í 7. tbl.